POUL Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur í bréfi til Anfinns Kallsbergs, lögmanns Færeyja, útskýrt hver stefna Dana sé gagnvart þjóðaratkvæðinu sem fyrirhugað er um sjálfstæðismálið á eyjunum 26. maí.
Meira
FRANCIS Collins, yfirmaður bandarískrar stofnunar sem rannsakar genamengi mannsins (NHGRI), spáir því að hægt verði að búa til genabreytta menn með öruggum hætti innan tveggja áratuga.
Meira
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu í gær að níu manns af 500 tonna japönsku hafrannsóknaskipi, Ehime Maru, sem sökk eftir árekstur á föstudag við bandaríska kjarnorkukafbátinn USS Greeneville í gær, nokkrar mílur frá Honolulu á eynni Oahu í Hawaii-eyjaklasanum.
Meira
SKÝRT verður á morgun, mánudag, frá dómsúrskurði sem gæti merkt að netþjónustufyrirtækinu Napster verði lokað, að sögn BBC . Napster hefur annast þarfir þeirra sem ná sér þar í tónlist á Netinu og þurfa þá ekki að greiða fyrir höfundarréttinn.
Meira
COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar að fara í fimm daga ferð um helstu ríki Mið-Austurlanda 23. febrúar og reyna að fá þau til að styðja framhald refsiaðgerða gegn Írak.
Meira
MIKIL leikgleði og tilþrif voru meðal þátttakenda á hinu árlega Ákamóti HK í handknattleik, sem hófst í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi í gær. Um 600 drengir og stúlkur í 7. flokki, níu ára og yngri, taka þátt í mótinu sem stendur í tvo daga.
Meira
HAFIN er athugun Skipulagsstofnunar á umhverfisáhrifum framkvæmda við Búðarhálsvirkjun og Búðarhálslínu 1 í Ásahreppi, Holta- og Landsveit, Gnúpverjahreppi og Djúpárhreppi. Landsvirkjun er framkvæmdaraðili og tók Hönnun hf.
Meira
DAGBÓK Háskóla Íslands 12.-18. febrúar. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla Íslands. Ítarlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/dagbok.
Meira
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í gær í ávarpi sínu á öðrum fundi Samfylkingarinnar í fundaröð stjórnmálaflokksins um lýðræði - hugsjón og veruleika, að kynslóð sín hefði aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins valdhroka af...
Meira
SIGURÐUR Ingólfsson varði doktorsritgerð sína í frönskum nútímabókmenntum við Paul Valery háskólann í Montpellier í Frakklandi 18. desember síðastliðinn. Hann skrifaði um ljóðlist Yves Bonnefoy, sem er eitt merkasta núlifandi ljóðskáld þeirrar þjóðar.
Meira
FLEIRI umsóknir hafa borist Skráningarstofunni um einkamerkingar á bílum en búist var við í upphafi og hefur tilhneigingin orðið sú að herða frekar reglur í seinni tíð varðandi leyfilega áletrun á einkanúmerum bifreiðaeigenda.
Meira
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var kallað að fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi um kl. hálftólf í fyrrakvöld þar sem eldur logaði í sjónvarpstæki. Húsráðandi hafði brugðið sér frá skamma stund og á meðan kviknaði í tækinu.
Meira
Valkostir utan Vatnsmýrar Tillögur að byggingu nýs flugvallar á uppfyllingum í Skerjafirði eða í landi Hvassahrauns, sunnan Hafnarfjarðar. Flutningur innanlandsflugsins til...
Meira
Formaður VR segir forsendur halda Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði eftir kjaraþing VR að miðað við núverandi verðbólgu væru engar forsendur til uppsagna á kjaraliðum samninga. Verðbólgan var 5,8% þegar samningar voru gerðir í maí sl.
Meira
HELGI Skúli Kjartansson dósent heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands næstkomandi þriðjudag, 13. febrúar kl. 16.15.
Meira
Fyrsta hópsýking af völdum calici-veiru hefur verið staðfest hér á landi en slíkar hópsýkingar eru vel þekktar erlendis. Alls smituðust 27 manns af völdum veirunnar eftir að hafa borðað snittur en veiran veldur uppköstum, niðurgangi, hita og beinverkjum.
Meira
Tengipunktur landsins Flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar vekur hörð mótmæli fulltrúa landsbyggðar, hagsmunaaðila í flugi og þeirra sem bera ábyrgð á...
Meira
LÍNUR eru nokkuð farnar að skýrast í afstöðu ráðamanna gagnvart þeim kostum í málefnum Reykjavíkurflugvallar sem í raun verður kosið um 17. mars.
Meira
JAPANSKIR lögreglumenn, sem rannsaka hvarf breskrar konu, Lucie Blackman, skýrðu frá því á föstudag, að þeir hefðu fundið lík af konu, sem þeir vissu þó ekki hver væri vegna þess, að höfuðið væri hulið steinsteypu.
Meira
ÞINGFLOKKUR Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að kanna kosti þess að koma á fót stjórnlagadómstól eða stjórnlagaráði hér á landi.
Meira
JÓHANNES Páll II páfi hefur í heilan áratug flogið í hringi umhverfis Rússland; einn daginn er hann í Eystrasaltslöndunum eða föðurlandi sínu, Póllandi; næst er hann í Rúmeníu eða Georgíu.
Meira
MEIRI eftirspurn er nú eftir þjónustu heilsugæslulækna á höfuðborgarsvæðinu en stöðvarnar geta annast og fjöldi fólks þarf að bíða lengi eftir þjónustu.
Meira
LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í fyrrakvöld bifreið við Sandgerði. Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru í bílnum. Við leit á öðrum þeirra fundust um 30 g af hassi sem lögreglan lagði hald á. Maðurinn játaði að eiga hassið og telst málið...
Meira
SALA á Microsoft-hugbúnaði á sérkjörum fyrir skólafólk er að hefjast hérlendis og er það í fyrsta skipti sem skólafólki á öllum skólastigum býðst hugbúnaðurinn á sérkjörum fyrir tilstuðlan menntamálaráðuneytisins og Tölvudreifingar hf.
Meira
STARFSMENNTARÁÐ hefur kynnt skipulag úthlutana úr Starfsmenntasjóði fyrir árið 2001. Ráðið hefur lagt fram þemu í samræmi við stefnumörkun sína og ákveðið að veita þrenns konar verkefnum styrk.
Meira
POUL Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekaði í vikunni yfirlýsingar sínar um að ef Færeyingar kysu að stefna að sjálfstæði myndu Danir ekki greiða framlög í sjóði þeirra lengur en fjögur ár eftir sjálfstæðið.
Meira
SÓLVEIG Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, er eini Íslendingurinn sem hefur starfað við hjálparstarf í Gujarat síðustu dagana en nú eru fleiri Íslendingar á leiðinni.
Meira
STJÓRNARNEFND og framkvæmdastjórn Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) hafa ákveðið að sameina rannsóknarstofnun Landspítalans við Hringbraut, rannsóknarstofu spítalans í Fossvogi og rannsóknarstofur í sýkla- og veirufræði í Fossvogi í eina...
Meira
Í TILEFNI af 50 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands efnir félagið til ráðstefnu um krabbamein og vinnandi fólk. Ráðstefnan verður haldin miðvikudaginn 14. febrúar í Salnum í Kópavogi og hefst kl. 13.
Meira
LÁRUS Petersen, stöðvarstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, SHS, hefur verið skipaður stundakennari við bráðalækningadeild háskólans í Pittsburgh í Bandaríkjunum, fyrstur Íslendinga og einn fárra útlendinga, að því er kemur fram á fréttavef SHS.
Meira
UNNIN hefur verið sérstök kostnaðargreing á starfsemi kvennasviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) og er tilraunasamningur sem kveður á um verð og magn tilbúinn til undirritunar.
Meira
FUGLAR eru jafnan samtaka og sammála þegar þeir hópast saman og þeysa um loftin. Sendlingarnir í Skerjafirði eru þar engin undanteking og þar fara þeir allir sem einn í sömu beygjuna, á sama hraða og í sama hallanum.
Meira
Sharon vill samstjórn með Barak HARÐLÍNUMAÐURINN Ariel Sharon úr hægriflokknum Likud í Ísrael sigraði vinstrimanninn Ehud Barak örugglega er kosið var til embættis forsætisráðherra á þriðjudag.
Meira
SÍMKERFI Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH), og allra útibúa þess, ásamt tal- og farsímaþjónustu sjúkrahúsanna, hefur verið boðið út og verða tilboð opnuð í mars.
Meira
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands hefur veitt fyrstu netverðlaun kennara og hlaut Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefnafræði, verðlaunin fyrir að halda úti vefsíðu sem nýtist nemendum hans vel í námi. Á vefsíðunni má m.a.
Meira
LANDSVIRKJUN hyggst leggja fram drög að tillögu um matsáætlun vegna lagningar línu frá virkjunarsvæðinu við Þjórsá að Brennimel í Hvalfirði í lok næsta mánaðar.
Meira
Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan eigi að heyra sögunni til er hún að margra mati ennþá í fullu gildi í Suður-Afríku. Kári Þór Samúelsson fjallar um þau margvíslegu vandamál sem blasa við í landinu.
Meira
Inga Sólnes fæddist á Akureyri 1951 og ólst þar upp. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1971, tók BA-próf í dönsku og frönsku frá Háskóla Íslands 1975 og BA-próf í félagsvísindum frá Kingston University í London 1978.
Meira
ARNFIRÐINGAFÉLAGIÐ hefur undanfarin ár haldið sólarkaffi í byrjun febrúar þar sem félagsmenn, brottfluttir Arnfirðingar, hafa komið saman til að styrkja vináttu og átthagabönd.
Meira
ÞAÐ er ekki bara fullorðna fólkið sem rífur í sig þorramat þessa dagana, því börnin eru mörg hver hrifin af slíkum mat. Börn og starfsfólk á leikskólanum Holtakoti á Akureyri héldu þorrablót og þar var m.a.
Meira
Saga flugvallarins Saga Reykjavíkurflugvallar frá upphafi rakin, en Vatnsmýrin varð fyrst fyrir valinu sem flug- vallarstæði 1919. Birtar myndir úr einstæðu myndasafni Ólafs K....
Meira
RÚMLEGA þriðjungur þýskra ungmenna telur að nasistastjórn Adolfs Hitlers hafi átt sínar "góðu hliðar", samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í tímaritinu Die Woche .
Meira
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna og formaður BSRB, segir að neyðarástand hafi skapast í húsnæðismálum hjá stórum hópi fólks og að sá vandi muni aukast stórlega verði ekkert að gert á næstu árum.
Meira
Kannski er rétt að taka af skarið og að við skilgreinum okkur, sem tvítyngda þjóð. Eitthvað á þessa leið komst Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa hf.
Meira
Reykholt er einn merkasti sögustaður þjóðarinnar og varðveizla, uppbygging og umgjörð staðarins verður því æ til merkis um, hvernig Íslendingar umgangast menningararfinn.
Meira
FÉLAG um Listaháskóla Íslands efnir til félagsfundar á miðvikudag kl. 20 í húsnæði Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91. Fjallað verður um framtíðarskipan Listaháskóla Íslands og húsnæðismál hans. Hjálmar H.
Meira
HEIMURINN er gulleitur, a.m.k. í gegnum linsu Finnboga Marinóssonar ljósmyndara. Hann heldur þessa dagana sýningu á myndum sínum í í versluninni Reynisson & Blöndal, Skipholti 25.
Meira
LÖGREGLAN í Manchester hefur undir höndum myndbandsupptöku með tónleikum Eminem í borginni á fimmtudagskvöldið og er tilgangurinn að rannsaka hvort rapparinn óstýriláti hafi hvatt hina ungu tónleikagesti til vímuefnaneyslu.
Meira
Leikstjóri Ellory Elkayem. Handrit John Claflin, Daniel Zelman. Aðalhlutverk Thomas Calabro, Dean Stockwell. 92 mín, Bandaríkin 2000. Háskólabíó. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
NÝR vefur Leikskáldafélags Íslands var opnaður á föstudag við hátíðlega athöfn í Gunnarshúsi að Dyngjuvegi 8. Svava Jakobsdóttir rithöfundur opnaði vefinn og Benóný Ægisson leikritahöfundur útskýrði vefinn og fletti upp í honum fyrir viðstadda.
Meira
Umræðufundur um gagnrýni sem haldinn var í Borgarleikhúsinu í liðinni viku varð ekki beinlínis til þess að efla trú manns á hlutverk fjölmiðlagagnrýni í því flókna samspili fjölmiðlunar og listrænnar sköpunar sem nútímasamfélag býr við.
Meira
FÓLK virðist falla kylliflatt eitt af öðru, líkt og domino-kubbar, fyrir plötu Sigur Rósar, Ágætis byrjun . Nýjasta umfjöllunin kemur frá Washington Post og eru ummælin á einn veg; sá sem skrifar á vart til orð yfir hversu frábær platan sé.
Meira
Um þessar mundir stendur yfir í Listasafni Íslands sýning á verkum Jóns Stefáns- sonar í eigu safnsins. Heiða Jóhannsdóttir skoðaði sýninguna undir leiðsögn Ólafs Kvaran, forstöðumanns safnsins, og fékk innsýn í feril listamannsins og stöðu hans í íslenskri listasögu.
Meira
Sýrubælið / The Acid House ½ Dregin er upp kaldhæðnisleg mynd af tilveru fólks í lágstéttarhverfum Edinborgar í þessum þremur stuttmyndum eftir Irvine Welsh. Áhofandinn veit vart hvort hann á að hlæja eða gráta.
Meira
70 ÁRA afmæli. Á morgun, mánudaginn 12. febrúar, verður sjötugur Gunnar Sæmundsson, hæstaréttarlögmaður, Ljósheimum 10, Reykjavík . Gunnar verður að heiman á...
Meira
ÞAÐ er með réttu hvatt til þess að efla almenningssamgöngur í borginni, og að fólk noti strætisvagna í stað einkabíla, enda nær ógerlegt að gera gatnakerfi þannig og auka svo bílastæði að allir geti alltaf notað einkabíl í miðborginni.
Meira
ÞANN 30. janúar sl. var upplýst í Morgunblaðinu á bls. 10 að biskupinn yfir Íslandi ætlaði að fara til Indlands á næstunni að skoða hinar hörmulegu hamfarir þar í landi.
Meira
Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 8. febrúar var spilað annað kvöldið af sex í Aðalsveitakeppni félagsins og er staðan þannig. Sveit Þorsteins Bergs 87stig Sveit Vina 77stig Sveitin Fjögurra laufa smári 77stig Keppnin heldur áfram fimmtudaginn 15.
Meira
Opna Borgarfjarðarmótið í sveitakeppni Opna Borgarfjarðarmótinu er lokið með öruggum sigri sveitar Öldu Guðnadóttur. Með henni spiluðu Kristján B. Snorrason, Jón Ágúst Guðmundsson og Jón Þ. Björnsson.
Meira
BRÚÐKAUP . Gefin voru saman í hjónaband 19. janúar sl. í Brisbane í Ástralíu Þorvaldur Bragason og Narelle Hallgath. Heimili þeirra verður í Alice Springs í...
Meira
ÞÓRIR S. Gröndal, fisksölumaður, búsetur í Flórída, hefur annað slagið sent frá sér pistla sem birst hafa í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Sunnudaginn 22. október sl.
Meira
Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 30. janúar spilaði 21 par og þá urðu úrslit þessi í n/S: Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 283 Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 243 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórss.
Meira
Lestur Andrés-blaðanna svokölluðu lagði grunninn að dönskukunnáttu Víkverja í den tid , en þar eru Andrés Önd og félagar hans í aðalhlutverkunum eins og öllum ætti að vera ljóst.
Meira
Edward Kristinn Olsen fæddist í Reykjavík 24. júní 1917. Hann lést af völdum bifreiðarslyss á Landspítalanum í Fossvogi 28. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 6. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Grettir Jóhannesson fæddist í Vestmannaeyjum 11. febrúar 1927. Hann lést á Vífilsstaðaspítala 12. apríl 2000 og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 19. apríl. Jóhannes Albert Jóhannesson fæddist í Vestmannaeyjum 21. júlí 1925. Hann lést á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík 5. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ólafsvíkurkirkju 10. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Pétur Sigurlinnason fæddist 12. maí 1929. Hann varð bráðkvaddur mánudaginn 5. febrúar síðastliðiinn. Foreldrar hans voru Vilhelmína Ólafsdóttir í Gesthúsum, Hafnarfirði, f. 11. maí 1905, og Sigurlinni Pétursson, byggingameistari í Garðabæ, f. 12.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Eygló Þórðardóttir fæddist 5. ágúst 1931 í Vík í Mýrdal. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórður Stefánsson, héraðsbókavörður og verkamaður í Vík, f. 25.7. 1894, d. 7.4.
MeiraKaupa minningabók
ÞÝSKA fyrirtækið Gulliver Reisen býður ferðir með langferðabílum til yfir 50 áfangastaða í Evrópu þar sem keyrt er um hraðbrautir þvert yfir lönd.
Meira
FLUGLEIÐIR hefja beint áætlunarflug til Manchester í fyrsta sinn í sumar. Flogið verður alla sunnudaga frá 7. júní til 9. september og er lægsta flugverðið þangað kr. 21.
Meira
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval-Útsýn býður upp á nýjung í ár sem hefur fengið heitið Úrvals-bændaferðir. Um er að ræða tvær vorferðir og tvær sumarferðir. "Tvær 11 daga ferðir verða farnar um Þýskaland og Frakkland þar sem farið er í vorferðina hinn 2.
Meira
Flugfélagið Continental var nýlega valið Flugfélag ársins af flugtímaritinu Air Transport World . Þetta er í annað skipti sem tímaritið velur Continental en fyrst hlaut það titilinn árið 1996. Í umsögn um flugfélagið segir tímaritið m.a.
Meira
England Afsláttarkort fyrir ferðamenn Afsláttarkortið "The London Pass" var hleypt af stokkunum í fyrra. Nú veitir kortið handhöfum aðgang að yfir 60 stöðum, sem er um 20 fleiri staðir en í fyrra, í London og nágrenni.
Meira
Fulltrúar nokkurra íslenskra rútufyrirtækja heimsóttu verksmiðjur MAN í Ankara á dögunum. Var þeim kynnt framleiðsla fyrirtækisins með markaðssetningu á Íslandi í huga. Jóhannes Tómasson slóst með í för.
Meira
Margir Írakar eru enn búsettir hér frá því 1991 en Jemen var þá eitt fárra landa skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir sem veitti þeim landvistarleyfi. Síðan hafa mörg ríki slakað á þessu og Írakar hafa komist meðal annars til Bandaríkjanna.
Meira
DÁLÍTIÐ flakk hefur verið á Kia-umboðinu hér á landi. Fyrst var Hekla hf. með umboðið og Jöfur tók við því um skamman tíma áður en fyrirtækið hætti starfsemi. Þá tók Honda við Peugeot-bílunum en nýstofnað Kia-umboð tók við Kia-bílunum.
Meira
Þegar farið er niður um gíginn á Snæfellsjökli og ferðast um iður jarðar er komið upp á ítölsku eldfjallaeyjunni Stromboli, norð-austur af Sikiley. Ferðalýsinguna er að finna í vísindaskáldsögunni Ævintýri Snæfellsjökuls eftir Jules Verne. Emil B. Karlsson fór hins vegar aðra leið að sama marki og lýsir því sem fyrir augu og eyru bar.
Meira
Helga Valgerður Ísaksdóttir er bókavörður á bókasafni Seltjarnarness. Hún er að fara til Kanaríeyja ásamt eiginmanni sínum Pétri Árnasyni en þetta er í 13. skiptið sem þau fara þangað.
Meira
Fyrirhugaðar eru miklar breytingar á Golf, Focus, Astra og A-bíl Benz, sem allar miða að því að gera innanrými bílanna meira. Þeir verða kynntir í gerbreyttri mynd á bílasýningunni í Frankfurt eftir rúm tvö ár.
Meira
BMW ætlar að endurheimta sinn sess á lúxusbílamarkaði og setur á markað nýjan og hátæknivæddan 7-línu bíl næsta haust. Bíllinn verður svar við S-bíl Mercedes-Benz og verður verðlagður á svipaðan hátt.
Meira
STÓR sportbílasýning verður haldin í Laugardalshöll 24. maí næstkomandi. Þetta er í þriðja sinn sem sýningarhaldarar standa að sportbílasýningu og hafa undirtektir verið góðar. Ljóst þykir t.a.m.
Meira
NÝR bíll frá Suzuki sem kallast Liana verður frumkynntur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. Suzuki vonast til að ná með bílnum til kaupenda sem annars keyptu Ford Focus, Opel Astra og VW Golf.
Meira
Það getur verið þrautin þyngri að leigja hús við Miðjarðarhafið, segir Margrét Hlöðversdóttir sem datt í lukkupottinn þegar hún frétti af bresku ferðaskrifstofunni Vintage Travel. Hún hefur milligöngu um leigu húsa á Spáni, í Portúgal og í Frakklandi.
Meira
MAN í Ankara í Tyrklandi rekur eins konar iðnskóla til að þjálfa ungt fólk til starfa við bílaiðnaðinn. Er það þriggja ára bóklegur skóli og verklegur og eru þeim sem ljúka skólanum tryggð störf hjá Manas í Ankara að námi loknu.
Meira
Miklar endurbætur standa yfir á tjaldsvæðinu í Hveragerði. Áður var tjaldsvæðið á grasbletti við grunnskólann, en nú er lokið við uppbyggingu á fyrsta áfanga tjaldsvæðisins og er það við Reykjamörk í Hveragerði.
Meira
HÉR er enn eitt spilið úr bók Kantars, Advanced Bridge Defense; sannkölluð perla og í þessu tilfelli vörn sem byggist á hreinni rökhugsun án nokkurrar aðstoðar frá makker. Þú ert í austur: Suður gefur; allir á hættu.
Meira
KVÖLDMESSUR Laugarneskirkju halda sínu striki. Þar ríkir létt sveifla í tónum og tali og gleðiboðskapur trúarinnar er túlkaður með ýmsu móti. Næstkomandi sunnudagskvöld kl. 20:30 hefst kvöldmessa febrúarmánaðar.
Meira
Jón Skálholtsbiskup Vídalín var fæddur að Görðum á Álftanesi. Stefán Friðbjarnarson staldrar við fornt bakland ungs kaupstaðar, Garðabæjar, og Vídalínskirkju.
Meira
Staðan kom upp í B-flokki skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee. Teymour Radjabov (2.483) frá Aserbaídsjan þykir efni í framtíðar heimsmeistara. Þessi þrettán ára alþjóðlegi meistari fékk stórmeistaraáfanga í mótinu ásamt því að lenda í öðru sæti.
Meira
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik stefnir á fara til Slóveníu í sumar og leika gegn heimamönnum og Króötum til að búa sig undir undankeppni Evrópumótsins.
Meira
ÍSLENSKIR frjálsíþróttamenn verða í æfingabúðum utan landsteinanna um páskana til þess að búa sig undir átök sumarsins. Vitað er að 41 íþróttamaður frá frjálsíþróttadeild FH verður í 11 daga æfingabúðum við Algarve í Portúgal fyrri hluta apríl.
Meira
ÍSLENSKIR körfuknattleiksmenn eru ekki áberandi í Evrópu um þessar mundir en hafa í gegnum árin getið sér gott orð fyrir að vera góðar skyttur. Helgi Jónas Guðfinnsson er sem stendur eini íslenski leikmaðurinn sem hefur körfuknattleik að fullri atvinnu en hann leikur með belgíska úrvalsdeildarliðinu Ieper.
Meira
Gunnar Oddsson, leikjahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi, gekk rétt fyrir helgina frá nýjum eins árs samningi við Keflvíkinga og leikur því með þeim í sumar.
Meira
GOLFKLÚBBUR Hellu og nokkrir hreppar í Rangárvallasýslu hafa stofnað hlutafélag um rekstur golfvallarins að Strönd, sem jafnan er talað um sem golfvöllinn á Hellu.
Meira
KRISTINN Jakobsson , milliríkjadómari í knattspyrnu, hefur fengið verkefni í vor í undankeppni heimsmeistaramótsins. Hann dæmir leik Írlands og Andorra sem fram fer í Dublin 25. apríl.
Meira
KSÍ hefur endurnýjað samninga við Ólaf Þór Guðbjörnsson þjálfara U-17 ára landsliðs kvenna og Ragnheiði Skúladóttur þjálfara U-19 ára landsliðs kvenna.
Meira
Ef litið er á starf lækna í gegnum aldirnar og fram að seinni heimsstyrjöld var aðalstarf þeirra að líkna. Það var ekki fyrr en svæfingalyfin komu til sögunnar og sóttvarnar- og sýklalyfin voru fundin upp í kringum miðja 20.
Meira
Ný réttindaskrá Evrópusambandsins hefur að geyma ýmsar athyglisverðar nýjungar í samanburði við Mannréttindasáttmála Evrópu. Sú spurning verður æ áleitnari að sögn Páls Þórhallssonar hvort "betri helmingur álfunnar" hyggist nú koma sér upp sjálfstæðu kerfi til verndar mannréttindum í samkeppni við Strassborgarstofnanirnar.
Meira
EIN AF þeim plötum sem áttu að vera í jólaflóðinu var frumraun félaganna í Sofandi sem þeir kalla Anguma. Fyrir ýmsar sakir barst skífan ekki til landsins fyrr en fyrir nokkrum dögum, en Sofandi hefur verið að spila til að kynna skífuna á fullu undanfarið, var til að mynda á Húsavík í gærkvöldi, og hyggst láta vel á sér kræla á næstu vikum.
Meira
Markarholt er sjálfseignarstofnun sem stofnuð er til að vinna með einstaklingum og opinberum aðilum að þjónustu við aldraða. Eygló Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur er formaður Markarholts.
Meira
Kröfur Íslendinga um fornmuni og handrit hafa verið nátengdar sjálfstæðisbaráttunni, segir Sigrún Davíðsdóttir. Og vilji Dana til að leysa málið var nátengdur pólitískum aðstæðum eftirstríðsáranna.
Meira
R eykjavíkurflugvöllur hefur lengi verið í úlfakreppu deilna um framtíð hans. Það hefur dregið úr mönnum að fjárfesta á flugvallarsvæðinu sem er illa skipulagt og margar byggingar óhrjálegar.
Meira
Ruth Foss greindist fyrir rúmlega ári með krabbamein í ristli sem breiðst hafði út í lifur. Meinið uppgötvaðist þegar hún var í heimsókn hjá dóttur sinni, Sigrid, sem býr hér á landi ásamt manni sínum og börnum.
Meira
Erla Björk Sigurðardóttir er nemi við Menntaskólann í Kópavogi og einn fjölmargra Íslendinga sem tekið hafa þátt í verkefnum innan Sókrates-áætlunarinnar.
Meira
Talsvert safn íslenskra muna er enn að finna í söfnum í Danmörku þar sem stærstur hlutinn er í geymslu. Danskir fræðimenn hafa ekki fjallað um þá í vísindagreinum en láta þó í ljósi áhuga á að halda munum vegna hinnar sameiginlegu fortíðar landanna. Urður Gunnarsdóttir heimsótti þjóðminjasafnið danska.
Meira
GUÐMUNDUR Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, ritaði grein í Lesbók Morgunblaðsins fyrir nokkrum árum þar sem hann rekur hvaða gripi sé að finna í danska þjóðminjasafninu.
Meira
Í vor verður haldinn í Reykjavík fundur WHO og íslenskra heilbrigðisyfirvalda um mænuskaða og mænuskylda skaða. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Auði Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðing, sem hefur haft forgöngu um að skapa vettvang þar sem þessi mál væru reifuð og þekking hvaðanæva kæmi saman.
Meira
ANNAR hluti menntaáætlunar Evrópusambandsins, Sókratesar, hófst á fyrri hluta síðasta árs og hafa íslenskir nemendur, kennarar og menntastofnanir þátttökurétt í henni á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Meira
Þegar okkur bar að garði sátu nokkrir sjúklinganna inni á vistlegri og rúmgóðri setustofu á spjalli við gesti sína. Kaffiilm lagði frá eldhúskrók sem er í einu horni setustofunnar. Sígild tónlist barst um stofuna.
Meira
Breski rithöfundurinn John Le Carré hefur sent frá sér spennusöguna The Constant Gardener sem hefst á því að ung, bresk kona er myrt í Afríku. Arnaldur Indriðason fjallar um Le Carré og nýju bókina hans.
Meira
Við grúsk á heimili mínu kom í ljós gömul upptaka með viðtali, sem ég átti við Sigríði Þorvarðsdóttur, eiginkonu Einars Olgeirssonar, alþingismann og ritstjóra, skrifar Pétur Pétursson. Meira
TÆKNIN getur sameinað það sem sundrað hefur verið. Sú kann að minnsta kosti að vera raunin með handritasafn Árna Magnússonar, sem nú er bæði á Íslandi og í Danmörku.
Meira
CALVIN Broadus, sem kallaði sig eitt sinn Snoop Doggy Dogg en nú bara Snoop Dogg, hefur átt heldur en ekki viðburðaríka ævi sem tónlistarmaður. Hann komst á allra varir fyrir framlag sitt til rappskífunnar Chronic, sem er ein áhrifamesta rappplata síðustu ára, en þvældist svo rækilega í glæpaiðju og allkyns óáran að hann átti sér varla viðreisnar von. Fyrir jól kom út breiðskífa með Snoop sem virðist ætla að koma honum á beinu brautina að nýju.
Meira
Virða ber mannhelgi og vernda Krafa um upplýst samþykki vegna vísindarannsókna Bann við klónun í tímgunarskyni Vernd persónuupplýsinga Virða ber fjölbreytni fjölmiðla Verkfallsréttur Vernd gegn ástæðulausri uppsögn úr starfi Umhverfisvernd Neytendavernd...
Meira
FÁIR hafa verið eins langlífir í rokkinu og kanadíski tónlistarmaðurinn Neil Young, hvað þá að menn hafi náð að halda áfram að vera í fremstu röð með hverri skífunni á fætur annarri. Fyrir stuttu sendi Young frá sér tónleikaskífu sem er 39. platan hans ef safnskífur eru ekki meðtaldar.
Meira
Og hvað eru svo menn að fjargviðrast út af framtíð flugvallarins eða tvöfaldri Reykjanesbraut eða jarðgöngum upp til fjalla, spyr Ellert B. Schram og telur það ástæðulaust þar sem brátt verði allir Íslendingar fluttir í eina blokk og farnir að versla í einni Smáralind.
Meira
Skoski leikarinn Sean Connery varð sjötugur á síðasta ári en hann hefur í fjóra áratugi verið í sviðsljósinu sem einn fremsti og vinsælasti kvikmyndaleikari samtímans. Arnaldur Indriðason skoðaði feril Connerys en nýjasta mynd gamla Bond-leikarans heitir Finding Forrester.
Meira
Stéttin er ekki stór, en fáeinir Íslendingar hafa af því lifibrauð að selja veiðileyfi. Einn þeirra og sá umsvifamesti, er Árni Baldursson sem stofnaði fyrirtæki sitt Stangveiðifélagið Lax-á árið 1987.
Meira
Grænmetisætur um allan heim glöddust, segir Steingrímur Sigurgeirsson, er franski kokkurinn Alain Passard lýsti því yfir að hann hefði tekið kjöt af matseðlinum.
Meira
BRISTOL er helst þekkt fyrir triphop og þar fremstir í flokki fara Massive Attack-liðar. Á einni skífu þeirrar leikur á gítar Jon Harris sem gerði síðan samning við fyrirtæki þeirra sveitarinnar með hljómsveit sína Sunna. Hafi þessi formáli komið einhverjum til að halda að Sunna væri triphopsveit er eins gott að greiða úr því strax, því sveitin leikur þungt og drungalegt rafeindarokk að hætti Tool og VAST, svo dæmi séu tekin.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.