BÓKASAFN George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, var opnað í Texas í gær að viðstöddum eftirmanni hans í embættinu, Bill Clinton, og tveimur forverum, Gerald Ford og Jimmy Carter. Vel fór á með Clinton og Bush þótt oft hafi slegið í brýnu með þeim fyrir fimm árum þegar þeir tókust á um forsetaembættið.
Meira
NEIL Hamilton, fyrrverandi aðstoðarráðherra í Bretlandi, fékk ekki uppreisn æru eins og hann hafði vonast til þegar siðanefnd þingsins birti skýrslu um meinta spillingu hans í gær. Í skýrslunni segir að Hamilton hafi aðeins sloppið við refsingu vegna þess að hann missti þingsæti sitt í síðustu kosningum.
Meira
FRANSKI leikarinn og söngvarinn Yves Montand verður grafinn upp og lík hans krufið að nýju, sex árum eftir lát hans. Þessi ákvörðun var tekin í gær í faðernismáli sem meint ástkona Montands, Anne Drossart, höfðaði fyrir áratug. Montand var sjötugur þegar hann lést árið 1991 og árið áður fyrirskipaði dómstóll honum að gangast undir erfðavísarannsókn, en hann neitaði því.
Meira
OFSAVEÐUR hefur orðið að minnsta kosti 31 manni að bana á Suður- og Mið-Spáni og í Portúgal. Sex manns er enn saknað, tugir slösuðust og eignatjón er geysilegt. Veður hefur verið vont frá því á mánudag en í fyrrinótt gerði gífurlegt úrhelli sem kostaði flest mannslífin. Talið er að veðrið sé að mestu gengið yfir í Portúgal en áfram er spáð roki og rigningu á Suður-Spáni.
Meira
AUKIN harka færðist í verkfall franskra flutningabílstjóra í gær og leiðtogar verkalýðsfélaga og samtaka atvinnurekenda sögðust seint í gærkvöldi ekki vera bjartsýnir á að samningar tækjust fyrir helgi.
Meira
VIÐRÆÐUM sendimanna Sameinuðu þjóðanna og íraskra ráðamanna lauk í Baghdad í gærkvöldi og stjórnarerindreki í borginni kvaðst vera ánægður með árangurinn. "Niðurstaða viðræðna Íraka og Sameinuðu þjóðanna er jákvæð," sagði stjórnarerindrekinn en vildi ekki veita frekari upplýsingar um árangurinn. Niðurstaðan verður kynnt á blaðamannafundi sendimannanna í Baghdad í dag.
Meira
VIÐSKIPTAVINUM Toyota og RÚV var afhent gjafabréf fyrir tvo til London 30. október sl. Allir þeir sem greiða afnotagjald sitt hjá RÚV með beingreiðslum og keyptu Toyota bifreið í október voru í pottinum. Vinningshafarnir fara til London, gista í 2 nætur og fara m.a. á tónleika Phil Collins þann 7. nóvember næstkomandi.
Meira
FÉLAG raungreinakennara heldur aðalfund sinn næstkomandi laugardag laugardaginn 8. nóvember kl.13 í Menntaskólanum við Hamrahlíð, stofu 29. Að fundinum loknum verður almennur fræðslufundur þar sem prófessor Svein Sjöberg frá Háskólanum í Osló flytur erindi sem hann nefnir Vísindalæsi (Scientific Literacy).
Meira
Að gefa brauð ÞAÐ hefur löngum verið barna yndi að fá að fara í fylgd fullorðinna niður að Tjörn og brauðfæða endurnar. Þrátt fyrir tölvuleiki, tívolí og margskyns nýjungar í afþreyingu ungviðisins, er Tjarnaheimsókn eitt af því sem aldrei virðist fara úr tísku.
Meira
Algjört rugl í Versló VERSLUNARSKÓLI Íslands frumsýnir leikritið Algjört rugl í kvöld, föstudag, kl. 20 í Verslunarskóla Íslands. Leikritið er eftir Christopher Durang og heitir á fummálinu "Beyond Therapy" og er í þýðingu Birgis Sigurðssonar. Leikstjóri er Bjarni Haukur Þórsson.
Meira
Á FUNDI miðstjórnar Alþýðusambands Íslands hinn 5. nóvember 1997 var eftirfarandi ályktun samþykkt: "Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir andstöðu sinni við þær gífurlegu hækkanir á gjaldtöku fyrir símtöl innan svæða sem orðið hafa á aðeins einu ári. Þessar hækkanir eru algerlega úr takti við alla aðra þróun í samfélaginu, hvort sem litið er til launa- eða verðlagsþróunar.
Meira
KOSIÐ verður um sameiningu ellefu sveitarfélaga í Skagafirði laugardaginn 15. nóvember, en ekki 29. nóvember eins og fram kom í frétt blaðsins í síðustu viku. Sveitarfélögin ellefu eru Sauðárkrókskaupstaður, Skefilsstaðahreppur, Skarðshreppur, Staðarhreppur, Seyluhreppur, Lýtingsstaðahreppur, Rípurhreppur, Viðvíkurhreppur, Hólahreppur, Hofshreppur og Fljótahreppur.
Meira
MARGRÉT Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, vill ganga lengra en meginhluti þingflokksins í álagningu auðlindagjalds. Í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í gær sagði hún að gjaldið ætti ekki aðeins að standa straum af rannsóknum heldur mætti í sumum tilfellum einnig nota það til að stuðla að réttlátri skiptingu arðsins,
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri tók á borgarstjórnarfundi í gær undir þá yfirlýsingu Árna Sigfússonar, oddvita sjálfstæðismanna, að til þess að fá raunhæfan samanburð á fjárhagsstöðu borgarinnar á milli ára og samanburð á fjárhagsstöðu milli sveitarfélaga þyrfti að ræða málin á grundvelli samstæðureiknings borgarinnar í stað þess að leggja stöðu borgarsjóðs til grundvallar.
Meira
SUÐURSKAUTSFARARNIR Ingþór Bjarnason og feðgarnir Ólafur Örn Haraldsson og Haraldur Örn Ólafsson eru nú komnir til borgarinnar Punta Arenas syðst í Chile. Þeir fara með flugvél til búða á Suðurskautslandinu á laugardag og leggja væntanlega upp í sextíu daga göngu um 1.200 km leið á Suðurpólinn eftir helgi.
Meira
HINN árlegi basar Kvenfélags Grensássafnaðar verður haldinn laugardaginn 8. nóvember í Grensáskirkju og hefst kl. 14. Á boðstólum er úrval góðra gripa m.a. handavinnu sem Kvenfélagskonur og velunnarar hafa gefið á basarinn. Jafnhliða basarnum er selt kaffi og meðlæti á sanngjörnu verði, segir í fréttatilkynningu.
Meira
FRUMVARP til laga um húsaleigubætur er í burðarliðnum og standa vonir til þess að það verði lagt fram í ríkisstjórn mjög fljótlega og fari eftir það til þingflokka ríkisstjórnarinnar áður en það verður lagt fram á Alþingi. Frumvarpið þarf að afgreiða fyrir áramót, því ákvæði er í núgildandi lögum um að þau beri að endurskoða á árinu 1997.
Meira
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær sýknu Sjúkrahúss Akraness við kröfu kærunefndar jafnréttismála um að við ráðningu karlmanns í stöðu skrifstofumanns hjá sjúkrahúsinu hefði verið brotið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að það væri rangt að byggja upp hindranir í vegi þess að Ísland geti sótt um aðild að Evrópusambandinu í framtíðinni, sjái þjóðin ástæðu til þess. Hann segir aðild Íslands að Schengen-vegabréfasamstarfinu, styrkingu EES-samstarfsins, aukið pólitískt samstarf við ESB og breytingar innan NATO munu auðvelda það að taka slíka ákvörðun, komi til slíks.
Meira
ENGIN umsókn hefur borist félagsmálaráðuneytinu um atvinnuleyfi fyrir erlenda iðnaðarmenn vegna smíði hreinsivirkis álvers Norðuráls á Grundartanga. Nýlega var greint frá því í Morgunblaðinu að einn undirverktaka við byggingu álversins, ABB, hefði ásamt Norðuráli sótt um atvinnuleyfi fyrir 60 rúmenska járniðnaðarmenn til að reisa hreinsivirki við álverið,
Meira
EVRÓPUMÁL og varnar- og öryggismál voru helztu deilumálin í umræðum um ræðu og skýrslu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra á Alþingi í gær. Margir höfðu orð á því að deilurnar, einkum um varnarmálin, væru ekki svipur hjá sjón miðað við það, sem gerðist á dögum kalda stríðsins, en þingmenn skiptust þó á ásökunum um að þessi eða hinn kæmist ekki upp úr fari kalda stríðsins.
Meira
FIMMTA hjólabrettamót Týnda hlekksins verður haldið laugardaginn 8. nóvember í nýrri innanhússaðstöðu Brettafélags Reykjavíkur að Draghálsi 6. Mótið hefst kl. 15 og kostar þátttakan 300 kr. Skráning keppenda hefst kl. 14. Vegleg verðlaun verða í boði og óvæntar uppákomur.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hafnaði í vikunni frávísunarkröfu Eggerts Haukdal, oddvita hreppsnefndar Vestur-Landeyjahrepps, vegna meiðyrðamáls sem höfðað var á hendur honum. Eggerti var stefnt vegna ummæla hans í bréfi til félagsmálaráðuneytisins 24. febrúar sl. Stefnendur eru Haraldur Júlíusson hreppstjóri, Akurey, og Svanborg Eygló Óskarsdóttir framkvæmdastjóri, Skeggjastöðum.
Meira
AGLOWSAMTÖKIN á Akureyri halda fund næstkomandi mánudagskvöld, 10. nóvember, kl. 20 í félagsmiðstöðinni Víðilundi 22. Ræðumaður verður sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Fjölbreyttur söngur og kaffihlaðborð, þátttökugjald er 300 krónur.
Meira
GUÐMUNDUR H. Garðarsson fyrrverandi alþingismaður var kjörinn fyrsti formaður samtaka eldri sjálfstæðismanna á stofnfundi samtakanna á Hótel Sögu í gærkvöldi og Salome Þorkelsdóttir fyrrverandi forseti Alþingis var kjörinn varaformaður. Ágúst Hafberg formaður undirbúningsnefndar benti á í upphafi fundar að staða eldri borgara væri í ólestri.
Meira
SJÓVÁ-Almennar hafa bryddað upp á nýjum leiðum í umferðarfræðslu og ökukennslu með útgáfu margmiðlunardisks fyrir verðandi ökumenn og aðra sem vilja hressa upp á kunnáttuna. Vinnsla disksins tók 18 mánuði og voru ungmenni 16-20 ára höfð með í ráðum. Diskurinn var gefinn út í síðustu viku en handritshöfundur er Einar Guðmundsson fræðslustjóri.
Meira
NÝR hafnsögubátur Vestmannaeyinga var settur á flot við Skipalyftuna í Vestmannaeyjum í gær. Þetta mun vera fyrsta nýsmíði Skipalyftunnar og fyrsta stálskipið, sem smíðað er í Vestmannaeyjum og verður, að sögn Ólafs Kristinssonar hafnarstjóra öflugasta björgunarskip okkar, að frátöldum varðskipunum. Stefnt er að því að skipið verði afhent 12.
Meira
HEIMSFERÐIR fljúga tvisvar í viku til London og hafa í októbermánuði flutt 1.200 farþega þangað. Hefur Peach flugfélagið annast þetta flug fyrir Heimsferðir með einni af Boeing 737 flugvélum sínum.
Meira
KVENFÉLAGIÐ Hlíf heldur bingó í starfsmannasal KEA í Sunnuhlíð á sunnudag, 9. nóvember og hefst það kl. 15. Margir veglegir vinningar eru í boði, s.s. flugfar með Íslandsflugi, leikhúsmiðar og fleira. Að vanda rennur allur ágóði til styrktar tækjakaupum fyrir barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Meira
HÚNVETNINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík verður 60 ára þann 17. febrúar 1998. Þeirra tímamóta verður minnst með fjölbreyttum hætti. Félagið er nú að taka í notkun nýtt félagsheimili í Skeifunni 11 í Reykjavík og um leið að hefja öflugt vetrarstarf.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Fiskmark hf. í Þorlákshöfn til að greiða Borgey hf. á Hornafirði 450 þúsund krónur í björgunarlaun. Hvanney SF, bátur Borgeyjar, dró Jón Klemenz ÁR, bát Fiskmarks, til hafnar í júlí 1994 eftir að net fór í skrúfu Jóns Klemenz. Útgerðirnar deildu um laun fyrir aðstoðina og hvort um björgun úr yfirvofandi hættu hefði verið að ræða.
Meira
IAN Goddard, meðhöfundur skýrslu þar sem fullyrt var að bandaríski flotinn hafi skotið niður Boeing 747 þotu TWA flugfélagsins, hefur tjáð bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN að sú ásökun hafi verið "fífldjörf og mistök".
Meira
BRESKI heimspekingurinn Sir Isaiah Berlin lést sl. miðvikudagskvöld, að því er fram kom í tilkynningu frá Oxfordháskóla í gær. Berlin var 88 ára og hafði átt við veikindi að stríða. Berlin starfaði lengst af við Oxfordháskóla og var kennari við All Souls College þar. Hann fæddist í Ríga, höfuðborg Lettlands, 1909 og fluttist til Bretlands tíu árum síðar.
Meira
AMTSBÓKASAFNIÐ á Akureyri tekur þátt í norrænni bókasafnsviku, Í ljósaskiptunum sem hefst næstkomandi mánudag, 10. nóvember, og stendur til 16. nóvember. Á safninu verður sýning á gjöfum frá vinabæjum Akureyrar, á norrænum frímerkjum úr safni Kristins Hólm og einnig verða sýndar norrænar bækur, myndir og tónlist kynnt.
Meira
ELÍN Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona og Hólmfríður Sigurðardóttir píanóleikari halda tónleika á morgun, laugardag kl. 16, í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli og laugardaginn 15. nóvember í Selfosskirkju. Flutt verður efni af nýútkomnum hljómdiski þeirra Elínar Óskar og Hólmfríðar, "Söngperlur", með íslenskum og norrænum sönglögum ásamt ítölskum óperuaríum.
Meira
KÍNVERSK-íslenska menningarfélagið hefur opnað heimasíðu á veraldarvefnum. Þar er að finna upplýsingar um starfsemi félagsins og tengingar til ýmissa miðla sem dreifa upplýsingum um kínversk málefni, jafnt kínversk netföng sem annarrar þjóða. Ritstjóri heimasíðunnar er Emil Bóasson.
Meira
KLAKAKVINTETTINN heldur tónleikar í Safnahúsinu á Húsavík í kvöld, föstudagkvöldið 7. nóvember, kl. 20.30 og í Deiglunni á Akureyri laugardaginn 15. nóvember kl. 17. Hljóðfæraleikarar eru fimm, Anton Fournier, þverflauta, Jacqueline FitzGibbon, óbó, Björn Leifsson, klarínett, Pál Barna Szábo, fagott og Laszló Czenek, franskt horn. Þau leika öll í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Meira
Reuters Konur komust ekki á þing SAUTJÁN kvenframbjóðendur í jórdönsku þingkosningunum strengdu þess heit að halda áfram baráttu sinni eftir að engin þeirra náði kjöri og eini kvenþingmaður Jórdaníu, Toujan al-Faisel, féll út af þingi.
Meira
Ranghermt var í grein um stöðu bolfiskvinnslunnar í blaðinu í gær að hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hefðu verið gerðir samningar um breytt vinnutímafyrirkomulag og bónuskerfi. Rétt er að Ísfélagið hefur fengið nýja flæðilínu,
Meira
Í TILEFNI af 10 ára afmæli Mosfellsbæjar verður haldin listahátíð í Gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ 8. og 9. nóvember. Þar munu listamenn á aldrinum 220 ára bjóða upp á myndlist, tónlist, leiklist, dans og bókmenntir. Hátíðin stendur frá kl. 1418 báða dagana.
Meira
NEFND á vegum dómsmálaráðuneytisins skilar innan skamms frumvarpi til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, þar sem kveðið verður á um viðurlög við tölvubrotum. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra tilkynnti þetta á dómsmálaþingi í gær.
Meira
UMSJÓNARFÉLAG einhverfra stendur í tilefni 20 ára afmælis félagsins fyrir málþingi um einhverfu undir nafninu "Hér leynist fólk". Málþingið verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnudaginn 9. nóvember nk. kl. 13. Þingið er opið almenningi. Einhverft fólk og aðstandendur þess munu flytja erindi og segja frá reynslu sinni.
Meira
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL: Sunnudagaskóli verður í Möðruvallakirkju næstkomandi sunnudag, 9. nóvember, kl. 11. Umsjón annast Bertha Bruvík. Sara Helgadóttir leikur á gítar og leiðir söng. Foreldrar/aðstandendur eru hvattir til að mæta með börnum sínum.
Meira
Á HÆÐ við Yangtze-fljót í Kína getur að líta skilti þar sem varað er við miklum hamförum. "177 metrar Þriggja gljúfra flóðalína" stendur þar og er átt við hvar yfirborð gríðarstórs uppistöðulóns verður eftir að fljótið hefur verið stíflað.
Meira
DÓMSMÁLAÞINGIÐ er haldið á vegum Dómarafélags Íslands, Sýslumannafélags Íslands og dómsmálaráðuneytis. Það stendur í tvo daga. Í gær hélt Jörgen Pind, prófessor í sálfræði, erindi um mat á sannleiksgildi vitnisburðar og Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun,
Meira
GAUKUR Jörundsson, umboðsmaður Alþingis, verður að líkindum dómari við nýjan Mannréttindadómstól Evrópu, sem tekur til starfa í Strassborg 1. nóvember á næsta ári. Íslensk yfirvöld tilnefndu þrjú hugsanleg dómaraefni, eins og ætlast var til, en mæltu jafnframt með að Gaukur yrði fyrir valinu.
Meira
FLUGSTJÓRINN sem nauðlenti Airbus A-340 þotu breska flugfélagsins Virgin með bilaðan hjólabúnað sl. miðvikudagskvöld er Bretlandsmeistari í listflugi í ár. Samstarfsmenn hans segja hann "fjörugan og glaðbeittan", og talsmaður flugfélagsins sagði að nauðlendingin hafi verið "skólabókardæmi" um hvernig fara ætti að. Sjálfur sagði flugstjórinn, Tim Barnby, að þetta "tilheyrði starfinu".
Meira
ELLEFU vélsleðar grófust undir tveggja metra snjólagi á Mýrdalsjökli í óveðri sem gekki yfir á sunnudag. Ferðalangarnir sem þar voru á ferð voru níu og hálfa klukkustund að ganga og aka leið sem annars er farin á hálftíma. Í vikunni hefur verið unnið að því að grafa vélsleðana upp og höfðu tíu sleðar fundist í gær.
Meira
NÝTT fiskvinnsluhús sem er að hálfu í eigu Þormóðs ramma á Siglufirði og Granda hf. í Reykjavík var vígt í gær í Guyamas í Mexíkó að viðstöddum æðsta yfirmanni sjávarútvegsmála í landinu. Að vígslunni lokinni var undirritaður samningur um að Sölumiðstöð hraðfystihúsanna, SH, tæki að sér markaðssetningu og sölu á öðrum afurðum fyrirtækisins en rækju.
Meira
KOMINN er til landsins Renault Williams Formula 1 kappakstursbíll sem sýndur verður hjá Renault-umboðinu, Bifreiðum og landbúnaðarvélum, um helgina. Stendur sýningin milli kl. 10 og 17 á laugardag og 12 og 17 á sunnudag. Renault Williams bíllinn vegur aðeins 600 kg með ökumanni. Hann er með 700 hestafla vél sem vegur 121 kg og er stór hluti hennar úr áli.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra greindi frá því í umræðum um utanríkismál á Alþingi í gær að formlegur samningur Íslands og Danmerkur, fyrir hönd Grænlands, um mörk lögsögu Íslands og Grænlands yrði undirritaður í Helsinki í næstu viku.
Meira
ÞÓRARINN E. Sveinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar lagði á fundi bæjarráðs í gær fram tillögu um að endurvekja tengsl milli Akureyrar og Gimli í Kanada. Í ljósi umræðu um aukin samskipti við Vesturheim og afmælishald um aldamótin lagði Þórarinn til að bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar yrði falið að kanna með hvaða hætti megi endurvekja tengsl vinabæjanna Akureyrar og Gimli.
Meira
Þórshöfn- Hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. er allt í fullum gangi en þar er nú unnið allan sólarhringinn við síldarfrystingu og pökkun. Búið er að vinna 1.000 tonn í október en að september meðtöldum er magnið um 1250 tonn. Af tilefninu bauð Hraðfrystistöðin starfsfólki sínu í vinnslunni upp á tertu með áletruninni 1000 tonn, og að vonum var tertan vel þegin í kaffistofunni.
Meira
SKAUTAFÉLAG Akureyrar varð 60 ára fyrr á árinu en minnist afmælisins með hófi sem haldið verður í matsal Garðræktarinnar við Eyjafjarðarbraut á sunnudag, 9. nóvember, kl. 15. Jón Hjaltason sagnfræðingur flytur ágrip af sögu félagsins og eldri félagar verða heiðraðir. Ársþing Skautasambands Íslands verður haldið á Akureyri á morgun, laugardag.
Meira
BROTIST var inn í félagsheimilið Festi í Grindavík í fyrrinótt og stolið þar miklum verðmætum, m.a. margs konar hljómtækjum, og svo til allar hurðir í húsinu brotnar og skemmdar. Er talið að um tveggja til þriggja milljóna króna tjón sé að ræða.
Meira
SAMSTARFSYFIRLÝSING Akureyrarlistans, lista jafnaðarstefnu, félagshyggju og kvenfrelsis, sem Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn og Kvennalisti standa að með stuðningi Grósku um sameinað framboð til bæjarstjórnar í kosningum næsta vor, var undirrituð í gær.
Meira
NORSKA ríkisstjórnin heyr nú harða baráttu við að afla tveimur af stærstu kosningamálum sínum fylgis á þingi, þess að hækka ellilífeyri þeirra sem lægstar fá greiðslurnar um sem svarar til 10.000 ísl. kr. á mánuði, og að greiða foreldrum sem vilja vera heima og gæta barna sinna 36.000 ísl. kr. á mánuði.
Meira
Svíar bundnir EMUaðild með Maastricht Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SVÍAR geta ekki túlkað upp á eigin spýtur hvort þeir verði með í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, EMU.
Meira
LAGT hefur verið fram á Alþingi frumvarp til stjórnskipunarlaga um að nýjum málsgreinum verði bætt við stjórnarskrá lýðveldisins er taka eigi af öll tvímæli um eignarrétt á náttúruauðæfum og landi. Er í frumvarpinu m.a.
Meira
NEMENDAFÉLAG Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi heldur sína árlegu Tónlistarkeppni föstudaginn 7. nóvember. Átta hljómsveitir úr skólanum bítast um sigurinn í Bíóhöllinni. Hljómsveitirnar sem taka þátt nefnast Vítamín, Mold, Pækurnar, Heroin child, Fresh, Fleja sjer, Titty Twisters og Spartakus. Hver hljómsveit spilar þrjú lög og skal a.m.k. eitt þeirra vera frumsamið.
Meira
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um tveggja ára fangelsi yfir 27 ára gömlum manni, Rafni Benediktssyni. Stúlkan sem kærði nauðgunina í júní á síðasta ári var tæplega 17 ára þegar atburðurinn gerðist. Hún hitti manninn í miðbæ Reykjavíkur að nóttu til og þáði far með honum. Hann ók hins vegar upp í Heiðmörk, þar sem hann kom fram vilja sínum.
Meira
Flateyri-Sunnudaginn 26. október s.l. var minnst þess að tvö ár væru liðin frá hinni örlagaríku nótt, þegar snjóflóð féll á Flateyri og 20 manns týndu lífi í þeim hörmungum sem því fylgdu.
Meira
TÖLVUNEFND hefur í bréfi til Ríkisendurskoðunar óskað eftir að stofnunin gæti meðalhófs í beitingu heimilda sinna til aðgangs að sjúkraskrám, virði rétt sjúklinga til að njóta friðhelgi um einkalíf sitt og forðist að raska því trúnaðarsambandi sem ríkir á milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna.
Meira
TÖLVUNEFND ætlar að heimsækja Skattanefnd Reykjanesbæjar og fara yfir hvernig staðið er að upplýsingaöflun varðandi það hlutverk nefndarinnar að fylgjast með samhengi þeirra upplýsinga sem fram koma í skattframtölum og lífsmáta þeirra sem í hlut eiga.
Meira
VENTILL í skólpdælustöðinni við Laugarnes í Reykjavík bilaði snemma í gærmorgun með þeim afleiðingum að 10-15 cm vatn flæddi í nokkur hús við Laugarnesveg. Ekki var þó um að ræða skólpvatn heldur hreint vatn en dælt var úr nokkrum íbúðum og er tjón ekki talið stórvægilegt.
Meira
FLESTIR helstu forystumenn verkalýðshreyfingarinnar í Alþýðubandalaginu standa að baki tillögu sem lögð var fram á landsfundi flokksins í gær um að formanninum og framkvæmdastjórninni skuli falið að ljúka viðræðum um sameiginlegt framboð félagshyggjuflokka fyrir lok júní 1998. Guðmundur Þ.
Meira
EVRÓPUÞINGIÐ hvatti í gær belgíska dómarann Melchior Wathelet, sem situr í Evrópudómstólnum, til að segja af sér. Wathelet er fyrrverandi dómsmálaráðherra Belgíu og ákvað í embættistíð sinni að láta barnaníðinginn Marc Dutroux lausan. Dutroux var handtekinn að nýju í ágúst sl. en lík fjögurra stúlkna hafa fundist í húsi hans.
Meira
VIÐRÆÐUR um vaktavinnufyrirkomulag við rækjuvinnslu á Vestfjörðum hafa legið niðri síðustu tvo mánuði og á meðan heldur Básafell á Ísafirði uppi 16 stunda vinnudegi og greiðir helming vinnudagsins með fullu yfirvinnukaupi. Arnar Kristinsson framkvæmdastjóri segir að rækjuvinnslur á Norðurlandi hafi samið um vaktavinnufyrirkomulag og þær standi mun betur að vígi en þær sem eiga eftir að semja.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt í tveimur málum, þar sem tekist var á um hvort skattyfirvöldum hefði verið heimilt að endurákvarða skatt fyrirtækja sex ár aftur í tímann, eftir að úrskurðað hafði verið um að eftirlaunaskuldbindingar fyrirtækjanna, aðrar en greiðslur í lífeyrissjóði, væru ekki frádráttarbærar frá skatti. Hæstiréttur taldi að skattyfirvöld hefðu verið í fullum rétti við ákvarðanir sínar.
Meira
ELLEFU snjósleða fennti í kaf uppi á Mýrdalsjökli í óveðrinu sem gerði á sunnudag og hefur verið unnið að því í vikunni að finna þá og grafa upp undan tveggja metra þykku snjólagi. Tíu sleðar höfðu fundist í gær og var þá unnið að því að finna þann ellefta.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra flutti í gær á Alþingi reglubundna yfirlitsræðu um utanríkismál. Ræðan, ásamt tæplega 60 blaðsíðna skýrslu ráðherra, sem dreift var í gær, er gott yfirlit um áherzluatriði í íslenzkri utanríkisstefnu, starf Íslands í alþjóðastofnunum og stöðu utanríkis- og alþjóðamála yfirleitt.
Meira
TILRAUN til að kæra Bill Clinton Bandaríkjaforseta fyrir að misnota aðstöðu sína og fyrir að koma í veg fyrir að réttlætið nái fram að ganga, hófst á Bandaríkjaþingi á miðvikudag. Það eru átján þingmenn repúblikana sem standa að henni með Bob Barr í broddi fylkingar en Barr óskaði efir því í gær að fulltrúadeildin hæfi rannsókn á embættisfærslum forsetans.
Meira
PÉTUR H. Blöndal alþingismaður leggur í næstu viku fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að skipta árlegum afnotarétti nytjastofna Íslandsmiða á milli íbúa landsins. Að mati Péturs mun þetta leiða til þess að verð á aflaheimildum lækkar. Komið verði á móts við réttlætissjónarmið. Þessi aðferð auki hins vegar ekki ríkisumsvif.
Meira
MIKILL meirihluti Þjóðverja telur að þjóðin sé að forheimskast, samkvæmt skoðanakönnun á sjónvarpsstöðinni RTL í gær. Átján þúsund manns hringdu inn svar sitt við spurningunni "Eru Þjóðverjar að verða heimskari?" sem borin var fram í hádegisfréttatíma RTL í kjölfar frásagnar af ræðu sem Roman Herzog, forseti Þýzkalands, flutti.
Meira
AÐ MINNSTA kosti 313 manns létust og 2.200 er enn saknað eftir að fellibylurinn Linda gekk yfir Víetnam um síðustu helgi. Vitað er að 1.978 smábátar fórust við strendur landsins og til viðbótar er óvíst um örlög 1.618 báta. Vitað er um 2.234 manns sem komust lífs af er bátarnir sukku.
Meira
Í TILEFNI af því að 25 ár eru liðin frá því að samstarfsaðili Ferðaskrifstofu stúdenta, breska ferðaskrifstofan Encounter Overland, fór sína fyrstu safaríferð um Suður-Ameríku, munu ferðaskrifstofurnar verða með sérstaka ferðakynningu á ævintýraferðum Encounter Overland á Hótel Loftleiðum sunnudaginn 9. nóvember kl. 1418.
Meira
Í STAKSTEINUM í dag er litið í greinar úr þremur erlendum blöðum um ólík málefni: tölfræði ESB, mannréttindi í Kína og styttingu vinnuvikunnar í Frakklandi. Hlutleysi Eurostat Í ÞÝSKA tímaritinu Der Spiegel var nýlega fjallað um tölfræði Evrópusambandsins, en í Lúxemborg er rekin stofnunin Eurostat, er tekur saman hagtölur fyrir ESB.
Meira
VANDI LANDVINNSLUNNAR EIÐAR og vinnsla hafa lengi verið hornsteinar atvinnu og afkomu fólks í sjávarplássum. Svo er enn, þrátt fyrir gífurleg umskipti í sjávarútvegi síðustu áratugi. Takmarkaðar aflaheimildir og tækniþróun í sjávarútvegi hafa knúið á um fækkun skipa og fækkun vinnslustöðva.
Meira
BRESKU prinsarnir Karl og Edward gera víðreist þessa dagana. Opinberri heimsókn Karls til Suður-Afríku lauk í gær og hefur hún vakið gríðarlega athygli. Meðal annars fyrir þær sakir að Harry, sonur hans, lagði leið sína þangað með föður sínum og heilsuðu þeir upp á Nelson Mandela og Spice Girls.
Meira
DANSHÖFUNDURINN Jochen Ulrich er einn af fremstu nútímadanshöfundum Þjóðverja. Hann starfar sem listdansstjóri Tanz-Forum GMBH í Köln. Trúlofun í St. Dómingó byggist á samnefndri smásögu þýska skáldsins Henrich von Kleist. Leikrit von Kleists eru með þeim mest leiknu í Þýskalandi en Trúlofun í St.
Meira
FYRIRSÆTUKEPPNI fyrir karlmenn verður haldin í Íslensku Óperunni í kvöld í samvinnu við tímaritið Heimsmynd. Keppnin heitir "Mens Model Look" og er íslensk að uppruna og var haldin í fyrsta skiptið í fyrra. Tilgangur hennar er að gefa karlmönnum tækifæri á að koma sér á framfæri sem fyrirsætur með því að kynna þá fyrir nokkrum erlendum módelskrifstofum.
Meira
SÝNING á verkum Ragnars Erlendssonar er opnuð í dag í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi á vegum Félagsstarfsins þar. Ragnar er heyrnarlaus en síðan haustið 1996 hafa meðlimir úr Félagi heyrnarlausra verið þátttakendur í Félagsstarfinu. Ragnar er 86 ára og er þetta fyrsta einkasýning hans.
Meira
GUNNAR Í. Guðjónsson myndlistarmaður opnar sýningu á morgun, laugardag, í Listhúsi 39, Strandgötu 39, Hafnarfirði. Sýningin er opin virka daga frá kl. 1018, laugardaga kl. 1218 og sunnudaga kl. 1418. Sýningin stendur til og með 23. nóvember.
Meira
ÉG HAFÐI ýmsar væntingar þegar ég fór að sjá nýju dönsku kvikmyndina "Pusher" en aldrei bjóst ég við því að ég ætti eftir að berjast við að halda mér vakandi, en sú varð raunin. Glymjandi hljóðrásin, sveiflandi myndavélin og þeytingur um Kaupmannahöfn eftir peningum og eiturlyfjum dugði ekki til þess að kveikja áhuga.
Meira
Opið mánudaga föstudaga 12-18 Laugardaga 1016. Lokað sunnudaga. Til 10. nóvember. Aðgangur ókeypis. MÁLARINN Anna Sigríður Gunnlaugsdóttir veltir þeirri brennandi spurningu fyrir sér í verkum sínum, hvort guð sé kona. Hún er að skoða guðsímyndina í formi mildrar ástríkrar en sterkrar konu.
Meira
ÞEGAR mann (James Spader) skolar uppá afskekkta ströndina hjá listamanninum Söru (Anne Brochet), finnst henni sem hún hafi himin höndum tekið. Konum hefur haldist illa á körlum í hennar ætt svo hún grípur til þess ráðs að segja hinum fótbrotna og minnislausa manni að hann sé staddur á afskekktri eyju.
Meira
Á AFSKEKKTU landsvæði í Rússlandi virðist árekstur milli tveggja járnbrautarlesta óumflýjanlegur. Önnur lestin er farþegalest en hin er flutningalest hlaðin kjarnavopnum sem gera á óvirk samkvæmt START afvopnunarsáttmálanum. Lestirnar lenda í hörðum árekstri og kjarnorkusprenging eyðir stóru landsvæði á þessum afskekkta stað.
Meira
KYNNING á hönnun í Gallerí Glugga, Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 14, verður dagana 8.16. nóvember. Gallerí Gluggi er samstarfsverkefni Kirsuberjatrésins og Forms Íslands og er hugmyndin að í galleríinu verði kynnt framsækin íslensk hönnun. Fyrsta kynningin í Gallerí Glugga er á handþæfðum og handlituðum treflum úr merinóull og silki.
Meira
SIGURJÓN B. Hafsteinsson, forstöðumaður Ljósmyndasafns Íslands, heldur fyrirlestur mánudaginn 10. nóvember kl. 12.30 og fjallar um það hvernig landslagsljósmyndir eru samofnar þjóðernisvitund Íslendinga og eru bæði ástartjáning til fósturlandsis og áhrifaríkur miðill í mótun og viðhaldi þjóðernisvitundar. Fyrirlestur í fyrirlestrarsalnum Barmahlíð, Skipholti 1, verður miðvikudaginn 12.
Meira
HILDUR Hákonardótitr leiðir gesti um sali Listasafns Árnesinga, Selfossi, sunnudaginn 9. nóvember og talar um myndir Jóhanns Briems á sýningunni "Perlur úr Eystrihreppi" sem stendur yfir. Hildur mun bæði fjalla um myndbyggingu og litameðferð í myndum Jóhanns og einnig hvernig StóriNúpur, æskuheimili Jóhanns, er túlkað á mismunandi máta af þremur listamönnum: Jóhanni,
Meira
JACK Lawrence (Billy Crystal) gerir það gott sem lögmaður í Los Angeles, en þar býr hann vel ásamt eiginkonu sinni og fallega bílnum sínum. Hann skortir í raun og veru ekkert nema kannski svolitla þolinmæði. Dale Putley (Robin Williams) hefur hins vegar staðið á hengiflugi örvæntingarinnar svo lengi að hann er farinn að kunna ágætlega við útsýnið þaðan.
Meira
JÓN Bergmann Kjartansson opnar sýningu á málverkum í 20 mí kjallara Vesturgötu 10a, á morgun, laugardag kl. 1618. Jón er fæddur í Reykjavík árið 1967. Hann lauk B.A.prófi úr listaakademíunni AKI árið 1995.
Meira
Leikstjóri: Alexander Payne. Aðalhlutverk: Laura Dern, Kurtwood Smith, Swoosie Kurtz, Mary Kay Place, Kelly Preston, Tippi Hedren og Burt Reynolds. Miramax. 1996. NÝ gamanmynd Alexanders Paynes um dóphausinn og sniffarann Rut er býsna skemmtileg háðsádeila á öfgahópa í Bandaríkjunum og tekur sem dæmi þá sem láta fóstureyðingarmál til sín taka.
Meira
MYNDLISTARKONAN Jónína Magnúsdóttir "Ninný" opnar sína fjórðu einkasýningu samtímis á alnetinu og í vinnustofu sinni á Hæðarbyggð 24 í Garðabæ. Ninný lauk námi frá Myndlista og handíðaskóla Íslands árið 1978. Þá hefur hún stundað nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og hjá dönsku listakonunni Elly Hoffmann.
Meira
Í NÓVEMBER verður efnt til norrænna haustmenningardaga í Helsingfors og verða þá á dagskrá ýmsir menningarviðburðir og ólíkir. Mánudaginn 10. nóvember verður helgaður "Orðinu í norðri. Þá verður kveikt á kertum í bókasöfnum borgarinnar og í skini kertaljósanna lesa rithöfundar og leikarar upp, m.a. kafla úr Egils sögu Skallagrímssonar.
Meira
ÆVINTÝRI lífs míns er eftir Ármann Kr. Einarsson og er endurminningabók. Í kynningu segir m.a.: "Þessi bók er ekki ævisaga í venjulegum skilningi. Hún er í stórum dráttum kynning á lífi hans og ritstörfum sem lengst af hefur verið samofið og samfléttað. Söguþáttunum er skipt í rúmlega hundrað kafla.
Meira
AGGA Gagg: Með skollum á Ströndum er eftir Pál Hersteinsson. Bókin greinir frá dvöl hans norður í Ófeigsfirði á Ströndum árin 1978 og 1979, þar sem hann dvaldist að mestu leyti einn við rannsóknir á vistfræði tófunnar.
Meira
GÓÐRA vina fundur minningar Kristins Hallssonar söngvara er eftir Pál Kristin Pálsson. Í kynningu segir "Kristinn Hallsson er örugglega einn af skemmtilegustu mönnum þjóðarinnar.
Meira
VEGURINN til Hólmavíkurer eftir Óskar Árna Óskarsson. "Sól í Hrútafirði, varðskip lónar inni í þröngum firðinum og vegurinn til Hólmavíkur angar af ævintýrum eins og ilmvatn á fögrum konuhálsi. En þangað er ég víst ekki að fara." Vegurinn til Hólmavíkur er dagbók ferðalangs.
Meira
Í TILEFNI af flutningi Tónlistarskóla Húsavíkur í nýtt húsnæði í september sl. verður "opið hús" í skólanum á morgun, laugardag, frá kl. 1418. Tónlistarskólinn býður upp á fjölbreytta dagskrá: Þórunn Harðardóttir og Jóhanna Gunnarsdóttir leika fjórhent á píanó. Ávarp flytja Árni Sigurbjarnason, skólastjóri og Einar Njálsson, bæjarstjóri.
Meira
AUSTURRÍSKI organleikarinn dr. Orthulf Prunner heldur orgeltónleika í Dómkirkjunni á morgun, laugardag, kl. 17. Á efnisskrá hans verða eingöngu orgelverk eftir J.S. Bach. Mun hann leika stórar prelúdíur og fúgur, sálmaforleiki og tríósónötu. Orthulf Prunner starfaði um áratug sem organleikari við Háteigskirkju í Reykjavík. Á þeim árum hélt hann marga einleikstónleika.
Meira
KÓR Íslensku óperunnar heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun, laugardag kl. 15. Á efnisskrá eru m.a. kirkjuleg verk sem kórinn flutti á Ítalíu í sumar, en þangað fór kórinn í júní sl. Kórinn hélt tvenna tónleika í Óperunni áður en hann hélt af landi brott og flutti eingöngu "veraldlegan hluta" tónleikadagskrárinnar.
Meira
ÁLAFOSSKÓRINN og Íslandsbankakórinn halda sameiginlega tónleika í Grensásskirkju á morgun, laugardag kl. 16. Á efnisskránni eru bæði innlend og erlend lög sem kórarnir fluttu á síðasta starfsári. Stjórnandi beggja kóranna er Helgi R. Einarsson og undirleikari er Guðni Guðmundsson. Báðir kórarnir gerðu víðreist á síðasta starfsári.
Meira
Flutt var sú níunda eftir Gustav Mahler. Stjórnandi var Petri Sakari Fimmtudagurinn 6. nóvember, 1997. TÓNLEIKARNIR hófust á því að hljóðfæraleikarar stóðu upp úr sætum sínum og gengu í salinn til áheyrenda og útdeildu blaði, stíluðu til áheyrenda, með ósk um stuðning þeirra í kjarabaráttu hljóðfæraleikara.
Meira
SNÆFELLINGAKÓRINN í Reykjavík heldur tónleika Í Fella og Hólakirkju á morgun, laugardag kl. 16. Á efnisskrá eru meðal annars íslensk og slóvensk þjóðlög. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson. Undirleikari er Péter Máté. Fyrir nokkru fór kórinn í söngferð um Ungverjaland og Slóvakíu. Kórinn kom m.a.
Meira
Í LISTASAFNI Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi hefur verið opnuð sýning vetrarins, sem ber heitið Svífandi form. Sýnd eru 26 verk eftir Sigurjón sem spanna tímabilið 19371981, og hafa nokkur þeirra ekki komið fyrir almenningssjónir í áratugi.
Meira
Sýningum lýkur Gallerí Horn NÚ er síðasta sýningarhelgi hjá Sigurveigu Knútsdóttur. Sýningunni lýkur miðvikudaginn 12. október. Galleríið er opið alla daga kl. 1123.30. Sérinngangur gallerísins er þó aðeins opinn kl. 1418.
Meira
Í NORRÆNA húsinu sunnudaginn 9. nóvember kl. 14 verða sýndar tvær margverðlaunaðar sænskar teiknimyndir "Kalles klätterträd" og "Tankar i det blå". "Inni í miðjum bæ á hann Kalli heima og hann er vanur að klifra upp í tré og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Hann hugsar um allt á milli himins og jarðar og auðvitað um hana Emmu." Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Meira
SÖNGTÓNLEIKAR verða haldnir í Félagsheimilinu á Flúðum sunnudaginn 9. nóvember kl. 16 og í Hveragerðiskirkju sama dag kl. 20.30. Karlakór Selfoss, stjórnandi Ólafur Sigurjónsson, undirleikari Helena Káradóttir og Skagfirska söngsveitin í Reykjavík, stjórnandi Björgvin Þ. Valdimarsson, undirleikari Sigurður Marteinsson, syngja lög eftir Björgvin Þ. Valdimarsson.
Meira
Á VEGUM djassklúbbsins Múlans verður Tríó Björns Thoroddsen ásamt Agli Ólafssyni með tónleika í kvöld, föstudag kl. 21. Tríó Björns Thoroddsen hefur verið starfandi um alllangt skeið og hefur t.d. sent frá sér geisladisk, Híf opp. Á þessum tónleikum mun tríóið leika frumsamin lög eftir Björn og Egil.
Meira
Útgerð frá Fjörukránni Húni II nefnist nýendurgerður bátur sem gerður verður út frá Fjörukránni. Það er enginn venjulegur bátur því um borð er bæði veitingastaður og minjasafn. Börkur Gunnarsson skrifar um jómfrúrsiglinguna og Sturlunga nútímans.
Meira
GULLÝ Hanna Ragnarsdóttir vísnasöngvari og lagahöfundur heldur tvenna vísnatónleika í Norræna húsinu. Fyrri tónleikarnir eru á sunnudag kl. 16 og síðari á mánudagskvöld 10. nóvember kl. 20.30. Með Gullý Hönnu leika þeir Keld Andersen á gítar og Søren Christensen á hljómborð og harmóniku. Á tónleikunum verða flutt lög eftir Gullý Hönnu við ljóð eftir m.a.
Meira
ROMAN Polanski barst liðsauki á dögunum þegar konan sem hann var dæmdur fyrir að nauðga fyrir tuttugu árum sagði í sjónvarpsviðtali að Polanski hefði ekki nauðgað henni. "Hann var hvorki ógnandi né vondur við mig. Þetta var ekki nauðgun og mér líður ekki eins og fórnarlambi.
Meira
"TWELFTH Night, Or What You Will" er eitt af gamanleikritum Shakespeares. Það fjallar um tvíburann Violu (Imogen Stubbs) sem villir á sér heimildir og klæðist karlafötum. Gervi hennar kemur ástarmálum aðalpersóna verksins í mikla flækju en af því Þrettándakvöld er gamanleikrit fer allt vel að lokum.
Meira
Að gefnu tilefni Telur biskup þennan flutning biskupsvígslu í aðra kirkju úti í bæ, spyr Borgþór S. Kjærnested, efla einingu safnaðar síns? Í MORGUNBLAÐINU 5. nóvember sl. spyr Þórarinn V. Þórarinsson hvort þetta eigi engan endi að taka.
Meira
JÁ, það þarf oft ekki nema einn til að skipta máli. Þar þarf ekki nema einn til að benda á betri leið til að menn fari eftir því. Það þarf bara einn til að sýna rétta eftirbreytni til að menn sjá að sér en því miður þarf ekki nema einn til að skemma fyrir heilum hóp.
Meira
MIKIÐ er það skemmtilegt þegar maður getur verið ánægður. Og nú er ég ánægð. Ég er ánægð sem fjölskyldumanneskja, móðir, kona og íbúi í Reykjavíkurborg. Já, ég er ánægð með framgang Reykjavíkurlistans í málefnum fjölskyldna, kvenna, barna og unglinga og finnst full ástæða til að hrósa borgaryfirvöldum fyrir manneskjulega forgangsröðun og markvissa framgöngu í stjórnun borgarinnar.
Meira
ÁÐUR en við hjónin eignuðumst fatlað barn, vissum við ekkert um starf þroskaþjálfa, vissum varla að þessi starfsstétt væri til, enda vinna þeir, sem starfa sem slíkir, oftast í kyrrþey, á stofnunum og heimilum fyrir utan líf almennings. Síðan þá eru mörg ár liðin og höfum við í gegnum tíðina dáðst að starfi þeirra, sem er unnið af alúð, þolinmæði og kunnáttu.
Meira
ÞANNIG var eitt sinn kveðið enda þótti sá með fádæmum einfaldur er slíkt ætlaði sér. En í síbreytilegri veröld lenda nú þau orðtök er geyma reynslu kynslóðanna sem óðast á öskuhaug breytinga. Og nú er svo komið, sem flestir vita, að stór hluti þeirra, sem vilja hafa viðurværi sitt af því að draga fisk,
Meira
TILEFNI þessarar greinar er viðtal við formann LÍÚ í Morgunblaðinu með fyrirsögninni "Erum að lenda í verkfalli sem er óleysanlegt" og ummæli hans á aðalfundi LÍÚ. Það er haft eftir formanninum í grein þessari að verkfallsboðun vélstjóra sé mjög alvarlegt mál og svívirðileg.
Meira
Í SÍÐUSTU viku voru til umfjöllunar í fjölmiðlum niðurstöður verðkönnunar sem tekin var í verslunum 30. september sl. Eins og áður er þessi verðkönnun unnin af Neytendasamtökum Íslands í samstarfi við ASÍ og BSRB. Að Neytendasamtökin séu í samstarfi við þessa aðila ætti að vera þeirra styrkur sem felst m.a.
Meira
Á ÞESSU ári, nánar tiltekið 29. maí, voru liðin 50 ár frá hinu hörmulega flugslysi, er varð í Hestfjalli við vestanverðan Héðinsfjörð. Kiwanismenn í Ólafsfirði minntust þessa atburðar á mjög svo virðulegan hátt, með uppsetningu kross á slysstað. Þökk sé þeim fyrir þá framkvæmd.
Meira
BÓKIN Dictionary of Icelandic Composers er nýkomin út. Útgefandi er Akademia Muzyczna im.Frydryka Chopina í Varsjá. Höfundur er dr. Marek Podhajski, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur m.a. vegna kennslu hans við Tónlistarskólann á Akureyri.
Meira
KYNJAVERUR, hið nýja jafnréttindafélag, hefur nú verið stofnað og fór stofnfundur félagsins fram hinn 24. október síðastliðinn. Það var breiður hópur ungs fólks, sem fékk þá hugmynd að koma nefndu félagi á laggirnar með það að markmiði að breyta jafnréttisviðhorfum almennings.
Meira
ALÞINGISHÚS Íslendinga stendur við hlið Dómkirkjunnar í Reykjavík. Landssjóður hugðist, þegar ákveðið var að byggja yfir Alþingi, fyrst fá lóð í Bakarabrekkunni, núverandi Bankastræti. En við það var hætt og landssjóður keypti kálgarð Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara við lærða skólann í Reykjavík, sem náði frá Thorvaldsensstræti að Dómkirkjunni. Fyrir þetta greiddi landssjóðurinn kr. 2.
Meira
Hvað vill Ellert? Ég er fullkomlega sammála Ellert um að leggja beri meiri áherslu á að hlúa að innra starfi, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, og ég tel að sveitarstjórnarmenn séu almennt sammála þessum sjónarmiðum. ELLERT B.
Meira
Niðurrif eða uppbyggileg gagnrýni Sá sem ekki er tilbúinn til að setja sig í spor barna, segir Hildur Hermóðsdóttir, er ófær um að dæma barnabækur af nokkurri sanngirni. GAGNRÝNANDINN getur brugðið sér í flestra kvikinda líki eins og dæmin sanna.
Meira
Á UNDANFÖRNUM mánuðum hafa birst í blöðum greinar um umhverfismál eftir Árna Finnsson, starfsmann Greenpeace-samtakanna. Hefur Árni birt þessar greinar, sem talsmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, en áður fyrr titlaði hann sig talsmann Greenpeace International, eins og kunnugt er. Í blaðagrein, sem birtist í Mbl. þann 23. október sl.
Meira
HVAÐ ER átt við með samkeppni? Á hún ekki að tryggja almenna velferð þannig að hún beinist að bættu viðskiptaumhverfi fyrir fólk? Eða er samkeppnin bundin við það eitt að menn hafi sem jafnasta aðstöðu til að græða peninga og þá skipti ekki máli hvaða áhrif hún hefur á líf og heilbrigði alls almennings? Það eru nefnilega mörg svið þar sem ekki fer saman velferð fólks og peningalegur hagnaður.
Meira
MENNTAMÁLARÁÐHERRANN, Björn Bjarnason, sendir mér "kveðjur" á heimasíðu sinni á Internet, sem dagsett er sunnudaginn 19. október sl. Málið snýst um afstöðu mína til Sjómannaskólahússins sem höfð var eftir mér í Morgunblaðinu laugardaginn 18. október.
Meira
PÉTUR Blöndal alþingismaður skrifar tvær greinar um skattamál, sem birtust í Morgunblaðinu 2. og 3. okt. sl. Til aflestrar eru þær með köflum fróðlegar og býsna skemmtilegar. Víða er ég honum sammála, en velti vöngum yfir öðru. Ef ég man rétt þá held ég hann sé doktor í stærðfræði, og skrifin eru því á fræðilegu plani af og til.
Meira
MBL. BIRTI 14. október sl. þá frétt, að ríkisstjórnin hafi nú til athugunar hvort segja skuli upp "loðnusamningnum" við Noreg, og að þetta verði að gera fyrir lok þessa mánaðar, þar sem að öðrum kosti framlengist hann enn um 4 ár frá og með 1. maí 1998.
Meira
ÞRIÐJUDAGINN 28. október sl. var réttilega haft eftir mér í hádegisfréttum rásar 1 að ég teldi gagnrýni séra Gunnars Kristjánssonar á nýafstöðnu kirkjuþingi á kennimannlegt nám guðfræðideildar Háskóla Íslands að einhverju leyti sprottna af því að hann hefði á sínum tíma ekki fengið stöðu sem hann sótti um við deildina.
Meira
Í SUMAR lauk verkefni sem unnið var af Evrópudeild alþjóðasamtaka félagsráðgjafa og styrkt af Evrópubandalaginu. Verkefnið tók rúmt ár og því lauk með skýrslu sem til er á skrifstofu Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa (SÍF). Viðfangsefnið var félagsleg útskúfun (exclusion) og félagsráðgjöf sem miðar að félagslegri aðlögun (inclusion).
Meira
MARGT getur mönnum nú dottið í hug. Og allt í einu kemur einhver tillaga um það, eins og skrattinn úr sauðarleggnum forðum, að flytja sjómannastéttina á einu bretti í einhvern skála út í bæ. Leggja Sjómannaskólann niður á þeim fallega stað þar sem hann hefur verið og er sómi borgarinnar. Þetta er nú bara hús, segja menn kannski. Það má vera.
Meira
ÞAÐ sem rekur mig að tölvunni til að skrifa bréf í blaðið er ánægja mín með þá djörfu ákvörðun Íþróttadeildar Ríkissjónvarpsins að svara Stöð 2, sem fékk íslenska mótorsportið, og sýna beint frá tímatökum og keppni í formúla 1 kappakstri sl. sumar og haust. Sú íþróttagrein er ein sú vinsælasta af akstursíþróttum í heiminum.
Meira
Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: "Kom til mín!" Kristur tók þig heim til sín. Þú er blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Björn Halldórsson frá Laufási.
Meira
Gabríel Hjaltalín Andrason Þau ljós sem skærast lýsa skína líka glaðast bera mesta birtu og brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og þann dóm enginn skilur.
Meira
Elsku litli vinurinn minn. Ég kveð þig nú með tárum, sorgartárum jafnt sem gleðitárum yfir þeim stutta tíma sem við áttum saman. Þú varst einstakur strákur, og gafst margt gott frá þér sem mun lifa með mér, þar til við hittumst á ný. Ég bið engla alheimsins um að vaka yfir þínum yndislegu foreldrum, Dögg og Andra, fjölskyldu þinni og vinum þínum á þessari erfiðu stundu.
Meira
Elsku Gabríel, þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Þú ert farinn frá okkur eftir stutta dvöl en hún var svo sannarlega dýrmæt fyrir þá sem fengu að kynnast þér. Guð geymi þig eins og við geymum minningar um þig í hjarta okkar. Til eru fræ sem fengu þennan dóm: að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Meira
GABRÍEL HJALTALÍN ANDRÉSSON Gabríel Hjaltalín Andrésson fæddist í Reykjavík 6. júlí 1997. Hann lést á heimili sínu 1. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Dögg Hjaltalín, f. 22.2. 1977, og Andri Úlriksson, f. 13.1. 1977. Útför Gabríels fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Meira
Þegar vinir og samtímamenn hverfa af þessu tilverustigi setur okkur sem eftir sitjum hljóð og á hugann leita minningar frá samskiptum við þann sem burt er kallaður hverju sinni. Á þann veg voru viðbrögð mín er ég fregnaði fráfall vinar míns og fyrrum sveitunga, Guðmundar Ágústssonar.
Meira
Flestir þeir sem hafa komið til Djúpuvíkur á Ströndum eru sammála um þá einstöku náttúrufegurð sem staðurinn skartar. Þeir sem eru bornir og barnfæddir þar taka jafnvel enn dýpra í árinni og telja Djúpuvík og nágrenni öllum stöðum fegurri.
Meira
Elsku afi. Það er ekkert eitt sem kemur í huga okkar er við minnumst þín. Við komum saman og rifjuðum upp þær góðu stundir sem við áttum með þér. Það sem fyrst kemur í hugann eru gönguferðirnar niður að læk, þar sem við gáfum öndunum brauð. Við minnumst þess er við sátum í fanginu á þér og sungum kvæði og hlustuðum á þig segja sögur.
Meira
GUÐMUNDUR PÉTUR ÁGÚSTSSON Guðmundur Pétur Ágústsson var fæddur 11. des. 1912 í Kjós, Árneshreppi, Strandasýslu. Hann lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði 30. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Petrína S. Guðmundsdóttir, f. 1879, d. 1967, og Ágúst Guðmundsson, bóndi í Kjós, f. 1865, d. 1915.
Meira
Kæri langafi, ég kveð þig með þessum orðum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hvíl í friði, langafi. Guðrún Sunna.
Meira
Kveðja frá Brekkubæjarskóla Hanna Sigríður Jóhannsdóttir handmenntakennari við Brekkubæjarskóla er látin eftir langa baráttu við hinn illvíga sjúkdóm krabbameinið. Hanna Sigga, eins og vinir hennar og starfsfélagar kölluðu hana,
Meira
Ástkær bekkjarsystir okkar og vinkona Hanna Sigríður er látin langt um aldur fram eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Á þessari erfiðu kveðjustund sækja að ljúfar minningar sem gott er að muna og þakka. Kynni okkar hófust í Kennaraskólanum þaðan sem við útskrifuðumst úr handavinnudeild árið 1969. Við komum hvert úr sinni áttinni og bárum með okkur ólíka eiginleika og reynslu.
Meira
"Þegar þú ert sorgmæddur, þá skoðaðu hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín." (Úr Spámanninum.) Hanna er dáin. Hún er farin frá okkur til birtunnar og ljóssins, laus við allar þær þjáningar sem heft hafa líkama hennar í langan tíma. Ég sit og horfi inn í ljósið af kertinu sem logar á borðinu hjá mér, og minningarnar streyma um huga minn.
Meira
Litir himinsins voru yndislegir, allavega bleikir, fjólubláir, grábláir og gráir, litirnir þínir, elsku Hanna mín, litirnir okkar. Það rifaði í ljósblátt og þar fyrir innan skein sólin og sló gullnum bjarma á skýin eftir langvarandi drunga. Um kvöldið varð aldimmt og þá yfirgafst þú þennan heim og hvarfst á braut inn í litadýrð himinsins.
Meira
Það er haust og í hugann koma ótal minningabrot er við kveðjum kæra systur. Hanna tók alla tíð mjög virkan þátt í starfi klúbbsins. Mörg trúnaðarstörf voru henni falin og leysti hún þau öll af hendi með miklum sóma og af ábyrgð. Hún var sérstaklega samviskusöm, ósérhlífin og jákvæð. Hún var glöð á góðum stundum og hreif okkur með sér.
Meira
Kæra vinkona, erfitt er að sætta sig við að þú sért farin yfir móðuna miklu langt um aldur fram, þú ert búin að vera hetja í baráttu þinni við hinn válega sjúkdóm, alltaf jafn róleg og yfirveguð. Að fylgjast með þér í baráttunni verður mér ógleymanlegt.
Meira
Löngu stríði er lokið og Hanna Sigga okkar er horfin yfir móðuna miklu á vit feðra sinna eins og stundum er sagt þegar einhver deyr og yfirgefur þennan jarðneska heim. Berskjölduð erum við, aum og óviðbúin þegar góður vinur er kvaddur á burtu frá okkur þrátt fyrir langan, já allt of langan aðdraganda.
Meira
Hanna á Ásfelli er látin. Hún háði harða baráttu við illvígan sjúkdóm, sýndi mikið þrek og neitaði að gefast upp, en nú er þessari baráttu lokið. Það sem einkenndi hana var góð kímnigáfa og samviskusemi. Hún hafði ákveðnar skoðanir og sem kennari gerði hún miklar kröfur til sjálfrar sín um nákvæmni og vandvirkni og varð þannig nemendum sínum góð fyrirmynd.
Meira
Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. Þessi bæn er okkur systrunum ofarlega í huga þegar við hugsum til elsku frænku okkar, hennar Hönnu Siggu, því hún og amma Ragna voru mjög þolinmóðar að kenna okkur hana þegar við vorum litlar og tókst þeim það að lokum.
Meira
HANNA SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR Hanna Sigríður Jóhannsdóttir fæddist 30. maí 1946 á Akranesi. Hún lést í Sjúkrahúsi Akraness 29. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Jón Pálsson frá Sólmundarhöfða, f. 28. feb. 1914, lést 1. nóv. 1967, og Sigríður Ragnhildur Sigurðardóttir frá Hjarðarbóli, f. 17. ágúst 1912, lést 28. júlí 1953.
Meira
Elsku Hanna. Nú skiljast leiðir okkar og við systurnar viljum þakka fyrir allar góðu minningarnar. Við munum sakna þín sárt en þetta er víst hluti af tilverunni. Þær voru ótal margar yndislegu stundirnar sem við eyddum með þér og Gústa. Við fengum að kynnast þínum persónutöfrum og aldrei hafa þeir dofnað. Þú munt ávallt vera í hjarta okkar, í minningu okkar sem elsku Hanna Sigga.
Meira
Það var komið kvöld 29. október þegar síminn hringdi. Níný systir var í símanum og sagði mér að þú værir dáin, elsku Hanna Sigga. Baráttu þinni var loksins lokið. Ég varð sorgmædd inni í mér, hugurinn fór á stað aftur í tímann, ég rifjaði upp allar gömlu góðu stundirnar okkar heima á Akranesi. Það er orðið ansi langt síðan. Enn eitt skarð er komið í árganginn okkar.
Meira
Hanna S. Jóhannsdóttir mágkona mín er látin. Hún átti við erfið veikindi að stríða undanfarin ár en stóð sig afburða vel og komst langt á bjartsýni og lífsvoninni. Fjölskyldan var alltaf í fyrirrúmi hjá Hönnu, eiginmaðurinn, sonurinn og fjölskylda hans.
Meira
Kær vinkona er fallin frá, langt um aldur fram. Áralangri baráttu er nú lokið, baráttu sem sýndi okkur hinum sem til hliðar stóðum hversu kærleikur, trú og viljastyrkur getur áorkað á slíkum stundum. Víst er að þessir þættir verða ríkjandi í minningunni því að með öllu lífi sínu sýndi Hanna okkur glöggt að það er nærgætnin,
Meira
Okkur langar í fáum orðum að minnast fósturmóður, tengdamóður og ömmu okkar, Hólmfríðar Þorsteinsdóttur. Það virðist svo stutt síðan þú rifjaðir upp daginn þegar þú sagðir mér að Kristín, mamma mín og systir þín, væri dáin og kæmi ekki aftur. Þá sagði ég að þú yrðir bara mamma mín, eins og ekkert væri sjáfsagðara.
Meira
Þegar Hólmfríður Þorsteinsdóttir föðursystir mín, Fríða frænka eins og hún hét jafnan í mínum huga og í munni okkar systkinanna, er til moldar borin í dag má ekki minna vera en ég sendi henni litla kveðju og þökk. Svo mikils virði var hún mér í bernsku minni og æsku. Enda kemst ég víst varla hjá því að minningarorð mín um hana fjalli að talsverðu leyti um sjálfan mig.
Meira
Fríða frænka er dáin. Hún var systir pabba, en mér var hún allt í senn, móðir, systir og vinkona og ég mat hana umfram aðra. Hún tók mig að sér þegar ég kom sem unglingur til Reykjavíkur og heimili hennar stóð mér opið upp frá því, fyrst með vinkonum, seinna með börnum og eiginmanni. Hún mundi tímana tvenna.
Meira
Okkur langar til að minnast elskulegrar ömmu okkar. Það er erfitt að lýsa tilfinningum okkar í örfáum orðum, eftirminnilegar samverustundir eru ljóslifandi í hugum okkar en ekki er auðvelt að setja þær á blað. Amma Fríða hefur og mun alltaf eiga stóran hlut í tilveru okkar. Ávallt munum við geyma í hjarta okkar allt sem hún gerði fyrir okkur og hversu gott var að koma til hennar í heimsókn.
Meira
HÓLMFRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR Hólmfríður Þorsteinsdóttir fæddist á Daðastöðum í Norður-Þingeyjarsýslu 7. nóvember 1912. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. október síðastliðinn. Foreldrar Hólmfríðar voru hjónin Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi og hreppstjóri á Daðastöðum, f. 10.5. 1871, d. 2.10.
Meira
Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt eins sviplega og nú, og aldrei svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú. Þetta erindi Matthíasar Jochumssonar kom mér í hug, er ég frétti lát Ingva Samúelssonar, tengdaföður míns.
Meira
Hið fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við minnumst afa okkar, Ingva Samúelssonar, er hve hann tók vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn til afa og ömmu í Álfheimunum. Hann var alltaf glaðlyndur og gaf sér nægan tíma til að leika og spjalla við okkur. Þá fórum við oft ásamt ömmu í Grasagarðinn í Laugardal að skoða lækinn okkar. Við fórum stundum í göngutúra og oft var spilað.
Meira
Í æsku varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að vera oft hjá afa og ömmu í Álfheimunum. Margar góðar minningar á ég frá þessum árum og einnig þegar fram liðu stundir. Afi var mikill morgunhani og naut ég góðs af því þegar ég fékk að gista. Eins og börnum er tamt vaknaði ég einnig fyrir allar aldir og þá þurfti maður ekki að láta sér leiðast því afi var ævinlega kominn á ról.
Meira
INGVI SAMÚELSSON Ingvi Samúelsson var fæddur í Sauðeyjum á Breiðafirði 17. júlí 1914. Hann lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 31. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Samúel Júlíus Guðmundsson, síðar bóndi á Kirkjubóli í Kerlingarfirði, A- Barð., f. 1887, d. 1947, og Árndís Árnadóttir, fyrrum ljósmóðir, f. 1888, d. 1981.
Meira
Karl ólst upp í Hafnarfirði hjá foreldrum sínum í stórum systkinahópi. Hann hóf vinnu utan heimilis þegar hann hafði aldur til, fyrst í hafnarvinnu og síðan til sjós á togara. Við tvítugsaldurinn varð hann vegna veikinda að fara í land og leita sér vinnu þar. Þá vann hann á ýmsum stöðum, í Hvalfirði, Gufudal, Herdísarvík og víðar.
Meira
KARL VIGGÓ ÞORSTEINSSON Karl Viggó Þorsteinsson fæddist í Hafnarfirði 2. júlí 1919. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 27. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorsteinn Brandsson og Þóra Jónsdóttir, búsett mestan sinn tíma í Hafnarfirði.
Meira
Elsku afi. Okkur systkinin frá Hjáleigu langar til að minnast þín með fáeinum kveðjuorðum. Á svona stundu ryðjast minningarnar fram, og allt í einu standa svo margir atburðir ljóslifandi fyrir sjónum sem ylja og lýsa upp skamdegið. Þegar við vorum börn var það alltaf visst tilhlökkunarefni ef von var á ykkur ömmu í heimsókn út í Hjáleigu.
Meira
SIGURÐUR PÁLSSON Sigurður Pálsson fæddist í Hleinagerði, Eiðaþingá, 2. október 1914. Hann lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað 16. október síðastliðinn. og fór útför hans fram frá Egilsstaðakirkju 25. október.
Meira
BREZKA flugfélagið British Airways býst ekki við endanlegri ákvörðun um fyrirhugað bandalag félagsins og American Airlines fyrr en snemma árs 1998, en er enn vongott um að viðunandi samkomulag náist.
Meira
Róm. Reuters. ROMANO PRODI, forsætisráðherra Ítalíu, hefur hreyft þeirri hugmynd að bankastjóri þýzka seðlabankans, Hans Tietmeyer, verði yfirmaður seðlabanka Evrópu (ECB) í Frankfurt. Nauðsynlegt er að róa almenningsálitið í Þýzkalandi áður en myntbandalag verður stofnað," sagði Prodi á blaðamannafundi.
Meira
Í FRÉTT í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær um undirritun á samningi um kaup á 12 nýjum Scania strætisvögnum fyrir Strætisvagna Reykjavíkur gætti nokkurrar ónákvæmni. Fram kom að stjórnarformaður og forstjóri SVR hefðu undirritað samninginn ásamt forstjóra og sölustjóra Heklu, umboðsaðila Scania.
Meira
FJÁRFESTINGARBANKI atvinnulífsins hf. mun ráða til sín um 15 starfsmenn til viðbótar við um 40 manna starfslið sem kemur frá Iðnlánasjóði, Iðnþróunarsjóði og Fiskveiðasjóði. Samtals verða því 55 manns starfandi hjá bankanum þann 1. janúar þegar hann hefur starfsemi.
Meira
BGB hf. hefur fengið auðkenni á Opna tilboðsmarkaðnum. Fyrirtækið var sett á fót 1. desember á síðasta ári með sameiningu Blika hf. á Dalvík og G. Ben, hf. á Árskógsströnd. Hagnaður BGB fyrstu átta mánuði þessa árs nam rúmum 2 miljónum króna. Framlegð til afskrifta og fjármagnsliða nam 77 milljónum króna en rekstartekjur félagsins námu 518 milljónum króna.
Meira
VÉLAVERKFRÆÐISKOR Háskóla Íslands fékk nýlega að gjöf fullkominn hugbúnað til að gera sjálfvirk mælikerfi. Hugbúnaðurinn, sem er af gerðinni LabVIEW, er mikið notaður við erlenda háskóla til ýmissa mælinga og í tilraunaverkefnum nemenda. Nýlega var sams konar búnaður notaður í lokaverkefni til B.Sc.
Meira
RÁÐUNEYTI sjávarútvegsmála í Marokkó hefur skýrt frá því að 700 milljónum dirhama, eða 73,6 milljónum dollara, verði varið til að koma upp fiskveiðihöfn í Boujdour í Vestur-Sahara og stækka hafnir, sem fyrir eru á svæðinu.
Meira
BREZKA pundið hækkaði gegn helztu gjaldmiðlum í gær þegar Englandsbanki tók þá óvæntu ákvörðun að hækka lánsvexti um 0,25% í 7,25% og hafa þeir ekki verið hærri í fimm ár. Vonir um meiri vaxtahækkun gætu styrkt pundið enn frekar að sögn sérfræðinga. Þó segja þeir að framtíðarhorfur pundsins séu óvissari en áður.
Meira
BORÍS JELTSÍN Rússlandsforseti hefur undirritað tilskipun, sem heimilar útlendingum að eiga 100% í rússneskum olíufélögum að sögn rússneskra embættismanna. Borís Nemtsov orkumálaráðherra, hinn frjálslyndi umbótasinni, sagði að með tilskipuninni væri rutt úr vegi öllum hindrunum fyrir því að útlendingar gætu átt olíufyrirtæki í Rússlandi.
Meira
GENGI hlutabréfa í Samherja hf. lækkaði um 5% í viðskiptum á Verðbréfaþingi Íslands í gær. Kom þessi lækkun í kjölfar þess að fyrirtækið birti átta mánaða uppgjör fyrir samstæðuna sem sýndi nokkru lakari afkomu en ef móðurfélaginu og dótturfélögum þess hér innanlands. Mest varð tapið af dótturfélagi Samherja í Bretlandi, Onward Fishing Company.
Meira
STOFNANDI fréttasjónvarpsins CNN, Ted Turner, kveðst fagna því að BBC hleypi af stað fréttarás allan sólarhringinn, þar sem hún muni ógna aðalkeppinautnum, Rupert Murdoch. Turner, sem er varastjórnarformaður Time Warner Inc, sagði að innlend fréttarás BBC allan sólarhringinn væri meiri ógnun við Murdoch fyrirtækið British Sky Broadcasting Group Plc en CNN.
Meira
ENGLANDSBANKI hækkaði vexti um 0,25% í gær. Pundið hafði ekki verið hærra gegn jeni í fimm ár og gegn dollar í fjóra mánuði, en sérfræðingar telja að von sé fleiri vaxtahækkunum. Vaxtahækkunin kom á óvart, en hafði ekki neikvæð áhrif, þótt FTSE 100 lækkaði um 44,5 punkta eða 0,91%.
Meira
Árnað heilla ÁRA afmæli. Mánudaginn 10. nóvember verður áttræð Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir. Ingibjörg dvelur á Sjúkrahúsi Siglufjarðar og tekur hún á móti ættingjum og vinum í Skálahlíð, Dvalarheimili aldraðra, laugardaginn 8. nóvember kl. 16. ÁRA afmæli. Mánudaginn 10.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 30. ágúst í Kópavogskirkju af sr. Ægi F. Sigurgeirssyni Þorgerður Marinósdóttir og Jón Jóhann Þórðarson. Heimili þeirra er að Lundarbrekku 6, Kópavogi.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 10. ágúst í Akureyrarkirkju af sr. Birgi Snæbjörnssyni Hólmfríður Þorsteinsdóttir og Guðmundur Már Guðmundsson. Heimili þeirra er á Reynimel 92, Reykjavík.
Meira
Það má búast við spennandi keppni. Hellir er með langstigahæstu sveitina og stefnir á fyrsta Íslandsmeistaratitilinn. FYRRI hluti árlegrar Deildakeppni Skáksambands Íslands fer fram um helgina. Deildakeppnin er eitt fjölmennasta skákmót, sem fram fer hér á landi og búast má við á þriðja hundrað keppenda.
Meira
STÆÐA er til að fagna því að breyta á skipulaginu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í tengslum við breytt skipulag verzlunarmála. Flugstöðin er óhentug eins og hún er og ræður ekki við álagstoppa. Reynt hefur verð að bæta úr að einhverju leyti, m.a. með fjölgun innritunarborða, en það hefur ekki dugað til.
Meira
ÉG UNDIRRITUÐ vil senda þakkir til Orlofsnefndar húsmæðra í Reykjavík. Ég hef notið þeirrar ánægju á undanförnum árum að dvelja á hinum ýmsu stöðum sem þær hafa á sínum snærum, t.d. Hrafnagili, Hvanneyri o.s.frv. Margt er sér til gamans gert meðan á dvölinni stendur, sem er ein vika. T.d. farið í smáferðir um næsta nágrenni, stundað sund og gönguferðir.
Meira
Barátta á botninum Það var hörku barátta sem bæði lið sýndu þegar Valur sigraði ÍR 83:79 í Íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi. Bæði liðin hafa farið frekar illa af stað, mættu sigurlaus til leiks. Barátta var einkennandi fyrir leikinn en minna fór fyrir góðum körfuknattleik.
Meira
BIRKIR Kristinsson, markvörður Brann, hefur ákveðið að koma heim til Íslands eftir tveggja ára veru í Bergen. "Ég er byrjaður að pakka niður og setja í gám. Ég reikna með að vera búinn að ganga frá öllum mínum málum hér um miðjan mánuðinn. Síðan ætlum við í smá frí áður en við komum heim um næstu mánaðamót," sagði Birkir.
Meira
LIÐIN sem talin eru sigurstranglegust í Evrópukeppni bikarhafa í vetur komust bæði áfram í keppninni í gærkvöldi, þegar síðari leikir annarrar umferðar voru á dagskrá. Chelsea burstaði norska liðið Tromsö, 7:1, í London og VfB Stuttgart frá Þýskalandi sem sló ÍBV út í fyrstu umferð ruddi belgíska liðinu Ekeren úr vegi, þrátt fyrir að tapa í gær.
Meira
Sunnudaginn 9. nóvember n.k. verður David Shepherd með kynningu á stærsta knattspyrnumóti Bretlands, The Manchester International Football Festival. Ennfremur kynnir hann Knattspyrnuskóla Manchester United og Manchester City. Kynningin hefst kl. 14 í húsakynnum Úrvals-Útsýnar að Lágmúla 4 í Reykjavík.
Meira
H¨acken vann V¨asterås 4:2 í gærkvöldi og tryggði sér þar með sæti í 1. deild í Svíþjóð næsta tímabil, en liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum um sætið. H¨acken komst í 4:1 en Einar Brekkan, sem hefur verið orðaður við Örgryte, minnkaði muninn skömmu fyrir leikslok. Gunnar Gíslason er aðstoðarþjálfari H¨acken sem lék síðast í efstu deild fyrir þremur árum.
Meira
GIANLUCA Vialli var með þrennu þegar Chelsea tók Tromsö í kennslustund á Stamford Bridge og vann 7:1 í gærkvöldi. Norska liðið vann óvænt 3:2 í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða en þá gerði Vialli bæði mörk Chelsea. Tor Andre Grenersen hafði nóg að gera í marki Tromsö en hann átti ekki svar við snilldarleik ítalska framherjans.
Meira
NBA-deildin Boston - Miami74:90 Detoit - Indiana87:99 Charlotte - Dallas110:103 Philadelphia - Atlanta88:93 Atlanta jafnaði besta árangur sinn í 11 ár með því að vinna fjórða leikinn í röð. Steve Smith var stigahæstur með 22 stig og Dikembe Mutombo gerði 20 og tók auk þess 16 fráköst.
Meira
"ÞESSI sigur er einn sá sætasti á ferlinum," sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari Tindastóls, við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir að Sauðkrækingar höfðu lagt KR-inga í DHL-deildinni í körfuknattleik með sigurkörfu frá Jose Maria Naranjo þegar einungis sjö sekúndur voru til leiksloka.
Meira
Sætur sigur hjá Haukum Haukar frá Hafnarfirði gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Íslands- og bikarmeistara Keflvíkinga í Keflavík í gærkvöldi og hafa þeir þar með sigrað í öllum leikjum sínum í deildinni. Síðustu mínútur leiksins voru æsispennandi þar sem sigur gat lent hvorum megin sem var.
Meira
Þór afgreiddur fyrir hlé Þegar leikmenn Skagamanna og Þórs gengu til leiks að loknu leikhléi var aðeins formsatriði að ljúka leiknum. Heimamenn höfðu gersamlega yfirspilað gestina og voru 24 stigum yfir. Mestur var munurinn 32 stig eftir hlé, 70:38, en lokatölur 98:81.
Meira
Einhvernveginn verðum við að bregðast við flótta knattspyrnumanna frá Íslandi," sagði Þorsteinn Þorvaldsson, formaður knattspyrnudeildar Leifturs, en félagið hefur gert samninga við þrjá færeyska knattspyrnumenn um að leika með félaginu á næstu leiktíð.
Meira
"KRAFA okkar er sanngjörn; sett fram af vel yfirveguðu ráði, en ekki í einhverju augnabliks skjótræði. Við munum fylgja henni af festu á leiðarenda. Sé það mat formanns LÍÚ að það sé hagstæðara fyrir eigendur þessara skipa að binda þau við bryggju fyrstu mánuði næsta árs, en að semja við okkur,
Meira
"MÉR finnst á það skorta að þeir þættir í sjávarútvegsstefnunni sem lúta að því að móta heildarhagsmuni íslenzku þjóðarinnar verði út undan í umræðunni. Sérhagsmunatogstreitan innbyrðis í sjávarútveginum og milli sjávarútvegsbyggðanna í landinu ber ofurliði umræðu um heildarhagsmuni," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra meðal annars á vélstjóraþingi í gær.
Meira
"TENGSLIN milli þröngra sérhagsmuna atvinnurekenda, til dæmis í landbúnaði og sjávarútvegi, og stjórnkerfisins eru aldeilis óvenjulega sterk á Íslandi og eru sérkenni íslenzka stjórnkerfisins. Atvinnuvegaráðuneyti koma ekki fram sem sjálfstæðir aðilar gagn vart sérhagsmunahópum til þess að gæta hagsmuna almennings. Þau eru nánast eins og framlenging frá forystumönnum sérhagsmunahópanna sjálfra.
Meira
FRÁ blautu barnsbeini hefur Ragnar Michelsen verið umkringdur blómum. Faðir hans Paul Michelsen heitinn rak um árabil blómaverslun í Hveragerði og annaðist flestar útfararskreytingar á Suðurlandi. Ragnar var aðeins tíu ára þegar hann fylgdi föður sínum heim til syrgjenda til skrafs og ráðagerða um skreytingar og annað til að gera mætti útför hins látna sem fallegasta.
Meira
FYRSTI sunnudagur í aðventu er eftir þrjár vikur og einhverjir farnir að huga að jólaundirbúningi, í það minnsta kaupmenn, heildsalar og kannski blaðamenn. Félag blómaverslana stóð fyrir svokölluðu jólaþemakvöldi í Mörkinni í vikunni, þar sem á annað hundrað manns úr hópi heildsala og kaupmanna báru saman bækur sínar og undirbjuggu sig fyrir komandi vertíð.
Meira
BÖND eða spangir í hárið eru ekki nýjar undir sólinni frekar en annað tengt tískunni og áberandi er í vetur, svo sem varanlegar krullur, pinnahælar og pils sem varla ná niður fyrir lífbein. Style, lífsmáta- og tískuútgáfa The Sunday Times, gerir endurkomu hárspanganna að umtalsefni og segir ekki hafa bólað á þeim síðan ungir Bretar af yfirstétt,
Meira
"ALLIR vilja heyra eitthvað fallegt," segir Guðríður Haraldssdóttir sem les meðal annars í tarotspil fyrir hlustendur Aðalstöðvarinnar á laugardögum. "Símatíminn kallast Nornahornið og er afar vinsæll, síminn stoppar ekki þann tíma sem færi gefst á að hringja inn.
Meira
Í FJÓRTÁN ár hefur Matthildur Sveinsdóttir kíkt inn í framtíð fólks, skoðað nútíðina og lesið úr fortíðinni með aðstoð tarotspila. Alls konar fólk leitar til hennar, þverskurður þjóðfélagsins segir hún, og spurningar þeirra eru af öllu tagi. Marga segir hún eiga um sárt að binda, líða illa á andlega sviðinu og vilja fá vitnesku um hvort ekki sé bjartara framundan.
Meira
Í HÚSI nokkru við Ránargötu búa tveir litlir strákar og 27 dýr, að kuðungasniglunum undanskildum. Strákarnir eru Bjartur og Hlynur, sjö og þriggja ára, og ekki heima þegar greinarhöfund ber að garði. Mamma þeirra, Agatha, er ekki heima heldur og skilur eftir miða á hurðinni með fyrirmælum um að ganga í bæinn.
Meira
ÞÓTT tölvur og dúkkur eigi fátt sameiginlegt, handleikur Hans Árnason rafeindavirki hvoru tveggja af stakri natni og alúð. Hann viðurkennir að dúkkurnar hafi smám saman orðið sér hugleiknari, enda sé meira ögrandi að koma misöldnum og mishöldnum brúðum í samt lag á ný en að skipta um plötur í tölvum.
Meira
Störf sem stinga í stúf Ef flett er af handahófi í símaskránni sést að kennarar, hjúkrunarfræðingar, iðnaðarmenn, tölvufræðingar, skrifstofu- og verslunarmenn eru á hverju strái. Valgerði Þ. Jónsdóttir langaði að hitta fólk sem hefur valið sér starfsvettvang af óvenjulegra taginu.
Meira
UNGVIÐI í skólaleikfimi Undir gaddavír og gegnum lítið fjall. Yfir tröllabyggð og upp í risafjall. Hanna Katrín Friðriksen og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari, fylgdust með leikfimitímum hjá börnunum í leikskólanum Brákarborg.
Meira
ÞJÓNUSTA allan sólarhringinn. Þannig auglýsa hjónin Hafdís Unnsteinsdóttir og Steinar Egilsson fyrirtækið Meindýravarnir ehf., sem þau settu formlega á laggirnar fyrir tveimur árum. Síðan segja þau að umsvif og umfang rekstursins hafi aukist miklu meira en þau óraði fyrir.
Meira
ÞÓRUNN Guðnadóttir hefur mikinn hluta starfsævinnar unnið innan um sjónskerta. Fyrst í gleraugnaverslun, síðan sem ritari hjá Sjónstöð Íslands og undanfarið sem sjónþjálfi hjá sömu stofnun. Þórunn hefur sérmenntun í að leita eftir nýtanlegri sjón og örva hana til þess að börn sem fæðast nánast blind geti orðið eins sjálfbjarga í daglegu lífi og framast er kostur.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.