Fyrsti laxinn úr Blöndu kom á land þegar nokkuð var liðið á morgun. Það var Þorsteinn Stefánsson sem fékk hann á Breiðu suður og það vakti athygli að hann reyndist smálax. Iðulega er það talið vita á gott að smálaxinn mæti snemma. Þá trúa menn því að mikið verði af honum. Það er þó ekki vísindalega sannað eftir því sem Sporðaköst komast næst.
Mönnum þar nyrðra er létt. Opnunin í fyrra var ekki til að hrópa húrra fyrir en fyrsti laxinn veiddist ekki í Blöndu fyrr en 13. júní, þegar búið var að veiða hana í rúma viku. Nú höfðu sést laxar í Blöndu og menn mættu því bjartsýnir. Veiðimenn sáu fiska elta en það var ekki fyrr en rúmlega 11 í morgun sem sá fyrsti tók og reyndist það smálax, eins og fyrr segir. Fyrsti laxinn tók Silver sheep hálf tommu í yfirborðinu. Fiskurinn var ekki lúsugur en greinilega nýgenginn. Vonandi veit þetta á gott með framhaldið í Blöndu og víðar en opnunin í Norðurá hefur svo sannarlega fengið laxveiðimenn til að lyft brúnum. Ekkert lát var þar á veiði í morgun og vissu Sporðaköst um tíu laxa sem búið var að landa þar í morgun.
Nokkuð er að sjást af laxi í Laxá í Kjós og Urriðafoss gaf sautján laxa í gær. Víða áhugaverðar fréttir úr þessum geira þessa dagana.
Sveinbjörn Stefánsson setti svo í og landaði 83 sentímetra hrygnu á Breiðunni að norðanverðu. Eins og sést á myndinni er þar á ferðinni dæmigerður „blöndungur“ þykkur og fallegur fiskur. Veiðimenn í opnun voru bjartsýnir þegar Sporðaköst heyrðu í þeim í hádeginu og ljóst að menn verða mættir á slaginu á seinni vaktina.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |