TVEIR leikir fara fram í átta liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í kvöld. Stórleikurinn verður án efa í vesturbænum þar sem KR tekur á móti FH, sem situr á toppi Landsbankadeildarinnar. Á Kópavogsvelli tekur HK, sem sló út bikarmeistara ÍA, á móti Val en bæði þessi lið eru í toppbaráttu 1. deildar. Morgunblaðið fékk Ólaf Þórðarson, þjálfara bikarmeistara Skagamanna, til að spá í leiki kvöldsins.
Meira