„Söngur eilífðarinnar í fluguveiði“

Í tilefni af 150 ára afmæli Hardy vörumerkisins var boðið upp á kökur og kræsingar í Veiðihorninu í Síðumúla. Þar var meðal annars farið yfir sögu þessa hornsteins veiðimennskunnar á Bretlandseyjum. Þorsteinn Joð tók að sér að gera stuttmynd þar sem tiplað er á þessari sögu. Við frumsýnum hér myndina en báðum Þorstein Joð að lýsa aðeins innihaldinu. 

„Hardy vörumerkið er auðvitað einhvers konar skjaldamerki fluguveiðinnar, 150 ára saga hvorki meira né minna. Það var gaman að heyra um sögu og þróun Hardy í spjalli við tvo sérfræðinga, Ólaf Vigfússon í Veiðihorninu og Christen Stenild frá Hardy í Danmörku. Mér fannst sérstaklega áhugaverð grein sem Ólafur sýndi mér, Veiðar á Íslandi, eftir Albert Erlingsson sem var umboðsmaður Hardy á Íslandi um miðjan síðustu öld. Það segir sína sögu um hverskonar áfangastaður og fluguveiðiparadís Ísland hefur verið á þeim tíma fyrir veiðimenn, þótt sögulegu stórlöxunum hafi heldur fækkað. Það vekur mig til umhugsunar um þá ábyrgð sem við berum á þeirri auðlind sem lax og silungsveiði er á Íslandi í dag. Christen lýsti sömuleiðis á áhugaverðan hátt hvernig Hardy er komið upp úr öldudal sem fyrirtækið var í, hvernig það hefur þróað nýjar og spennandi stangir og hjól, samhliða því að framleiða áfram klassíkina. Svo var auðvitað ekki annað hægt en að spyrja Christen um Hardy sándið í fluguhjólunum, sem er alveg einstaklega fallegt, söngur eilífðarinnar í fluguveiði.“

Svo mörg voru þau orð frá sögusmiðnum. En sjón er sögu ríkari.

Veiðihornið er samstarfsaðili Sporðakasta.
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert