NÍ: Sex rjúpur á veiðimann í ár

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lagt mat á stærð veiðistofns rjúpu og …
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lagt mat á stærð veiðistofns rjúpu og veiðiþol. Samkvæmt mati NÍ eru sex rjúpur á veiðimann þetta haustið. Ráðherra tekur endanlega ákvöðrun um fyrirkomulag veiði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lagt mat á veiðiþol rjúpnastofnsins fyrir komandi veiðivertíð. Veiðistofninn er metinn 297 þúsund fuglar og hafa niðurstöðurnar verið kynntar Umhverfisstofnun með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 26 þúsund fuglar. Í frétt á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) er farið yfir stöðuna og þar segir: „Veiðistofn rjúpunnar er metinn 297 þúsund fuglar haustið 2022 og ráðlögð veiði er um 26 þúsund fuglar eða um sex fuglar á veiðimann.“

Rakið er í fréttinni að talningar síðastliðið vor sýndu fjölgun á flestum á svæðum frá árinu áður. Bent er á að ef miðað er við síðustu tuttugu ár þá er stofninn yfir meðallagi að stærð en undir meðallagi ef horft er til síðustu sextíu ára. Passar þetta vel við það sem áður er komið fram að sveiflur rjúpnastofnsins hafa mjög breyst á þessari öld og er nú styttra á milli toppa en áður var, þegar tíu ár virtust líða á milli.

Stofninn er í uppsveiflu og er yfir meðallagi þegar horft …
Stofninn er í uppsveiflu og er yfir meðallagi þegar horft er til síðustu tuttugu ára. Hins vegar er hann undir meðallagi þegar horft er til sextíu ára meðaltals. Ljósmynd/mbl.is

Fréttir hafa verið sagðar af viðkomubresti rjúpunnar á NA – landi og lélegri viðkomu á Vesturlandi. Það þýðir að minna komst upp af unga en hefðbundið er. Stofninn er hins vegar á uppleið og varð mönnum það ljóst strax í vor.

Í frétt NÍ er tekið fram að ekki ríki ágreiningur um veiðistofninn og ráðgjöf NÍ. Vekur þetta nokkra athygli þar sem oftar en ekki hefur þetta verið á hinn veginn. Orðrétt segir: „Á samráðsfundi fulltrúa Náttúrufræðistofnunar Íslands, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, Umhverfisstofnunar, Skotveiðifélags Íslands og Fuglaverndar, sem haldinn var 29. ágúst, var enginn ágreiningur um ástand rjúpnastofnsins 2022 og árangur veiðistjórnunar frá árinu 2005 til 2021.

Nú mun Umhverfisstofnun taka við þessum upplýsingum og kynna ráðherra stöðuna. Það kemur svo í hlut Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis- og auðlindaráðherra að ákvarða fyrirkomulag á rjúpnaveiði þetta haustið.

Sporðaköt leituðu viðbragða hjá formanni Skotveiðifélags Íslands. Áki Ármann Jónsson hafði þetta að segja; „Það eru viss vonbrigði að viðkoman hafi ekki verið meiri, við vonuðumst eftir veiðistofni upp á 500.000 rjúpur en endum með 300.000. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að stofninn er í fjölgunarfasa og með hóflegri veiði í haust aukast líkurnar á góðum veiðistofni næsta haust. En viðkoman er hins vegar stóri þátturinn í stofnbreytingum, almennt hefur hún lækkað með árunum, og Skotvís hefur bent á að þarna sé rannsóknarspurning sem þarf að svara.“

Frétt af heimasíðu NÍ er í heild sinni hér að neðan. 

„Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2022 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar Umhverfisstofnun með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 26 þúsund fuglar.

Í aðalatriðum sýndu talningar síðastliðið vor fjölgun rjúpna á nær öllum talningarsvæðum 2021–2022. Staða stofnsins fer að nokkru eftir því við hvaða tímabil og hvaða landsvæði er miðað en til lengri tíma litið hefur rjúpnastofninum hnignað. Sé viðmiðið síðustu 20 ár eða svo þá er stofninn yfir meðallagi að stærð en undir meðallagi samanborið við síðustu 60 ár.

Viðkoma rjúpunnar var mæld í tveimur landshlutum 2022. Viðkomubrestur var á Norðausturlandi og léleg viðkoma á Vesturlandi. Slæmt tíðarfar um vorið og sumarið er líklegasta skýringin. Afföll á 2022 árganginum á Norðausturlandi eru þegar orðin það mikil í lok sumars að óvíst er hvort að sú uppsveifla í stofnstærð sem hófst í 2021–2022 haldi áfram. Almennt hefur afkoma unga versnað frá síðustu aldamótum samanborið við áratugina á undan.

Á samráðsfundi fulltrúa Náttúrufræðistofnunar Íslands, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, Umhverfisstofnunar, Skotveiðifélags Íslands og Fuglaverndar, sem haldinn var 29. ágúst, var enginn ágreiningur um ástand rjúpnastofnsins 2022 og árangur veiðistjórnunar frá árinu 2005 til 2021.

Veiðistofns rjúpunnar er metinn 297 þúsund fuglar haustið 2022 og ráðlögð veiði er um 26 þúsund fuglar eða um sex fuglar á veiðimann. Stærð veiðistofns rjúpu haustið 2022 er á pari við fjögur lélegustu árin frá upphafi mælinga 1995. Rjúpan er lykiltegund í fæðuvefnum og m.a. forsenda fyrir tilvist fálka. Hún er á Válista sem tegund í yfirvofandi hættu. Í ljósi þessa alls leggur Náttúrufræðistofnun mikla áherslu á að hvergi verði slakað á í þeirra viðleitni að draga sem mest úr heildarafföllum rjúpunnar og afli verði ekki umfram um 9% af veiðistofni.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert