Síðasti dagur veiðitímans er í dag. Sjóbrtingsárnar loka flestar í dag og sama er að segja um árnar á Suðurlandi sem byggja á sleppingum. Rangárnar og nokkrir nágrannar þeirra. Það er á þessum tímamótum sem rétt er að huga að frágangi á veiðibúnaði svo að hann verði tiltækur þegar næsta tímabil hefst. Í Síðumúla er bryddað upp á nýjung þetta haustið þegar Simmsdagar hefjast í dag.
„Við ætlum að halda Simmsdaga í október. Við höfum nokkrum sinnum haldið svona daga áður, en alltaf að vori. Síðast þegar við vorum með Simmsdaga gerðum við við vel á
annað hundrað Simms vöðlur fyrir veiðimenn. Þær viðgerðir sem krefjast meiri sérhæfni
og verkfæra sem við höfum ekki yfir að ráða verða senda Gore-tex verkstæði Simms í Evrópu,“ sagði Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu í samtali við Sporðaköst.
Eins og Óli nefndi þá hafa slíkir dagar verið haldnir þar sem veiðimönnum gefst kostur á að koma með Simms vöðlur ef grunur er um að þörf sé á viðgerð. Það hefur komið í ljós á vordögum að menn hafa jafnvel gleymt því að þörf sé á viðgerð og hrökkva svo upp við vondan draum að vori. Nú er tækifæri til að láta kíkja á vöðlurnar og um leið að fá leiðbeiningar og góð ráð varðandi umhirðu, meðferð og vetrargeymslu á veiðibúnaði.
„Þessi þjónusta okkar er frí fyrir viðskiptavini Veiðihornsins. Simms er eini framleiðandi af vöðlum fyrir stangveiðimenn sem hefur leyfi frá Gore til að nota Gore-tex í vöðlur. Þessi staðreynd og einstök eftirþjónustan sem við veitum skilur Simms frá öðrum merkjum í þessum bransa."
Simmsdagarnir verða í Veiðihorninu í Síðumúla dagana 20. til 24. október og opið verður alla helgina af þessu tilefni, 11 til 15 á laugardag og sunnudag.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |