Loksins stuð í Skógá eftir mögur ár

Sigurður Héðinn með þann þriðja sem hann tók á Skugga. …
Sigurður Héðinn með þann þriðja sem hann tók á Skugga. Nýrunninn smálax og Haugurinn, eins og hann er jafnan kallaður var ánægður niðurstöðuna. Hér eru gráu litirnir alls ráðandi. Ljósmynd/ES

Skógá undir Eyjafjöllum hefur gefið góða veiði síðustu viku og það þrátt fyrir litla ástundun. Áin hefur vart borið sitt barr eftir eldgosið í Eyjafjallajökli í apríl árið 2010. Gríðarlegt magn af ösku fór illa með Skógá og lagðist veiði nánast af eftir gosið. Tilraunir hafa verið gerðar með sleppingar á seiðum í ána en veiðin ekki náð sér á flug.

Skóga gaf mest veiði upp á tæplega 1.600 laxa sumarið 2008 og oft hefur verið þar góð bleikjuveiði og dæmi um allt að 2.700 silungaveiði yfir sumarið.

Ásgeir A. Ásmundsson var með ána á leigu þegar best lét fyrir gos. Nú hefur hann tekið við ánni á nýjan leik og sleppti í fyrra sambærilegum skammti af seiðum á við það sem var fyrir gos. Nú eru þessir fiskar að koma úr hafi og hefur veiðin verið að glæðast þar undanfarna daga og áin komin yfir sextíu laxa þrátt fyrir að hafa verið lítið stunduð.

Stóri göngustraumurinn fyrir Skóga er næsta stórstreymi sem er á mánudag. Afar spennandi verður að sjá hvað gerist þá en fiskar hafa verið að ganga síðustu daga á hverju flóði.

Jón Ómar Finnsson var að veiða í Skógá í gær …
Jón Ómar Finnsson var að veiða í Skógá í gær og tók þennan í Raflínustreng. Auðvitað er Skógafoss í baksýn. Ljósmynd/ES

Sporðaköst litu við í Skógá þar sem erlent kvikmyndatökuteymi var við ána að mynda hana og var þar í stóru hlutverki einn af þekktari veiðimönnum landsins. Þar kastaði Sigurður Héðinn fyrir laxa í Ármótum, þar sem hliðaráin Kverna mætir Skógá. Þetta er einn af bestu veiðistöðum árinnar og Haugurinn var ekki lengi að setja í hann. Í nánast fyrsta kasti tók nýrunninn smálax. Honum var landað og Haugurinn kastaði aftur. Annar glænýr smálax tók fluguna. „Skuggi, að sjálfsögðu,“ svaraði hann þegar spurt var fluguna. En hann er einmitt höfundur Skugga og virtist sáttur með frammistöðuna. Sá þriðji kom á land stuttu síðar og sá fjórði lak af í löndun. Eftir tveggja tíma veiði varð Haugurinn að rjúka til Reykjavíkur.

Við stönginni tók ítalskur veiðimaður og kastaði Haugnum í túpuformi neðst á staðinn. Enn einn nýrunni smálaxinn tók túpuna. Höfundurinn var farinn en hefði án efa líkað þessi niðurstaða.

Sá ítalski búinn að setja í hann neðarlega í Ármótum.
Sá ítalski búinn að setja í hann neðarlega í Ármótum. Ljósmynd/ES

„Well now you cast,“ sagði sá ítalski við útsendara Sporðakasta. Á það var fallist. Fiskur ólgaði undir Collie Dog flugu. Í næsta kasti reif hann í fluguna en kvaddi. Það var svo nokkru neðar sem enn einn nýrenningurinn tók fluguna af yfirvegun og honum var landað og sleppt. Þetta var magnað ævintýri á stuttum tíma í Skógá. Sex laxar á þremur tímum og ekki verið að berja stöðugt.

„Það er alveg ljóst að hann er mættur og það eru fiskar að koma á hverju flóði. Það verður spennandi að sjá hvað gerist næstu daga með stækkandi straumi. Hún er komin yfir sjötíu laxa og með afar litlu veiðiálagi. Það sem er einkar áhugavert að það hafa nánast eingöngu veiðst hængar. Ætli hrygnurnar komi fyrr en á næsta ári og þá sem tveggja ára. Það getur orðið spennandi,“ sagði Ásgeir leigutaki.

Haugurinn ótrúlega afslappaður í myndatökunni, með fjórða laxinn á. Hann …
Haugurinn ótrúlega afslappaður í myndatökunni, með fjórða laxinn á. Hann gaf sér tíma til að líta í næstu myndavél. Ljósmynd/ES

Framundan er besti tíminn í Skógá og þá kemur í ljós hvort Skógá fari að nálgast það sem hún var þegar best lét. Ljóst er að hún líður enn aðeins fyrir hversu illa hún fór árin eftir gos, og veiðimenn hafa ekki snúið aftur. Kannski það gerist með haustinu.

Þegar Sporðaköst voru að keyra í burtu mátti sjá Ásgeir með kengbogna stöng og myndatökufólk hlaupandi í kringum hann.

Ísland er magnað laxveiðiland. Á meðan að fyrstu krókódílarnir, eða legnu stórlaxarnir eru farnir að gefa sig fyrir norðan eru smálaxagöngur að hefjast í Skógá, einni syðstu laxveiðiá Íslands.

Laxveiðin í Skógá byggir eingöngu á seiðasleppingum og heimtum af þeim. Sleppingar í fyrra og í sumar voru á pari við það sem gerðist fyrir gos.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert