BANDARÍKJAMENN lýstu í gær miklum áhyggjum sínum vegna aukins ofbeldis í deilum Ísraela og Palestínumanna en 15 manns féllu í gær, sex í tilræði í borginni Netanya í Ísrael og alls níu í loftárásum sem ísraelski flugherinn gerði á Vesturbakkann.
Meira
ÁTTA svissneskir ferðalangar fundust á lífi í helli í Frakklandi í gær eftir að hafa orðið þar innlyksa þegar hellirinn fylltist skyndilega af vatni í hellirigningu á miðvikudag.
Meira
RUDOLF Scharping, varnarmálaráðherra Þýskalands, fær ekki að ganga í hjónaband með konunni sem hann elskar vegna þess að hann er búinn að týna fæðingarvottorðinu sínu.
Meira
BANDARÍSKA matvæla- og lyfjaeftirlitinu (FDA), sem gætir heilsufars Bandaríkjamanna, er teflt í tvísýnu með fjárveitingum frá lyfjaiðnaðinum og þrýstingi frá Bandaríkjaþingi, að því er ritstjóri eins þekktasta læknarits í heimi sagði í gær.
Meira
Fréttir
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 329 orð
| 2 myndir
SAMKVÆMT viðhorfskönnun, sem Gallup hefur gert fyrir Samtök hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki, eru um 70% svarenda hlynnt því að heilbrigðisyfirvöld greiði að hluta lyf sem hjálpa fólki við að hætta að reykja.
Meira
KENNARAFUNDUR Tónlistarskólans á Akureyri hefur sent frá sér ályktun þar sem fram kemur að aðstaða til tónleikahalds og tónlistariðkunar sé bæjarfélaginu til háborinnar skammar.
Meira
"UPPSVEIFLA síðastliðinna ára hefur ekki verið notuð til að greiða niður skuldir Reykjavíkurborgar og tel ég það lykilatriði í niðurstöðum ársreikninga borgarinnar," segir Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfsstæðismanna, í gagnrýni sinni á...
Meira
PATTSTAÐA er orðið sem þingmenn stjórnarflokkanna nota um þá stöðu sem er uppi í málefnum smábáta hvað varðar fyrirhugaða kvótasetningu veiða á ýsu, ufsa og steinbít 1. september nk.
Meira
ÁRSREIKNINGUR Borgarbyggðar var tekinn til seinni umfjöllunar og samþykktur á fundi bæjarstjórnar 10. maí. Ársreikningurinn samanstendur af ársreikningi bæjarsjóðs, framkvæmdasjóðs og félagslegum íbúðum.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 126 orð
| 1 mynd
BONSAI-GARÐURINN í Hellisgerði verður opnaður á mánudaginn. Plönturnar hafa verið klipptar, snyrtar til og þeim hefur verið umpottað eftir dvala yfir vetrartímann og eru núna tilbúnar til sýningar.
Meira
SIGURGEIR Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segir suma bændur vera í þeirri stöðu að geta hvorki leitað til Atvinnuleysistryggingasjóðs eða tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga, svonefnds einyrkjasjóðs.
Meira
TÍU akureyrsk fyrirtæki efna til viðamikillar brúðarsýningar í Ketilhúsinu á sunnudag, 20. maí en hún hefst kl. 14.30. Brúðarpör ganga í salinn kl. 15 og 16. Á sýningunni gefur að líta nánast allt sem hugsa þarf fyrir þegar blásið er til brúðkaups.
Meira
HUGMYNDIR um bryggjuhverfi á landfyllingu í Arnarnesvogi eru meðal þess sem skipulagsnefnd Garðabæjar mun hafa til hliðsjónar í vinnu við breytingar á aðalskipulagi svæðisins, sem verið hefur athafnasvæði Stálvíkur við Arnarnesvog og svæðið vestan við...
Meira
ÍSLANDSPÓSTUR hefur verið að bæta þjónustu sína á Norður-Héraði á síðustu árum og er nú farinn að keyra út póst alla virka daga. Fyrsta maí síðastliðinn var þjónustan aukin en þangað til voru póstferðir fjórum sinnum í viku.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 315 orð
| 1 mynd
HLUTHAFAR í De Beers, stærsta demantafyrirtæki í heimi, samþykktu í gær að ganga að kauptilboði Anglo American-námafélagsins, Oppenheimer-fjölskyldunnar og demantafyrirtækisins Debswana í fyrirtækið. Er kaupverðið næstum 1.900 milljarðar ísl. kr.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 212 orð
| 1 mynd
GUÐBJÖRN Freyr Jónsson varði doktorsritgerð sína í hagnýtri stærðfræði við Cornell University í New York ríki í Bandaríkjunum 28. september sl. Ritgerðin nefnist "Eigenvalue Methods for Accurate Solution of Polynomial Equations".
Meira
19. maí 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 154 orð
| 1 mynd
EF bryggja er innan seilingar fylgir það ævinlega vorinu og sumrinu að menn taka að venja þangað komur sínar með veiðistöng og aðrar nauðsynlegar græjur sem þarf til að krækja í eitthvað úr djúpinu.
Meira
MAÐUR á fertugsaldri hefur í Hæstarétti verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa í tvígang brotist inn í húsnæði og stolið þaðan verðmætum.
Meira
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gerði að umtalsefni á þingfundi í gærkvöldi, undir liðnum fundarstjórn forseta, að þingmenn hefðu ekki fengið í hendur skýrslu Samkeppnisstofnunar um eignatengsl í íslensku atvinnulífi.
Meira
ELLEFU nemendur í 10. bekk Brekkuskóla á Akureyri voru sendir heim úr skólaferðalagi til Danmerkur í vikunni, eftir að þeir höfðu orðið uppvísir að áfengisneyslu í ferðinni. Alls fóru 36 nemendur í ferðina til Danmerkur sl.
Meira
Þrjár íslenskar konur stunda nú meistaraprófsnám í mannlegum samskiptum í herstöð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Nína Björk Jónsdóttir hitti þær yfir kaffibolla til að ræða um námið og fordóma sem þær hafa mætt í samfélaginu.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 175 orð
| 1 mynd
AÐFARANÓTT föstudagsins 18. maí bar hreinkýrin Snotra, og eignaðist hún myndarlegan tarf. Í lok vetrar er það svo að kelfdar kýr eru einu hreindýrin sem ekki eru búin að fella hornin, en þær fella síðan hornin á 1.-11. degi eftir burð.
Meira
Fákeppni einkennir íslenskt atvinnulíf samkvæmt skýrslu Samkeppnisstofnunar, bæði meðal eldri og nýrri fyrirtækjablokka. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir aukinn hlut ríkisins í atvinnulífinu hafa komið sér á óvart.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 162 orð
| 1 mynd
GUÐMUNDUR Vignir Óskarsson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), lýsti yfir ánægju sinni með nýjan kjarasamning sambandsins við launanefnd sveitarfélaga, sem undirritaður var hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi.
Meira
HERRA Jóhannes Gijsen Reykjavíkurbiskup veitir þremur unglingum fermingarsakramentið við messu í Péturskirkju, Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri, á sunnudag, 20. maí kl. 11.
Meira
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 182 orð
| 1 mynd
FIMMTI ársfundur Rafmagnsveitna ríkisins, Rarik, var haldinn á Blönduósi í gær. Meginstarfsemi Rarik var með hefðbundnu sniði árið 2000. Rekstrartekjur fyrirtækisins voru 5.071 milljón króna. Rekstrargjöld ársins önnur en afskriftir og vextir námu 4.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 160 orð
| 1 mynd
BRIMBORG frumsýnir Ford Escape-jeppann á sumarsýningu um helgina. Opið verður á Akureyri og Reykjavík milli kl. 11-16 í dag, laugardag. Ford Escape er nýr jeppi frá Ford í millistærðarflokki og þykir rúmgóður og verður í boði á góðu verði og vel búinn.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 198 orð
| 1 mynd
FUGLAFLENSAN svonefnda er aftur komin upp í Hong Kong og yfirvöld hafa gefið fyrirskipun um að nær öllum alifuglum á svæðinu verði slátrað til að hefta útbreiðslu hennar.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 158 orð
| 1 mynd
VERKFRÆÐISTOFAN Vista hefur gefið Tækniskóla Íslands rafmagnsteikniforrit sem nefnist PCschematic. Það er frá DPS Cad Center í Danmörku, er einfalt og þægilegt í notkun en öflugt og með mikla sjálfvirkni.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 69 orð
| 1 mynd
ÞVÍ fylgir ávallt sérstök tilfinning að standa á hæsta tindi landsins eftir hressilega jöklagöngu í fallegu veðri. Hvannadalshnúkur í Öræfajökli er 2.119 metra hár og á engan sinn líka á Íslandi.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 416 orð
| 1 mynd
SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykavík heldur hið árlega gestaboð fyrir eldri Skagfirðinga búsetta á Suðvesturhorninu sunnudaginn 20. maí. Boðið verður upp á skemmtiatriði og borðin svigna undan kræsingum að vanda. Húsið verður opnað klukkan 13.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 720 orð
| 2 myndir
SELATANGAR eru áfangastaður á göngudegi Ferðafélags Íslands 2001 sem að þessu sinni er haldinn sunnudaginn 20. maí. Selatangar eru forn og merkur útróðrastaður á sunnanverðu Reykjanesi.
Meira
HARÐUR árekstur varð í Keflavík í gærmorgun. Ökumaður annars bílsins var fluttur á sjúkrahús. Áreksturinn var tilkynntur til lögreglunnar fimmtán mínútum fyrir klukkan átta í gærmorgun.
Meira
Í TILEFNI af uppsetningu skilta og merkinga við Sönghelli við Jökulshálsveg við rætur Snæfellsjökuls, skammt frá Arnarstapa, verður hátíð næstkomandi sunnudag kl. 15. Þar verða afhjúpuð upplýsingaskilti og verður ýmislegt á dagskrá.
Meira
AÐALFUNDUR félagsins verður haldinn 22. maí í Norræna húsinu kl. 20. Að loknum aðalfundarstörfum kl. 21 flytur Kári Einarsson rafmagnsverkfræðingur erindi er hann nefnir "Hefur rafgeislun og öflug jarðgeislun áhrif á heilsu manna?".
Meira
ÞORRI starfsmanna í málmsteypu sem framleiðir evrupeninga fyrir Frakkland samþykkti í gær á aðalfundi stéttarfélagsins að leggja niður vinnu og krefjast atvinnuöryggis. Evran tekur endanlega við hlutverki frankans 31.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur frestaði í gær að ákveða refsingu yfir átján ára gömlum pilti sem ákærður var fyrir líkamsárás gegn karlmanni á fimmtugsaldri. Pilturinn "skallaði" manninn einu sinni, þ.e.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 53 orð
| 1 mynd
VEÐRIÐ lék við þessi hross á Eyvindarmúla í Fljótshlíðinni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá. Folaldið er farið að fóta sig vel, og gott betur en það, því það virðist vera í danssveiflu þar sem það klórar sér á kviðnum.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 243 orð
| 1 mynd
HIÐ mikla hryðjuverk sem framið var í verslanamiðstöð í hjarta Ísraels á föstudagsmorgun sýnir rétt einu sinni fram á að baráttan stendur ekki lengur um framtíð Vesturbakkans og Gaza heldur um tilverurétt Ísraels.
Meira
NÝ könnun Samkeppnisstofnunar á verðmerkingum í matvöruverslunum, sem gerð var í apríl og maí, leiðir í ljós að ástand strikamerkinga hefur aldrei verið jafnslæmt.
Meira
SJÚKRAFLUGVÉL frá Flugfélagi Íslands sótti í fyrrinótt tvö börn til Scoresbysunds á Grænlandi. Börnin sem eru 7 og 9 ára höfðu verið bitin illa af sleðahundum og var óttast um líf annars þeirra vegna áverka á hálsi.
Meira
ÍSINN fór alveg af Syðri-Flóa 14. maí en Ytri-Flói varð íslaus helgina 4.-5. maí og er þetta nærri meðalári samkvæmt yfirliti Sigurjóns Rist. Dæling á kísilgúr úr vatninu hófst 8. maí. Dælt er af svæði norðvestur af Ytri-Höfða.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 72 orð
| 1 mynd
ÍSLANDSPÓSTUR hefur flutt rekstrarvörulager sinn frá Reykjavík til Blönduóss. Þær vörur sem ekki fara í gegnum lager fyrirtækisins verða keyptar í heimabyggð hvers afgreiðslustaðar fyrir sig. Afgreiðslustaðir Íslandspósts eru 85 víðs vegar um landið.
Meira
PÓST- og fjarskiptastofnun veitti í maíbyrjun, Íslenska útvarpsfélaginu (ÍÚ) tilraunaleyfi til stafrænna sjónvarpsútsendinga. Fleiri hafa ekki sótt um slíkt leyfi, en munnlegar fyrirspurnir hafa þó borist frá nokkrum aðilum.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 64 orð
| 1 mynd
SENDIRÁÐ Japana á Íslandi var opnað formlega í gær, föstudag, þegar sendiherrann, Masao Kawai, afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt. Sendiherrann hélt veislu í tilefni opnunarinnar og bauð fjölda gesta, m.a.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 48 orð
| 1 mynd
HJÓNIN Marit og Örn Einarsson sem eiga og reka garðyrkjustöðina Silfurtún á Flúðum hafa síðastliðin sjö ár ræktað jarðarber í 1.500 fermetra gróðurhúsi. Uppskerutíminn stendur í um átta vikur í senn, vor og haust.
Meira
KAJAKKLÚBBURINN mun halda kynningu á kajaksportinu og starfsemi klúbbsins í Reykjavík í dag, laugardaginn 19. maí. Kynningin verður frá 11.00 til 15.00 við ylströndina í Nauthólsvík.
Meira
19. maí 2001
| Akureyri og nágrenni
| 82 orð
| 2 myndir
STARFSMENN Bæjarverks á Akureyri voru í óða önn að endurbyggja og laga kantsteina sem víða höfðu farið illa í vetur. Einn starfsmannanna orðaði það á þann hátt að svo virtist sem meira hefði verið um mokstur á kantsteinum en snjó síðasta vetur.
Meira
KÖNNUN sem Verslunarmannafélag Reykjavíkur lét gera meðal félagsmanna sinna leiðir í ljós að á mörgum vinnustöðum VR hefur ekki verið mótuð jafnréttisstefna.
Meira
ORKUVEITA Reykjavíkur telur sig hafa fullan og óskoraðan rétt til að leita eftir jarðhita sem finnast kann nú eða síðar í landi jarðarinnar Hliðs sem Bessastaðahreppur hyggst friðlýsa sem fólkvang.
Meira
AKUREYRARKIRKJA: KA-messa í kirkjunni kl. 14 á morgun, sunnudag. Bryndís Arnarsdóttir, forvarnarfulltrúi, flytur hugleiðingu og KA-félagar aðstoða við messugjörð. Prestur: sr. Svavar A. Jónsson. Kaffisala í Safnaðarheimili eftir messu.
Meira
19. maí 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 417 orð
| 2 myndir
NÝ kort af gönguleiðum í Reykjavík voru formlega kynnt í rafstöðinni í Elliðaárdal í gær. Þá var kynnt veggspjald og bæklingur um Fræðslustíg í Elliðaárdalnum, kort af göngustígum í Heiðmörk og bæklingur um gönguleiðir í Reykjavík.
Meira
Í töflu sem fylgdi frétt um Borgartún 21 á bls. 11 í gær var röng tala. Í töflunni stóð að kostnaður Íbúðalánasjóðs vegna aðlögunar og flutnings hefði numið 35.952.000 krónum en rétta talan er 67.567.000...
Meira
19. maí 2001
| Akureyri og nágrenni
| 62 orð
| 1 mynd
"KERAMIK fyrir alla" býður upp á myndlistarnámskeið fyrir börn eftir að skóla lýkur í vor. Námskeiðið er sérstaklega fyrir börn sem hafa áhuga á að teikna og mála.
Meira
LÍNA.NET mun í sumar fyrst íslenskra fjarskiptafyrirtækja bjóða einstaklingum og fyrirtækjum almenna símaþjónustu yfir IP-símnet, en viðskiptavinir fá þjónustuna í gegnum tengingu við ljósleiðarakerfi Línu.Nets.
Meira
Á SÍÐASTA borgarstjórnarfundi var lögð fram tillaga um að Reykjavíkurborg beitti sér fyrir stofnun sjóminjasafns Reykjavíkur. Safnið yrði á hafnarsvæðinu eða í nágrenni þess og yrði framkvæmdin unnin í samvinnu við aðila sem áhuga hafa á málinu.
Meira
MÖGULEIKI á gerð jarðganga gegnum Vaðlaheiði verður til umfjöllunar á málþingi sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar stendur fyrir á Fiðlaranum við Skipagötu á Akureyri á mánudag, 21. maí. Málþingið stendur frá kl. 10 til 13.
Meira
REKSTUR málaflokka hjá Gerðahreppi lækkaði á síðasta ári úr tæpum 85% af skatttekjum niður í 78,5%. Stafar það af auknum tekjum. Reikningar Gerðahrepps verða teknir til síðari umræðu og afgreiðslu á fundi hreppsnefndar næstkomandi mánudag.
Meira
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur hefur ráðið nýjan byggingarfulltrúa og samþykkt starfslokasamning við menningarfulltrúa. Á síðasta bæjarstjórnarfundi í Grindavík var samþykkt tillaga bæjarráðs að ráða Odd Thorarensen sem byggingarfulltrúa.
Meira
ÞRÓUNARSTOFA Austurlands vinnur að athyglisverðum verkefnum í markaðssetningu Austurlands innanlands sem utan. Annars vegar er um að ræða upplýsingavefinn east-iceland.
Meira
MIÐSTJÓRN Bandalags háskólamanna ályktaði eftirfarandi á fundi sínum 16. maí sl. "Miðstjórn Bandalags háskólamanna fordæmir grófa íhlutun ríkisins í kjaradeilu sjómanna.
Meira
"NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN Íslands er ekki umsagnaraðili um mat á umhverfisáhrifum," segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri stofnunarinnar, en margir hafa gagnrýnt hana fyrir að sitja báðum megin borðsins, það er vinna að mati á áhrifum virkjana á...
Meira
EGGERT Haukdal, fyrrum oddviti í Vestur-Landeyjahreppi, hyggst krefja hreppinn um greiðslu á milljónum króna sem hann telur sig eiga inni hjá hreppnum.
Meira
19. maí 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 155 orð
| 1 mynd
FRAMKVÆMDIR við endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar halda áfram og nú hefur Ístak tekið til við norður-suðurbrautina af fullum krafti. Brautin hefur frá síðustu mánaðamótum verið lokuð fyrir allri flugumferð.
Meira
NÝJA dulkóðunarlausn sem dulkóðar allar tegundir af skjölum er hægt að nálgast frítt á heimasíðu Arcis ehf., www.arc.is. Dulkóðunarlausnin heitir Private Crypto og notar nýtt algrím sem heitir Rijndale AES og dulkóðar það 128 bita dulkóðun.
Meira
ÓHÓFLEGUR viðskiptahalli og útlánaaukning undanfarinna missera, sem stuðlað hefur að umtalsverðri gengislækkun á síðustu mánuðum, ógnar nú stöðugleika fjármálakerfisins, að því er fram kemur í nýjasta hefti Peningamála sem Seðlabankinn gefur út.
Meira
ENN er ekki ljóst hvenær Alþingi Íslendinga verður frestað, en boðað hefur verið til þingfundar í dag, laugardag, kl. 10 árdegis. Gert er ráð fyrir atkvæðagreiðslu kl. 13.30 og umræðu utan dagskrár hálftíma síðar.
Meira
LAGT er til að parket verði lagt á gólf Íþróttahúss Keflavíkur en dúkurinn hefur skemmst og er auk þess talinn of harður. Íþróttahús Keflavíkur er heimavöllur Keflvíkinga í körfuboltanum.
Meira
ALLTAF er stór stund í lífi foreldra og barna þegar kemur að því að útskrifast úr leikskóla. Við tekur tíu ára skólaganga í grunnskóla og því mikið til að hlakka til.
Meira
VEGGSPORT við Gullinbrú efnir í dag, laugardaginn 19. maí kl. 17:00, til hjólreiða á spinninghjólum við undirleik hljómsveitarinnar Buttercup. Komið hefur verið fyrir 150 fermetra tjaldi á planinu fyrir framan líkamsræktarstöðina.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 309 orð
| 1 mynd
LÖGREGLAN í Nýju-Delhí hefur komið á fót sérsveit til að hafa hendur í hári "apamanns" sem hefur valdið mikilli skelfingu meðal íbúa borgarinnar. Yfirvöld hafa einnig boðið andvirði 100.
Meira
RÍKIÐ greiðir um 1.050 kr. fyrir hvern fermetra í leigu fyrir sjö ríkisstofnanir í Borgartúni 21, sem er lægra leiguverð en gerist og gengur á markaðnum, að sögn Þórhalls Arasonar, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu.
Meira
KJARASAMNINGUR Starfsmannafélags Suðurnesja og launanefndar sveitarfélaga hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru 453, 130 greiddu atkvæði. Þar af sögðu 105 já en 25 sögðu nei.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 511 orð
| 1 mynd
LÖG um Seðlabanka Íslands og heimild til að selja hlut ríkissjóðs í Landsbanka og Búnaðarbanka voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi ásamt fleiri frumvörpum efnahags- og viðskiptanefndar.
Meira
19. maí 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 619 orð
| 1 mynd
BRETTAFÉLAG Reykjavíkur, hagsmunasamtök brettaáhugamanna sem styrkt er af Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, hafa tekið á leigu 800 fermetra húsnæði í Borgartúni á athafnasvæði Sindrastáls.
Meira
AÐALFUNDUR Hverfafélags Setbergs og Mosahlíðar verður haldinn þriðjudaginn 22. maí nk. í Setbergsskóla og hefst hann kl. 20 með aðalfundarstörfum.
Meira
19. maí 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 417 orð
| 1 mynd
ÞAÐ er ekki á hverjum degi að hestur tekur þátt í uppfærslu á leikriti, en hann Randver Brúnblesason hefur þó allt frá því í nóvember í fyrra troðið upp á fjölum Borgarleikhússins, í leikritinu Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 46 orð
| 1 mynd
SKARTGRIPAVERZLUN Jóns Sigmundssonar hefur opnað útibú í verzlunarkjarnanum Spönginni í Grafarvogshverfi. Verzlunin býður þjónustu sem viðkemur skartgripum; nýsmíði, viðgerðir eða breytingar.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 475 orð
| 2 myndir
ÓVENJUMARGT hefur verið um manninn á Langjökli undanfarna daga, en ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli hefur boðið 400 blaðamönnum og dekkjakaupmönnum til Íslands til að prófa nýjustu gerð vetrardekkja við alvöru vetraraðstæður.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 233 orð
| 1 mynd
NÆSTELSTI sonur Saddams Husseins Íraksforseta, Qusai, hefur verið kjörinn í forystusveit Baath-flokksins, sem fer með stjórn Íraks. Þykir það benda til að verið sé að búa hann undir að taka við leiðtogahlutverki í framtíðinni.
Meira
SAMKEPPNISSTOFNUN segir í skýrslunni um stjórnunar- og eignatengsl að merki séu um blokkir fyrirtækja í atvinnulífinu og eldri blokkir hafi haldið stöðu sinni frá síðustu könnun 1993.
Meira
19. maí 2001
| Erlendar fréttir
| 276 orð
| 1 mynd
RÚMLEGA helmingur þeirra sem hafa aðgang að Netinu, eða 57,5%, nota það fimm sinnum í viku eða oftar, þar af nota ríflega 49% Netið oft á dag eða daglega. Þetta kemur fram í nýrri könnun um netnotkun landsmanna.
Meira
Í LISTAKLÚBBNUM mánudagskvöldið 21. maí verður dagskrá helguð Taílandi og taílenskri menningu. Taílendingar, sem sest hafa að hér á landi, munu sjá um að skemmta, fræða og kitla bragðlauka gestanna.
Meira
KANADÍSKA sópransöngkonan, Sigrid Carole Thorsteinsson Davis og undirleikari hennar, Harold Brown, halda tónleika í Laugaborg, Eyjafjarðarsveit á morgun, sunnudag kl. 16. Carole er fædd í Winnipeg, en á rætur að rekja til Akraness og Sauðárkróks.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 299 orð
| 1 mynd
AÐALFUNDUR Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands var haldinn nýverið og í skýrslu um starf deildarinnar kom fram að starfið hefur farið vaxandi á undanförnum árum og ný verkefni bæst við á hverju ári.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 129 orð
| 1 mynd
SUMARBÚÐIRNAR Ævintýraland eru að hefja sitt fjórða starfsár. Bæklingur hefur verið gefinn út öll árin og í honum hefur alltaf verið getraun sem börnin hafa svarað og sent inn. Fyrir þrjá getspaka krakka er sem endranær vikudvöl í sumarbúðunum í...
Meira
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir sunnudaginn 20. maí til gönguferðar í þriðja áfanga í raðgöngu um Reykjaveginn, gönguleiðar eftir Reykjanesskaganum til Þingvalla. Í fyrstu tvo áfangana mættu 229 manns. Farið verður með rútu kl.10.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 100 orð
| 1 mynd
NAFN vinningshafa í GSM-getraun, sem viðskiptavinir Símans þreyttu í síðasta mánuði á heimasíðu Símans, hefur verið dregið út. Það var Sesselja Sigurðardóttir sem hafði heppnina með sér og hlaut hún Ericsson T20 GSM-síma auk Frelsiskorts með 10.
Meira
FYRIRHUGAÐ verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 30. og 31. maí mun aðallega valda röskun á göngu- og dagdeildum og skurðstofum á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Áfram verður veitt bráðaþjónusta.
Meira
SAMTÖK atvinnulífsins, SA, kynntu helstu áherslur sínar á aðalfundi í vikunni og í kaflanum um efnahagsmál er að finna harða gagnrýni á Samkeppnisstofnun.
Meira
EKIÐ var á bifreiðina KK-775 á bifreiðastæði við verslunina Nóatún í Rofabæ miðvikudaginn 16. maí um kl. 18.30. Tjónvaldur fór af vettvangi. Bifreiðin KK-775 er Volkswagen Caravelle grá að lit og skemmdist á hægra afturhorni.
Meira
HRETIÐ í vikunni fór illa með fuglalífið því mikill skafrenningur og ofankoma varð til þess að mikið af hreiðrum fór undir snjó. Varp var hafið hjá mörgum tegundum og tjónið því mikið, en búast má við að þeir fuglar, sem voru nýlega byrjaðir, verpi...
Meira
SEÐLABANKI Íslands telur óhóflegan viðskiptahalla og útlánaaukningu fjármálastofnana geta leitt til óstöðugleika í fjármálakerfinu og hugsanlega leitt til fjármálakreppu, líkt og dæmi eru um á Norðurlöndunum og víðar í heiminum.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 830 orð
| 1 mynd
Jakusho Kwong - roshi fæddist í Santa Rosa í Kaliforníu 1935. Hann byrjaði að iðka Zen með japanska Zen-meistaranum Shunryu Suzuki árið 1959. Kwong - roshi stofnaði Sonoma Mountain Zen-setrið í Norður-Kaliforníu árið 1974 og hefur starfað þar og haft aðsetur síðan. Roshi hefur verið kennari "Zen á Íslandi - Nátthagi" síðan 1987 og kemur hingað til lands árlega.
Meira
19. maí 2001
| Innlendar fréttir
| 616 orð
| 1 mynd
ÞRJÁR umsóknir bárust um styrki frá jafnréttisnefnd Akureyrar og samþykkti nefndin þá á síðasta fundi sínum. Kompaníið fékk 85 þúsund krónur til að standa straum af stuttmyndanámskeiði fyrir stúlkur.
Meira
ÞÝSKA ferðaskrifstofan Studiosus Reisen hefur fært Akureyrardeild Rauða kross Íslands vandaðan skjávarpa til fræðslustarfa deildarinnar í þakkarskyni fyrir aðstoð við þýskan ferðahóp sem lenti í rútuslysi á Norðurlandi síðastliðið sumar.
Meira
FYRIR rúmu ári sigraði sósíalistinn Ken Livingstone í kosningum til embættis borgarstjóra í Lundúnum, þrátt fyrir kröftuga mótspyrnu Íhaldsflokksins, Frjálslyndra demókrata og forystusveitar Verkamannaflokksins. Þetta var rifjað um á vefsíðu Múrsins nýlega.
Meira
Þjóðin hefur búið við mikið góðæri undanfarin ár. Slík tímabil standa aldrei til eilífðar eins og allir vita. Þótt hápunktur þessa góðæris sé að öllum líkindum að baki þýðir það ekki að kreppa blasi við.
Meira
Menning
19. maí 2001
| Fólk í fréttum
| 115 orð
| 2 myndir
FEMKE Kuiling heitir hún og kemur frá Hollandi. Í dag kl. 16 opnar hún ljósmyndasýningu í Galleríi Geysi í Hinu húsinu við Ingólfstorg. Hún nam listir í fjögur ár við Academy of Arts í Kampen í heimalandi sínu.
Meira
Leikstjóri Pat O'Connor. Handritshöfundur Herman Raucher, Paul Yurick, Kurt Voelker. Tónskáld Christopher Young. Kvikmyndatökustjóri Edward Lachman. Aðalleikendur Keanu Reeves, Karina Andrews, Charlize Theron, Jason Isaacs, Liam Aiken. Sýningartími 119 mín. Bandarísk. Warner Bros. 2000.
Meira
VORTÓNLEIKAR Barna- og unglingakórs Hallgrímskirkju verða í kirkjunni á morgun, sunnudag, kl. 17. Kórarnir flytja m.a. tvo þætti úr Mesa Basse eftir Gabriel Fauré. Einsöngvari er Hrund Ósk Árnadóttir.
Meira
Engin stjarna Leikstjóri: Art Camacho. Aðalhlutverk: Sebastian Bach, Andre Dice Clay og Angie Everhart. Bandaríkin, 1999. Bergvík. (100 mín). Bönnuð innan 16 ára.
Meira
EIN af allra virtustu trommu- og bassa sveitum sögunnar er efalaust breska sveitin 4 Hero, en sveitin var í forystu er trommu- og bassalistin steig upp úr undirgrundinni um miðjan síðasta áratug.
Meira
KATÝ Hafsteins opnar sölusýningu á fantasíuhúsgögnum og munum í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag, laugardag. Katý hannar og smíðar fantasíuhúsgögn, spegla og aðra hluti úr því sem aðrir hafa ætlað að henda. Sýningin stendur aðeins um helgina, frá kl.
Meira
Skúli Fr. Malmquist og Þórir Snær Sigurjónsson eiga saman kvikmyndafyrirtækið Zik Zak. Skarphéðinn Guðmundsson hlustaði eftir hvað þeir hafa verið að bardúsa í Cannes og hvað er framundan.
Meira
Á ÁRSFUNDI Norrænu glæpasagnasamtakanna hlaut sænski rithöfundurinn Karin Alvtegen norrænu glæpasagnaverðlaunin Glerlykilinn fyrir skáldsöguna Saknad. Áður hefur hún sent frá sér bókina Skuld árið 1998.
Meira
Ólafur Gaukur Þórhallsson gítar, Þórir Baldursson píanó, Bjarni Sveinbjörnsson bassa og Guðmundur Steingrímsson trommur. Fimmtudagskvöldið 17.5. 2001.
Meira
LEIRLISTAKONURNAR Helga Unnarsdóttir og Ingibjörg Klemenzdóttir hafa á undanförnum mánuðum starfað í vinnustofunni Straumi í Hafnarfirði. Nú sýna þær afrakstur dvalarinnar, sem að þeirra sögn hefur verið mjög gefandi.
Meira
Þótt Róbert I. Douglas og Júlíus Kemp þyki enn tilheyra hinni ungu kynslóð íslenskra kvikmyndagerðarmanna eiga þeir samanlagt að baki þrjár myndir í fullri lengd. Skarphéðinn Guðmundsson hitti þá í Cannes þar sem þeir eru við kynningarstörf.
Meira
HARÐKJARNASVEITIN Mínus er komin á samning hjá Victory Records, einu stærsta og virtasta útgáfufyrirtæki heims í þeim geiranum, en á mála hjá því fyrirtæki eru m.a. sveitirnar Earth Crisis, Buried Alive, Snapcase, Strife, Bloodlet og Hatebreed.
Meira
LÖGREGLUKÓR Reykjavíkur heldur sína árlegu vortónleika í Seltjarnarneskirkju í dag, laugardag, kl. 16. Í ár verða sérstakir gestir Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur. Dagskrá þeirra er byggð á suðrænni og léttri stemmningu.
Meira
STYTTA af Michael Jackson og gæluapanum hans, Bubbles, seldist á um 5,5 milljarða króna á uppboði á nútímalist sem haldið var hjá Sotheby's í New York.
Meira
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson barytonsöngvari heldur tónleika í Safnaðarheimili kirkjunnar í Vestmannaeyjum á morgun, sunnudag, kl. 16. Með honum í för að þessu sinni er Jónas Ingimundarson píanóleikari.
Meira
19. maí 2001
| Fólk í fréttum
| 366 orð
| 4 myndir
ÁRLEGA halda nemendur í Ljósmyndaskóla Sissu sýningu á verkum sínum. Árangur níu mánaða stanslausrar vinnu, hugmyndavinnu, vinnu við myrkur, vinnu við ljós. Þetta árið eru þau fimmtán sem bjóða ykkur velkomin að Laugavegi 25, 3. hæð kl. 16 - 19 í dag.
Meira
ÞRIÐJA starfsári Allegro Suzuki-tónlistarskólans lýkur með vortónleikum í dag klukkan 11.00 að Holtavegi í húsnæði KFUM og K. Nemendur eru á aldrinum 3 - 17 ára og koma þeir allir fram á tónleikunum. Kennarar skólans eru fimm.
Meira
LISTASAFN Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum býður upp á táknmálsleiðsögn auk hefðbundinnar leiðsagnar um sýninguna Odd Nerdrum - kitschmálarinn á morgun, sunnudag, kl. 15, en táknmálsleiðsögnin er nú orðin fastur liður í dagskrá...
Meira
KÓR Aðventkirkjunnar í Reykjavík hefur nýlega lokið við upptöku sönglaga Salómons Heiðar organista og tónskálds og hyggst senda frá sér hljómdisk fyrir lok ársins.
Meira
Meðlimir Jagúar eru að leggja lokahönd á breiðskífu í húsnæði sem á að rífa á næstu dögum. Birgir Örn Steinarsson hitti þá Börk, Daða og Samma og athugaði hvort þeir félagar væru í einhverri hættu staddir.
Meira
SMÁVINIR fagrir er yfirskrift vortónleika Kvennakórs Reykjavíkur sem haldnir verða í Langholtskirkju á morgun, sunnudaginn, kl. 20. Á efnisskránni eru m.a lög frá Austur-Evrópu, Finnlandi og Bretlandi.
Meira
Í dag er laugardagur 19. maí, 139. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Kristur dó í eitt skipti fyrir öll fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt yður til Guðs. Hann var deyddur að líkamanum til, en lifandi gjörður í anda.
Meira
19. maí 2001
| Bréf til blaðsins
| 29 orð
| 1 mynd
70 ÁRA afmæli. Nk. þriðjudag, 22. maí, verður sjötug Málfríður Halldórsdóttir, Ísafirði. Hún og eiginmaður hennar, Arnór Stígsson , taka á móti ættingjum og vinum í Oddfellow-húsinu 20. maí kl....
Meira
19. maí 2001
| Bréf til blaðsins
| 16 orð
| 1 mynd
Oft og einatt hafa eðlilegir starfshættir þurft að víkja, segir Guðjón Baldursson, fyrir skorti á góðri samvinnu, metorðagirnd og deilum um keisarans skegg.
Meira
FORELDRAFÉLAG tvítyngdra barna var stofnað þann 5. apríl í Ölduselsskóla að tilstuðlan Foreldrafélags skólans, sem hafði samband við Barböru Kristvinsson og spurði hana hvort hún hefði áhuga á að veita foreldrafélaginu forstöðu.
Meira
Fyrir nokkrum vikum sagði Víkverji frá því að köttur hefði komið og fært honum þröst og af þeim sökum væri hann ekki í náðinni þegar hann kæmi í garðinn því Víkverji hélt að þetta væri annar þrösturinn sem var að byggja sér hreiður í garðinum hans.
Meira
ÉG vil hér í nokkrum orðum tala um það sem ég kýs að kalla stripp-flipp. Næstum daglega geng ég niður Laugaveginn til þess að fara að versla í Bónus. Á leið minni þangað geng ég framhjá kvenfataversluninni Knickerbox.
Meira
19. maí 2001
| Bréf til blaðsins
| 40 orð
| 1 mynd
GULLBRÚÐKAUP. Í dag laugardaginn 19. maí eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Einar Gumundsson, Rauðhömrum 10. Ennfremur á Aðalheiður 70 ára afmæli. Þau taka á móti gestum í Félagsgarði í Kjós, UMF Dreng, sunnudaginn 20.
Meira
Heimafæðing er því í boði sem raunhæfur valkostur, segir Helga Harðardóttir, fyrir heilsuhraustar barnshafandi konur sem búa við ákjósanlegar aðstæður.
Meira
HINN 12. apríl sl. birtist grein í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni "Hinn grimmi Guð". Þar hélt höfundurinn því fram að Guð ætti það til að reiðast.
Meira
Launin sjálf eru helsta speglun þess virðingarleysis og skilningsskorts, segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, sem einkennir viðhorf viðsemjenda okkar.
Meira
PÓSTAFGREIÐSLUR Íslandspósts eru ekki opnaðar fyrr en kl. 9.00 eða 10.00 á morgnana sem er ákaflega óþægilegt fyrir fyrirtæki. Skrifstofur fyrirtækja eru gjarnan opnaðar fyrir kl. 9.
Meira
SÖNGKEPPNI framhaldsskólanema var haldin laugardaginn 28. apríl sl. Keppnin hefur venjulega verið haldin í Laugardalshöllinni en vegna seinkunar, m.a. vegna kennaraverkfalls, misstu nemendur áður frátekið kvöld í Höllinni.
Meira
Í framhaldi af grein Gunnars Stefánssonar, Kvisthaga 16, Reykjavík, sem birtist í Morgunblaðinu 16. maí sl., vil ég upplýsa um eftirfarandi staðreyndir um starfsemi Norræna hússins.
Meira
Sólskinið titrar hægt um hamra og gjár, en handan vatnsins sveipast fjöllin móðu. Himinninn breiðir faðm jafn-fagurblár sem fyrst er menn um þessa velli tróðu.
Meira
Ekki er neitt nýmæli að tekið sé á móti skólabörnum á Þingvöllum, segir Þórhallur Heimisson, en þúsundir skólabarna sóttu staðinn heim ár hvert samkvæmt dagbókum á þessu tíu ára tímabili.
Meira
Aðalbjörg Þorvaldsdóttir fæddist 1. október 1916 á Völlum í Þistilfirði í Norður-Þingeyjarsýslu. Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Húsavík 9. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorvaldur Pálmi Guðmundsson bóndi á Völlum, f. 29.6. 1872, d. 15.11.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 3445 orð
| 1 mynd
Anna Guðmunda Markúsdóttir fæddist í Hákoti í Þykkvabæ 2. nóvember 1913. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Markús Sveinsson, f. 2. apríl 1879, d. 26. júní 1966, og Katrín Guðmundsdóttir, f. 23. ágúst 1883,...
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 1841 orð
| 1 mynd
Ásgeir Pétursson fæddist á Ásunnarstöðum í Breiðdal 24. desember 1918. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Herborg Marteinsdóttir frá Árnagerði í Fáskrúðsfirði, f. 15.5. 1879, d. 28.6.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 665 orð
| 1 mynd
Fyrir hönd fjölskyldu Emilíu Jónasdóttur leikkonu langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum á þessum tímamótum en í dag hefði hún orðið hundrað ára. Amma Emilía fæddist 19. maí 1901 á Þingeyri við Dýrafjörð.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 2286 orð
| 1 mynd
Gunnar Már Ingólfsson mjólkurfræðingur fæddist 24. desember 1944 á Sauðárkróki. Hann lést 11. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Unnur Hallgrímsdóttir húsmóðir, f. 8.1. 1918, d. 20.10. 1976, og Ingólfur Nikódemusson húsasmíðameistari, f. 5.7. 1907, d.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 1163 orð
| 1 mynd
Hjalti S. Svavarsson fæddist í Reykjavík 4. júní 1979. Hann lést 10. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju 17. maí.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 332 orð
| 1 mynd
Jónína Guðrún Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1917. Hún lést þriðjudaginn 1. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskapellu 11. maí.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 1482 orð
| 1 mynd
Júlíus Berg Júlíusson fæddist í Rauðahúsinu í Hrísey 14. apríl 1946. Hann varð bráðkvaddur í Hrísey 10. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Júlíus Stefánsson, smiður í Hrísey, f. 18. desember 1903 á Eyri í Fjörðum, d. 11.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 3311 orð
| 1 mynd
Ólafur Árni Pálmason fæddist 7. maí 1931 á Svarfhóli í Laxárdal, Dalasýslu. Hann lést á heimili sínu, Engihlíð í Laxárdal, 11. maí síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Pálma Finnbogasonar frá Sauðafelli í Miðdölum, f. 25.5. 1892, d. 17.7.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 340 orð
| 1 mynd
Smári Freyr Kristjánsson fæddist í Reykjavík 23. júlí 2000, sonur Margrétar Westlund og Kristjáns Óskarssonar. Hann lést á Borgarspítalanum 4. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hjallakirkju 11. maí.
MeiraKaupa minningabók
19. maí 2001
| Minningargreinar
| 1429 orð
| 1 mynd
Sveinbjörg Pétursdóttir fæddist 15. maí 1912 í Vallanesi í Vallahreppi. Hún lést á sjúkrahúsi Egilsstaða 8. maí síðastliðinn. Stefán Eyjólfsson fæddist 18. febrúar 1901 að Rangalóni á Jökuldal. Hann lést á sjúkrahúsi Egilsstaða 3.
MeiraKaupa minningabók
SÆNSKIR sérfræðingar segja að merkja megi aukinn áhuga fjárfesta á líftæknifyrirtækjum og þar í landi séu m.a. mörg spennandi fyrirtæki í þessum geira.
Meira
ALLS hafa 2.700 starfsmenn sænska fyrirtækisins Ericsson fengið uppsagnarbréf í samræmi við áætlanir fyrirtækisins um endurskipulagningu og sparnað vegna afkomu undir væntingum. Um er að ræða starfsmenn í Svíþjóð og geta 1.
Meira
YFIRMANNI sænska ríkissjónvarpsins SVT, Mariu Curman, hefur verið sagt upp störfum vegna þess að hún átti hlutabréf í fjölmiðlafyrirtækinu MTG sem rekur m.a. sjónvarpsstöðvar í samkeppni við SVT.
Meira
HAGNAÐUR Skýrr hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars nam 15,7 milljónum króna eftir skatta, en á síðasta ári nam hagnaður sama tímabils 103 milljónum króna. Þá var um 70 milljóna króna hagnaður af sölu á örbylgjukerfi.
Meira
REKSTRARNIÐURSTAÐA Tæknivals hf. fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) sýnir 28 milljóna króna tap á fyrsta ársfjórðungi 2001, í stað 16,7 milljóna króna hagnaðar í fyrra. Rekstrartekjur eru nánast hinar sömu og í fyrra eða 1.
Meira
DELTA hf. hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé lyfjafyrirtækisins Pharmamed á Möltu fyrir 10,5 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega einn milljarð króna, og var skrifað undir samning þess efnis á Möltu í gær.
Meira
NORSKA símafyrirtækið Telenor staðfesti í gær að viðræður sínar við bandaríska fyrirtækið SBC um kaup á hlut þess í danska símfyrirtækinu TDC væru farnar út um þúfur.
Meira
INGVAR Kristinsson, formaður Samtaka íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja, segir að málefni greinarinnar heyri nú undir þrjú ráðuneyti, þ.e. iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, samgönguráðuneyti og forsætisráðuneyti.
Meira
19. maí 2001
| Viðskiptafréttir
| 348 orð
| 1 mynd
STJÓRNENDUR SAS segjast hafa áhuga á að kaupa minni flugfélög í Eystrasaltslöndunum og á heimamarkaði en samruni við annað stórt evrópskt flugfélag komi ekki til greina.
Meira
Grilltíminn er genginn í garð. Hrönn Indriðadóttir leitaði ásjár næringarfræðings og yfirmatreiðslumeistara varðandi ráðleggingar á matreiðslu grillkjöts.
Meira
Ef valið stendur á milli gas- eða kolagrills þá er betra að velja gasgrill því þar er hægt að stjórna hitanum betur. Ef nota skal kolagrill er best að nota minna frekar en meira af kolum. Minna kolamagn þýðir minni hiti. Mest skal grilla við 180 gráður.
Meira
ENDINGARTÍMI grilla verður meiri en ella með réttri meðhöndlun en til að halda þeim fallegum þarf að þrífa þau reglulega. Gott er að þrífa grill vel fyrir geymslu á haustin og geyma það ekki úti yfir veturinn.
Meira
Undanfarið hafa birst svör á Vísindavefnum um skrifun á kristalla, kjarnorkusprengingar í geimnum, rafstöðukrafta, nifteindir, trúleysingja, rannsóknir á Y-litningum, Fibonacci-tölur, nafnið "Tellus", rómverskar tölur, geyma fyrir fljótandi...
Meira
Spurning: Ég hef mjög mikið æðaslit á fótum, svo mikið að ég skammast mín fyrir að fara í sund eða sturtu í líkamsræktarstöðvum. Æðaslitið byrjaði þegar ég var um það bil 25 ára en nú er ég 50 ára.
Meira
Nýleg rannsókn á öldrun og Alzheimersjúkdómnum bendir til þess að jákvæð viðhorf og lífsgleði strax á unga aldri dragi úr líkum á sjúkdómum og jafnvel lengi lífið.
Meira
BEINSKEYTT nýtt lyf sem kemur í veg fyrir að krabbamein geti dregið sér næringu og vaxið hefur reynst vel við meðhöndlun dauðvona sjúklinga og eykur það bjartsýni lækna á að áratuga rannsóknir í krabbameinslíffræði séu loksins að skila árangri.
Meira
ÉG VAR ansi lengi að átta mig á því til fulls með hve áhrifamiklum og listrænum hætti Tómas Guðmundsson andæfði kynþáttafordómum í ljóðabók sinni Stjörnum vorsins 1940.
Meira
KRABBAMEINSSJÚKLINGAR um allan heim leita út fyrir vébönd hefðbundinna læknisaðferða í baráttu sinni við sjúkdóminn og læknar þeirra eiga í erfiðleikum með að bregðast við þessu, að því er ný könnun leiðir í ljós.
Meira
FÓTBOLTAMENN sem oft skalla boltann eiga ekki á hættu að hljóta af því heilaskemmdir, að því er vísindamenn greindu frá nýverið. Engar vísbendingar hafa fundist um að þetta valdi vitglöpum.
Meira
STAÐAN kom upp á Enghien-les-Bains ofurmótinu er lauk fyrir skömmu. Franska undrabarnið Etienne Bacrot (2.627) hafði svart gegn Viktor Bologan (2.676). 29. ...Hxb3! 30. cxb3 30. Ka1 Hxc2 er unnið á svart. 30. ...Rc1!
Meira
MATARKÚRABÆKUR sem segjast geta fært konum heim leyndarmálið um hvernig öðlast megi grannan líkama geta gefið mjög villandi upplýsingar að sögn blaðsins The Daily Telegraph .
Meira
LENGI hafa menn velt vöngum yfir því hvernig skýra megi þá staðreynd að dánarmein inúíta á Grænlandi er mjög sjaldan hjarta- og æðasjúkdómar. Þetta hefur komið vísindamönnum á óvart í ljósi þess hve fæði ínúíta er jafnan fituríkt.
Meira
ATVINNUTÓNLISTARFÓLK sem hóf tónlistarnám á unga aldri hefur meira af gráu efni á sumum svæðum í heilanum en þeir sem ekki leggja stund á tónlist, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var við Harvard-háskóla.
Meira
ÞÓTT "krakk"-börn séu einhver mest sláandi táknin fyrir fíkniefnavandann í Bandaríkjunum hafa rannsóknir, er gerðar hafa verið frá því í byrjun níunda áratugarins, sýnt fram á að þótt fóstur komist í snertingu við kókaín hefur það ekki þær...
Meira
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkjunnar tileinkuð fólki í leit að bata eftir tólfsporakerfinu verður í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudagskvöldið 20. maí kl. 20:30. Þar eru allir velkomnir til tilbeiðslu og æðruleysis.
Meira
HEIMSMEISTARAR Frakka í handknattleik hafa hætt við þátttöku í Supercup-mótinu í haust, en það fer fram í Zwickau, Dresden og Riesa í Þýskalandi um mánaðamótin október/nóvember. Til mótsins er boðið fremstu handknattleiksþjóðum heims í karlaflokki.
Meira
"ÞAÐ man enginn eftir þeim sem lenda í öðru eða þriðja sæti; það sem skiptir öllu máli er að sigra og vinna titla. Auðvitað erum við taugaóstyrkir þessa síðustu daga fyrir svona stórleik, en um leið og hann verður flautaður á gleymist allt slíkt. Við erum með aðra höndina á titlinum og það verður allt brjálað hér í Magdeburg ef okkur tekst þetta og lyftum meistaraskildinum eftir leikinn á sunnudaginn," sagði Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður hjá Magdeburg, við Morgunblaðið í gær.
Meira
HENNING Fritz , markvörður Magdeburg , hornamaðurinn Erik Göthel og rússneska skyttan Vassili Kudinov spila kveðjuleik sinn með félaginu á morgun. Fritz hefur gert samning við Kiel , Göthel fer til liðs í 2.
Meira
HENNING Freyr Henningsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka í körfuknattleik fyrir næsta tímabil. Haukar leika í 2. deildinni en lið þeirra missti naumlega af sæti í 1. deildinni á nýliðnu tímabil.
Meira
SAUTJÁN af tuttugu þjálfurum í þýsku 1. deildinni spá Magdeburg sigri gegn Flensburg. Zvonimir Serdarusic, þjálfari Kiel, er einn þeirra fáu sem telur að Flensburg vinni þrátt fyrir að liðið leiki á útivelli.
Meira
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, mun leiða sína menn í úrslitaleikinn á móti Preston um sæti í ensku úrvalsdeildinni á þúsaldarvellinum í Cardiff mánudaginn 28. maí. Það er ekki síst fyrir frammistöðu Guðna með Bolton á tímabilinu sem liðið er komið alla leið í úrslitaleikinn. Guðni hefur átt frábært tímabil - líklega sitt besta frá upphafi - og í leikjunum tveimur á móti WBA í úrslitakeppninni kórónaði Guðni frammistöðu sína með því að skora fyrir sína menn í báðum leikjunum.
Meira
SIGBJÖRN Óskarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í handknattleik, í stað Borisar Bjarna Akvachev, og skrifaði hann undir eins árs samning við Eyjamenn í gær.
Meira
ALFREÐ Gíslason er kominn í draumastöðu, eins og hann orðar það sjálfur. Lið hans, Magdeburg, leikur hreinan úrslitaleik um þýska meistaratitilinn við Flensburg á morgun, en það er ekki nema hálf sagan. Magdeburg á gullið tækifæri til að verða fyrsta félagið úr gamla Austur-Þýskalandi til að veita meistaraskildi Þýskalands viðtöku og eftirvæntingin í borginni, og langt út fyrir hana, er gífurleg af þeim sökum.
Meira
Nýliðar Þórs í 1. deild hófu leiktímabilið með því að sigra Leiftur 3:0 á Þórsvellinum í gær. Ferill liðsins í 2. deild var nánast samfelld sigurganga og ljóst að leikmenn eru þyrstir í sigra og mörk.
Meira
MIKIÐ fjör var við höfnina í Vestmannaeyjum í gær þegar fyrstu trollbátarnir komu inn til löndunar eftir verkfall. Á meðal þeirra var Háey VE, sem er 114 rúmlesta togbátur, en heildaraflinn var um 15 tonn eftir um 36 tíma veiðiferð.
Meira
SJÓMENN fá nærri einni milljón króna hærri örorkubætur við 100% örorku en aðrar stéttir, samkvæmt lögbundnum slysatryggingum. Samkvæmt lögfestum samningum fá sjómenn 63.719 krónur í örorkubætur fyrir hvert örorkustig frá 1% til 25%, 127.
Meira
KRÓKABÁTAR veiddu samtals 6.877 tonn af ýsu frá 1. september 2000 til 10. maí í ár en við úthlutun aflamarks fyrir fiskveiðiárið 2000/2001 var krókabátum áætlaður 3.000 tonna ýsuafli. Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2000 til 31.
Meira
Sit ég undir sólareldi, senn því vakna landið má. Klæðist grundin geislafeldi, gyllir sunna unnir blá. Yfir morgni, ofar kveldi eilíf fagna loftin há. Sé ég beltin hamra háu hefjast upp í loftin víð, sem á tignu bergin bláu bera ljós um morguntíð.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 35 orð
| 1 mynd
24. maí kl. 17 Setning Kirkjulistahátíðar, Uppstigningaróratoría Bachs og opnun tveggja myndlistarsýninga. 25. maí kl. 17 Setning málþings um kirkju- arkitektúr. 26. maí kl. 10 Málþing um kirkjuarkitektúr. 26. maí kl. 12 Laudes - hádegistíðagjörð. 26.
Meira
Með stálsvala hönd strjúka stormar vors yfir lönd. Ljúka tekur váköldum vetri, verður tíð betri. Björt um bláhnjúka blikuský fjúka. Regnhryðjur rjúka, rifa fanndúka. Glöðu gullletri grifflum sólstafa vorvindar grafa í fannbráðið: brag um betri...
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 2016 orð
| 4 myndir
Bob Dylan er aðeins maður með gítar, munnhörpu, og hljómsveit, og hann situr stundum við píanó og semur lög og texta um konuna sína, börnin eða samfélagið. Enginn veit nákvæmlega hvað er að gerast, en hann á sextugsafmæli í maí og er bæði þekktur og virtur í sínu fagi: rokkinu. Hann hefur spilað, sungið (og dansað) frá því að hann man eftir sér.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 3918 orð
| 1 mynd
ÞEGAR franski rithöfundurinn Victor Hugo var jarðsettur í París í maí árið 1885 gáfu vændiskonur vinnu sína í tilefni dagsins. Sagan segir að allt hafi logað í djöfullegri orgíu á túnunum við Champs Elysées.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 565 orð
| 1 mynd
Áskell Másson tónskáld hefur náð útgáfusamningum við nótnaútgáfufyrirtæki bæði í Bandaríkjunum og í Sviss. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við hann um þýðingu þessa.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 53 orð
| 1 mynd
1962 : Bob Dylan 1963 : The Freewheelin' Bob Dylan 1964 : The Times They Are A Changin 1964 : Another Side Of Bob Dylan 1965 : Bringing It All Back Home 1965 : Highway 61 Revisited 1966 : Blonde On Blonde 1968 : John Wesley Harding 1969 : Nashville...
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 272 orð
| 3 myndir
HÖGGMYND eftir Gerði Gunnarsdóttur myndhöggvara hefur verið valin til þess að prýða torg í borginni Qingdao í Kína. Verkið verður sett upp framan við nýbyggða menningarmiðstöð og verður afhjúpað um mánaðamótin október/nóvember.
Meira
ÉG fór í bíó síðasta laugardagskvöld en missti þó ekki af Evróvisjónútsendingunni því ég hafði séð hana oft áður. Evróvisjón er strangt til tekið ekki dægurlagakeppni. Til þess þyrfti hún að breytast frá ári til árs og endurspegla samtíma okkar.
Meira
"Vandinn kann ekki síst að liggja í því að íslensk eyru eru óvön mállýskumun, við erum óvön fjölbreytni í framburði tungunnar, slíkt lætur ankannalega í eyrum: Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, orti Snorri Hjartarson á sínum tíma og hafi þau orð nokkurn tímann átt við rök að styðjast þá gera þau það naumast lengur."
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 420 orð
| 1 mynd
KIRKJULISTAHÁTÍÐ hefst í Hallgrímskirkju á uppstigningardag, 24. maí. Kirkjulistahátíð er alþjóðleg listahátíð, sem haldin er að frumkvæði Listvinafélags Hallgrímskirkju annað hvert ár á móti Listahátíð í Reykjavík.
Meira
I Sagan segir að þegar spænski rithöfundurinn Cmilo José Cela hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1989 hafi tveir Mexíkóskir rithöfundar verið efstir á blaði hjá sænsku akademíunni fram á síðustu stundu, ljóðskáldið Octavio Paz og skáldsagnahöfundurinn...
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 358 orð
| 3 myndir
SKOSKI rithöfundurinn Irvine Welsh hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem heitir Glue (Lím). Þar segir frá fjórum piltum sem vaxa úr grasi í niðurníddum blokkarhverfum Edinborgar.
Meira
SÝNING á verkum Messíönu Tómasdóttur verður opnuð í Sverrissal Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar í dag, laugardag, kl. 16. Messíana er fædd árið 1940 í Reykjavík.
Meira
ÉG hafði fengið tilkynningu um að ég ætti pakka niðri á aðalpósthúsi og stakk seðlinum í úlpuvasann. Það var farið að hlýna í lofti eftir frosthörkurnar og komin krapadrulla á göturnar.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 766 orð
| 4 myndir
Í sumar verður haldin öðru sinni þjóðlagahátíð á Siglufirði. Hún fer fram dagana 10.-15. júlí. Á hátíðinni verður boðið upp á tíu mismunandi námskeið fyrir börn og fullorðna auk fjölbreyttra tónleika, lygavöku og þjóðlagamessu.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 3327 orð
| 2 myndir
Dr. Graham Farmelo skynjar skyldleika með ljóðum og jöfnum. Enda hefur þverfagleg sýn hans valdið straumhvörfum í Vísindasafninu í London þar sem óvenjulegum leiðum er beitt til að afhjúpa framandi heim vísindanna og auðvelda sýningargestinum skilning á umhverfi sínu og reynsluheimi. Í samtali við FRÍÐU BJÖRK INGVARSDÓTTUR segir hann meðal annars frá samstarfi safnsins við þekkta listamenn, áhuga sínum á bókmenntum og krafti ímyndunaraflsins.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 113 orð
| 1 mynd
Jóhann Freyr Björgvinsson er ungur listdansari sem heldur sýningu í Tjarnarbíói á sunnudagskvöld undir yfirskriftinni Úr viðjum. INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR ræddi við hann.
Meira
19. maí 2001
| Menningarblað/Lesbók
| 275 orð
| 1 mynd
Í fornritunum er víða getið um það, að menn hafi farið að biðja sér kvonfangs. Og þótt kannski oftar en ekki hafi annað ráðið ferð en ástin heit, er fráleitt að ætla að það hafi verið algild regla. Við skulum líta á nokkur sýnishorn.
Meira
Ásbjörn kemur að máli við Skeggja: "Svo er með vexti frændi að mér leika kvonföng í hug og vil eg ráða ráði mínu." Skeggi segir: "Hver er kona sú er hugur þinn horfir helst á?
Meira
Hárgreiðsla og förðun brúðarinnar þarf að endast allan giftingardaginn og vera jafnfalleg að kveldi þessa erilsama dags og hún var þegar fagmaðurinn fór höndum um hana allt að tíu tímum áður.
Meira
Andi liðinna ára var í loftinu þegar Laura Sigríður Thorsteinsson gekk að eiga unnusta sinn, Aurelio Ravarini, íklædd brúðarkjólum ættmæðranna sem Laura er sannfærð um að færi gæfu í hjónabandið. Brúðkaupin voru tvö, annað á Íslandi og hitt á heimaslóðum brúðgumans á Ítalíu.
Meira
Að mörgu að hyggja þegar stóri dagurinn er skipulagður. Hvort sem draumabrúðkaupið hefur verið fullbúið í huganum í mörg ár eða er enn á hugmyndastigi er hjálpin nærri.
Meira
Á öldum áður var hjónaband öðru fremur kaupsamningur. Allt var mun flóknara en nú gerist. Í bók sinni um merkisdaga á mannsævinni fjallar Árni Björnsson m.a. um festar og trúlofun og brúðkaup og lýsir hvernig það allt gekk fyrir sig, auk þess sem hann gefur yfirlit um málin allt til þessa dags.
Meira
BRÓÐIR pilts, sem heima átti við Mubifljótið [á Nýju-Gíneu], samdi um hjúskap hans og meyjar frá Finaga. Þegar sá tími kom, að stúlkan skyldi ganga á vit brúðguma síns, neitaði hún að fara.
Meira
Í gegnum tíðina hafa menn og konur beitt ýmsum ráðum til að auðvelda sér að ná í maka. Árni Björnsson nefnir þá hluti töfrabrögð og kann á þeirri sögu betri deili en margur annar.
Meira
Brúðkaupsveislan stóð í þrjá daga 4 Ást í Íslendingasögunum 5 "Fyrst skaltu drepa og svo máttu kvænast" 6 Jakob kvænist Leu og Rakel 6 Brúðurin flutt heiman með valdi 6 "Varstu að flauta, elskan?
Meira
Á kjóllinn að vera íburðarmikill eða látlaus, kremaður eða hvítur? Starfsfólk brúðarkjólaleiganna leiðbeinir brúðhjónum við val á hátíðarklæðnaði.
Meira
NETHEIMAR eru uppfullir af upplýsingum sem auðvelda tilvonandi brúðhjónum undirbúning brúðkaupsins og virðast hjálplegir höfundar sumra síðnanna búa yfir óþrjótandi hugmyndaauðgi.
Meira
Brúðarvöndurinn er skartgripur fyrir konuna og á að lýsa persónu hennar. Hvort sem hún er rómantísk eða raunsæ, finnum við rétta vöndinn," segir Hjördís Jónsdóttir, blómaskreytingameistari hjá Blómavali.
Meira
Giftingarhringurinn er ekki aðeins fagur skartgripur heldur er hann þrunginn meiningu, hlutgervingur ævarandi ástar tveggja einstaklinga. Hringurinn á sér þúsunda ára sögu en er enn í dag eitt sterkasta tákn þeirra tengsla og trúfestu sem brúðhjón heita hvort öðru á brúðkaupsdaginn.
Meira
Til að hjónaband geti lifað af öll veður þurfa ákveðnir þættir nauðsynlega að vera fyrir hendi. Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal, sem báðar eru sálfræðingar, kunna skil á þeim málum.
Meira
Ég leyfi ímyndunaraflinu alveg að fara á flug þegar ég set saman brúðarvönd," segir Kristín Ólafsdóttir, eða Kiddí eins og flestir kalla hana, blómaskreytingameistari og eigandi Blómabúðar Akureyrar.
Meira
Brúðurin er miðpunktur athyglinnar á brúðkaupsdaginn og vill þá hver kona skarta sínu fegursta. Íslensk hönnun er tilvalin fyrir þær sem kjósa einstakar flíkur og stílhreint skart í samhljómi við náttúruna.
Meira
Laban sagði við Jakob: "Skyldir þú þjóna mér fyrir ekki neitt, þó að þú sért frændi minn? Seg mér, hvert kaup þitt skuli vera." En Laban átti tvær dætur. Hét hin eldri Lea, en Rakel hin yngri.
Meira
Jesús frá Nasaret hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og var ekki að fara með þær í launkofa, heldur leyfði mönnum óspart að heyra og oftar en ekki á opinberum vettvangi.
Meira
Siðir og venjur fólks taka gjarnan einhverjum breytingum í aldanna rás, og ýmis ferli tengd brúðkaupum hafa ekki farið varhluta af því. Til að fræðast nánar um þá hluti var akureyrski þjóðfræðingurinn Símon Jón Jóhannsson heimsóttur.
Meira
Brúðartertan kórónar góða veislu. Hjátrúin segir að allir gestir verði að fá sneið af tertunni svo hjónunum megi hlotnast gæfa og er þeirri reglu oftast fylgt enda fáir sem slá hendinni á móti bragðgóðri brúðartertu.
Meira
Hjónabandið þekkist meðal allra þjóða, en sums staðar hafa tíðkast venjur og eru jafnvel enn við lýði, sem okkur finnst einkennilegar, að ekki sé fastar að orði kveðið.
Meira
Ljóðabókin "Spámaðurinn", eftir Kahlil Gibran, er með þekktari ritverkum heimsbókmenntanna. Bókin, sem fjallar um spámanninn Almústafa, er mest selda ljóðabók á Íslandi frá upphafi ritlistar.
Meira
Regn draup á svellbunka á hlaði Langholtskirkju. Það var kvöld og meðhjálparahjónin enn að störfum í kirkjunni. Brúðkaupsklætt par strunsar út úr strætisvagni á stoppistöð neðan við kirkjuna og tekur stefnu á kirkjudyr.
Meira
Þórbergur Þórðarson, rithöfundur frá Hala í Suðursveit, er landsmönnum að góðu kunnur. Í einni bóka sinna greinir hann frá því, er foreldrar hans gengu í hjónaband, og gerir það auðvitað með sínu einstaka húmoristíska lagi. Hér er birtur útdráttur úr þeirri lýsingu hans.
Meira
ÞÓTT rauðar rósir séu vissulega tákn rómantíkur og huggulegheita duga þær skammt, einar og sér, til að viðhalda ástinni og færa hjón nær hvort öðru.
Meira
Ekki er sama hvar borið er niður, vilji maður komast að því hvað brúðkaupsafmælin eru kölluð og getur munað þar allmiklu frá einni heimild til annarrar. Einkum hefur þetta tekið breytingum með aukinni hagsæld íbúanna og framförum í tækni, sem m.a. hefur getið af sér marga nýja vöruna.
Meira
Á síðari árum hafa giftingar utan sjálfra kirkjuhúsanna færst í vöxt, bæði hér á landi sem erlendis, og eflaust eru þeir teljandi á fingrum annarrar handar íslensku prestarnir sem ekki hafa fengið beiðni um eitthvað slíkt hér á landi.
Meira
Haustið 1767 var mikið og veglegt brúðkaup haldið á Íslandi. Bar það yfir sér anda íslenskra miðalda og þó jafnframt samtímasiða frá meginlandi Evrópu. Í bókinni "Öldin átjánda" er fjallað um þennan atburð á eftirfarandi hátt.
Meira
Nú er þar til máls að taka að Hallgerður vex upp, dóttir Höskulds, og er kvenna fríðust sýnum og mikil vexti og því var hún langbrók kölluð. Hún var fagurhár og svo mikið hárið að hún mátti hylja sig með. Hún var örlynd og skaphörð.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.