Margar ár að byrja betur en í fyrra

Þorsteinn Stefánsson leiðsögumaður í Stóru - Laxá með afar fallegan …
Þorsteinn Stefánsson leiðsögumaður í Stóru - Laxá með afar fallegan lax úr Stóru. Flókadalsá, Stóra - Laxá, Haffjarðará og ýmsar fleiri ár vekja athygli fyrir góða byrjun. Svo eru sumar nokkuð undir síðasta ári. Ljósmynd/ÞS

Óvenju margt er hægt að lesa út úr vikulegum veiðitölum á angling.is sem er vefur Landssambands veiðifélaga og heldur utan um tölur yfir veiði í laxveiðiám. Það fyrsta sem vekur sérstaka athygli er mikil veiði í Flókadalsá í Borgarfirði. Þar eru komnir 87 laxar á land á þrjár stangir og lætur það nærri að vera besta veiði á landinu miðað við lax á stöng á dag. 

„Þetta er miklu betri byrjun en undanfarin ár,“ sagði Sigurður Jakobsson formaður Veiðifélags Flókadalsár. „Ég man ekki eftir því að þetta hafi gerst undanfarin ár. Það kann að vera að þetta hafi verið á svipuðu róli þegar metárið var 2013 og áin fór í 937 laxa.“

Sigurður segir að opnunin hafi gengið vel og svo hafi komið holl sem greinilega hafi hitt á göngu og skilaði 36 löxum og hafi fyllt kvótann en hann er sex laxar á stöng á dag.

En ef listinn á angling er skoðaður þá er Urriðafoss í fyrsta sæti með 341 lax. Það er mun minni veiði en í fyrra en Urriðafoss var kominn í 500 laxa um þetta leiti í fyrra.

Norðurá er í öðru sæti listans með 206 laxa og er það á pari við byrjunina í fyrra.

Haffjarðará er í þriðja sæti með 123 laxa. Það er töluvert betri byrjun en 2021 en á þessum tíma voru komnir 92 laxar úr henni.

Eins og fyrr segir er svo Flókadalsá í fjórða sæti með 87 laxa á sínar þrjár stangir. Í fyrra var hún í 36 löxum á þessum tíma.

Þverá/Kjarrá hafa skilað inn tölum.

Miðfjarðará kemur næst með 68 laxa en var á sama tíma í fyrra með 65.

Laxá  í Kjós er mun betri en í fyrra. Nú er talan 58 en var fyrir ári 35.

Næstar koma jafnar Grímsá, Ytri – Rangá og Stóra – Laxá en sú síðast nefnda hefur skilað mjög góðri veiði þessa fyrstu daga. Allar eru þær bókaðar með 54 laxa en Grímsá í fyrra var með 16 laxa á þessum tíma. Þá er Ytri með  mun betri veiði en í fyrra. Einungis 10 laxar voru komnir á land í fyrra á sama tíma.

Svo koma þessar:

Hítará 43

Blanda 40

Laxá í Aðaldal 36

Laxá í Leirársveit - ekki skilað tölum.

Langá 32

Elliðaárnar - ekki skilað tölum.

Víðidalsá 30

Þetta eru fimmtán hæstu árnar. Aðrar eru með minna en svo skýrist myndin betur eftir því sem vikunum fjölgar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert