LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði 14 ökumenn fyrir of hraðan akstur á einni klukkustund í Safamýrinni í gær. Hámarkshraði þar er 30 km og voru flestir ökumennirnir á 50-60 km hraða.
Meira
Digranes | Um 200 ungmenni komu saman í Digraneskirkju á vegum ÆSKR (Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum) sl. mánudagskvöld til að taka þátt í árlegri þrautakeppni.
Meira
ÞÝSK kona, Doris Kolberg að nafni, gekk um 60 km leið í 14 klukkustundir í fyrrinótt, frá Herðubreiðarlindum út að þjóðvegi við Mývatn þar sem hún náði að stöðva bíl og útvega sér hjálp.
Meira
Í TILEFNI af 20 ára afmæli Lagnafélags Íslands verður haldin lagnasýning í Vetragarðinum Smáralind, dagana 6. til 8. október. Þema sýningarinnar - Lagnakerfi í nútíð og framtíð.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ALLT útlit er fyrir að plágu fiðrildalirfunnar sem herjað hefur illilega á birkiskóga á Austurlandi sl. fjögur til fimm ár sé nú lokið enda varð lirfunnar og maðka hennar ekki vart í sumar.
Meira
NÍTJÁN ára piltur var tekinn á 142 km hraða í Ártúnsbrekku á þriðjudagskvöld og missir ökuskírteinið auk sektar. Segist lögreglan vonast til að þessi úrræði hafi loksins tilætluð áhrif á piltinn sem hefur ítrekað brotið umferðarreglur.
Meira
MJÓLKA, sem er einkarekin mjólkurstöð, hefur verið að hasla sér völl á markaði þar sem alger einokun hefur ríkt til þessa en Osta- og smjörsalan er með nær 100% markaðshlutdeild í ostum að undanskildum fetaosti.
Meira
Grímsey. | Almennt er ekki mikið um blómskrúð við nyrsta haf og þess vegna þykir sérstaklega gaman að sjá blómstrandi írislauk í fallegri októbersólinni í garðinum hennar Jórunnar Magnúsdóttur, húsmóður að Miðgörðum í Grímsey.
Meira
BODY Shop á Íslandi fagnar 15 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því fá viðskiptavinir 25% afslátt af allri vöru í verslunum The Body Shop dagana 5.-8. október.
Meira
BRIMBORG frumsýnir um helgina nýjan og endurhannaðan Ford Transit. Liðnir eru ríflega fjórir áratugir síðan þessi tegund sendibíla kom fyrst á markaðinn hér á landi.
Meira
Washington. AP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur hvatt til þess að veiðar sem valda umhverfisspjöllum verði stöðvaðar og sagt að stjórn sín hyggist beita sér fyrir banni við botnvörpuveiðum á úthöfunum eða strangari reglum um þær.
Meira
ÞINGFUNDUR hefst kl. 10.00 í dag. Á dagskrá eru umræður um fjárlagafrumvarp næsta árs. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra mun mæla fyrir frumvarpinu. Í kjölfarið verða umræður um...
Meira
Seltjarnarnes | Að ósk bæjaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur heilbrigðisráðuneytið fallist á að heimila fjölgun dagvistarrýma fyrir aldraðra frá og með 1. september síðastliðnum.
Meira
ÞJÁLFUN, kennsla og þjónusta við börn með Downsheilkenni og fjölskyldur þeirra er meðal þess sem rætt verður á ráðstefnu sem fram fer á Grand hóteli í dag og á morgun.
Meira
Eftir Örn Þórarinsson Austur-Húnavatnssýsla | Í eftirleitum í Laxárdalsfjöllumum á dögunum fundust tveir veturgamlir hrútar sem gengið höfðu úti í fyrravetur. Hrútarnir voru frá bæjunum Holtsmúla og Stóru-Gröf ytri í Skagafirði.
Meira
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands mun standa fyrir stjórnmálaskóla ætluðum konum um komandi helgi, 6. - 7. október. Markmið skólans er að vekja áhuga á stjórnmálum meðal kvenna og kynna þær leiðir sem konur hafa til áhrifa.
Meira
FERÐAKLÚBBURINN 4x4 hvetur til samstöðu gegn náttúruspjöllum, en óskar þess að ferðamenn sem fylgja vegslóðum landsins fái að fara óáreittir um landið okkar.
Meira
Sokoto. AFP. | Margir kvíða því að þurfa að leiða lífsförunautinn upp að altarinu, umstangið í kringum athöfnina er mikið og flestir eru því fegnir þegar hún er að baki.
Meira
Elista. AP. | Búlgarinn Veselin Topalov, heimsmeistari FIDE, og Rússinn Vladimir Kramnik, heimsmeistari klofningssambands Kasparovs og Shorts, gerðu í gær jafntefli í sjöundu skákinni í sameiningareinvíginu um heimsmeistaratitilinn í skák.
Meira
FJÖLMÖRG þingmál; fyrirspurnir, frumvörp og tillögur, voru lögð fram á Alþingi í gær. Nokkur þeirra eru mál, sem einnig voru lögð fram á síðasta þingi. Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur t.d. lagt fram frumvörp sín um Ríkisútvarpið ohf.
Meira
Washington. AFP. | Repúblikanaflokkurinn reynir nú að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur af hneykslismáli Marks Foleys, fyrrverandi þingmanns í Texas.
Meira
VEIÐAR á íslenzku sumargotssíldinni eru nú hafnar. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu höfðu 846 tonn borizt á land um miðjan dag í gær en leyfilegur heildarafli er 138.000 tonn.
Meira
STJÓRN Samvinnutrygginga hefur ákveðið að heiðra minningu Ólafs Jóhannessonar, fyrrverandi forsætisráðherra og prófessors í lögum, með því að veita Háskólanum á Akureyri styrk að upphæð 10 milljónir króna til að efla nám í lögfræði við skólann.
Meira
STURLA Böðvarsson, samgönguráðherra, segir að það valdi sér vonbrigðum að fjölgun snertilendinga frá árinu 2005 hafi að stærstum hluta átt sér stað á Reykjavíkurflugvelli og honum þykir æskilegt að stórar flugvélar lendi frekar á Keflavíkurflugvelli en...
Meira
HAUKUR D. Þórðarson, fyrrum yfirlæknir á Reykjalundi, lést á heimili sínu 4. október, 77 ára að aldri. Haukur fæddist 3. desember 1928 í Reykjavík, sonur hjónanna Þorgerðar Jónsdóttur húsfreyju og Þórðar Þórðarsonar bónda og verkamanns.
Meira
SÁÁ heldur árlegan hátíðar- og baráttufund sinn í Háskólabíói þriðjudaginn 10. október kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19.00. Í anddyri Háskólabíós mun verða kynning á félagasamtökum sem helga starf sitt málefnun áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Meira
HÚS undir heilsuræktarstöð verður væntanlega risið milli Íþróttahallarinnar og Sundlaugar Akureyrar næsta vor og starfsemi Vaxtarræktarinnar flyst þangað næsta haust.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is AÐEINS þrisvar sinnum hefur verið hlýrra í septembermánuði í Reykjavík en í nýliðnum mánuði frá því mælingar hófust, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, og var sl. september sá hlýjasti í 48 ár.
Meira
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir, alþingismaður og fyrrverandi umhverfisráðherra, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.
Meira
JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann myndi bjóða sig fram í Reykjavík, og hann myndi sækjast eftir að leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Meira
Fáskrúðsfjörður | Fáskrúðsfirðingar hafa fengið nýjan og fullkominn slökkvibíl á staðinn. Hann er af gerðinni Scania P420, með drif á öllum hjólum. 4000 lítra af vatni er hægt að hafa í bílnum og 200 lítra af froðu.
Meira
Meðferð ekki lokið Í grein minni í Morgunblaðinu í gær um beitingu jafnræðisreglu var Eimskipafélag Íslands nefnt meðal fyrirtækja sem samkeppnisyfirvöld hefðu komist að niðurstöðu um að brotið hefðu gegn mikilvægustu ákvæðum samkeppnislaga.
Meira
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra, er komið í samvinnu við Kramhúsið Ljósið mun standa fyrir skemmtilegum dansi í safnaðarheimili Neskirkju í samvinnu við Kramhúsið.
Meira
Ramallah. AFP. | Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét í gær stuðningi Bandaríkjastjórnar við Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, sem hefur átt undir högg að sækja.
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is MND-sjúklingar á Íslandi þurfa að leggjast inn á stofnun þegar öndunarerfiðleikar, sem óhjákvæmilega fylgja sjúkdómnum er hann ágerist, fara að gera vart við sig.
Meira
Strangtrúaður gyðingur í Jerúsalem grandskoðar ávöxt til að skera úr um hvort hægt sé að nota hann ásamt þremur öðrum táknrænum hlutum á meðan á Sukkot, árvissri hátíð gyðinga, stendur.
Meira
ÞINGMENN úr öllum flokkum vilja að menntamálaráðherra verði falið að skipa nefnd sem athugi stöðu staðbundinna fjölmiðla og rekstrarumhverfi þeirra, og skili skýrslu þar sem gerð verði grein fyrir þróun markaðarins undanfarin ár, og koma með tillögu um...
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is INNMATUR og afurðir úr honum njóta nú aukinna vinsælda og seljast lifur, hjörtu og slátur vel. Slátur fæst á ýmsum vinnslustigum og frosin ósoðin lifrarpylsa og blóðmör seljast sem aldrei fyrr.
Meira
Eftir Sigurð Sigmundsson Eystsri-Rangá | Sett hefur verið ný brú yfir Eystri-Rangá. Brúin er skammt frá eyðibýlinu Reynifelli en þar er frístundahúsabyggð með um fjóra tugi húsa.
Meira
SIGURÐUR Gestsson hefur rekið Vaxtarræktina í kjallara Íþróttahallarinnar í tæpan aldarfjórðung. Hann segir um það bil tíu ár síðan hann viðraði fyrst þá hugmynd við forráðamenn bæjarins að reisa hús eins og nú hefur verið samþykkt fyrir heilsurækt...
Meira
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is "OKKAR barátta hefur snúist um að eiga raunverulegt val. Ef ég fer í öndunarvél í dag þá er það það sama og að lokast inni á stofnun. Ég flokka það ekki sem val, ég myndi frekar velja að deyja.
Meira
RÁÐSTEFNA um heilsu og vellíðan verður haldin að Kríunesi við Elliðavatn helgina 6.-8. október n.k. Ráðstefnan ber heitið Healing the Healers, Medicine, Perception and Spirituality.
Meira
LÖGREGLAN í Kópavogi leitar enn tveggja manna sem brutu sér leið inn í hús í vesturbæ Kópavogs í gærmorgun og réðust á húsráðanda með kúbeinið að vopni. Telur lögregla að tilefni árásarinnar hafi verið bílaviðskipti milli mannanna.
Meira
Peking. AFP | Starfsmenn Pekingborgar hafa þurft að fjarlægja um 40 tonn af rusli á dag á Tiananmen-torgi eða Torgi hins himneska friðar síðan á sunnudag, þegar vikufrí þjóðarinnar í tilefni þjóðhátíðardags Kína hófst.
Meira
Reykjavík | Tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um flutning á málefnum aldraðra frá ríki til Reykjavíkurborgar var vísað til stjórnkerfisnefndar á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur á þriðjudaginn.
Meira
ÍBÚASAMTÖK Kjalarness halda opinn fund um umferðar- og öryggismál í Klébergsskóla í kvöld, fimmtudag, klukkan 20. Á fundinum verður sjónum fyrst og fremst beint að umferð um Vesturlandsveg, frá Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum.
Meira
Djúpivogur | Þau eru misjöfn viðfangsefnin sem björgunarsveitirnar takast á við. Á dögunum fékk slysavarnasveitin Bára á Djúpavogi útkall vegna 13 sauðkinda sem höfðu flætt úti í hólma sem er við innanverðan Hamarsfjörð.
Meira
ICELANDIC Europe er nú orðið eitt stærsta fyrirtæki í framleiðslu og sölu á sjávarafurðum í Evrópu. Veltan er um það bil milljarður evra, 90 milljarðar íslenzkra króna á ári, og hefur aukizt mikið síðustu misserin.
Meira
KRISTRÚN Heimisdóttir, varaþingmaður Reykvíkinga, býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 11. nóvember. Kristrún sem er 35 ára hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og var lögfræðingur Samtaka iðnaðarins 2002-2006.
Meira
Fréttaskýring | Lögreglan í Reykjavík rannsakar enn lögmæti þess að auglýsa spilavefinn Betsson í íslenskum fjölmiðlum. Talsmaður spilafíkla kvartar undan aðgerðaleysi
Meira
KNATTSPYRNULIÐIÐ KF Nörd fagnaði gífurlega eftir að hafa tapað 11:5 á móti Íslandsmeisturum FH í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Leikurinn var liður í veruleikaþætti um Nördana á...
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is LEIÐTOGAR margra ríkja hafa brugðist hart við þeirri hótun Norður-Kóreustjórnar að hefja tilraunir með kjarnavopn.
Meira
MEST ánægja er með störf Geirs H. Haarde forsætisráðherra af ráðherrum stjórnarinnar ef marka má nýjan Þjóðarpúls Gallup þar sem spurt var um ánægju með störf ráðherra.
Meira
Geir H. Haarde forsætisráðherra gerði Alþingi grein fyrir niðurstöðum varnarviðræðnanna við Bandaríkjamenn í gær. Umræður um varnarmál stóðu síðan yfir fram eftir degi.
Meira
REIKNAÐ er með því að skrifað verði undir samkomulag milli íslenskra og indverskra stjórnvalda á næstunni vegna samstarfs um jarðskjálftarannsóknir.
Meira
Meirihluti repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþing virðist skyndilega vera í hættu og jafnvel meirihlutinn í öldungadeildinni líka. Ástæðan er ekki ástandið í Írak. Heldur ekki frammistaða stjórnvalda þegar fellibylurinn Katrín gekk yfir.
Meira
Það fer ekki á milli mála, að Samfylkingunni er að berast sterkur liðsauki í komandi þingkosningum, þ.e. ef kjósendur í prófkjöri flokksins átta sig á hvað þeim stendur til boða.
Meira
Hvers konar hugarfar liggur að baki hjá ungu fólki, sem stefnir lífi og eignum samborgaranna, að ekki sé talað um þess eigin lífi og limum, í stórkostlega hættu með ofsaakstri?
Meira
OKTÓBERFEST Þjóðverja er hátíðahöld sem smitað hafa út frá sér víða um heim. Ár hvert er þessi hátíð öls og gleði haldin ekki bara í Þýskalandi heldur í mörgum öðrum Evrópuríkjum.
Meira
FYRSTU áheyrnarprufurnar fyrir sjónvarpsþáttinn X-Factor fóru fram á Akureyri á dögunum. Raðir höfðu myndast fyrir framan Hótel KEA áður en tekið var við skráningum.
Meira
Þokkapésans Bobbys Brown bíður nú ekkert annað en óvæginn vöndur réttvísinnar, með tilheyrandi tugthússvist, eftir að hann hunsaði lög og rétt og mætti ekki í yfirheyrslur vegna vangoldins meðlags.
Meira
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is EINHVERJUM kann að þykja söngleikurinn um Egil Skallagrímsson fjarstæðukennd hugmynd en þeir Hlynur Þorsteinsson og Sigurður J. Grétarsson eru ekki meðal þeirra.
Meira
Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is Í HUGA margra er heimspeki eitthvað framandi; munaður útvaldra menntamanna sem hafa komið sér haglega fyrir í fílabeinsturni þar sem þeir brjóta heilann um torskilin efni.
Meira
Jarko Hakala trompet, Haukur Gröndal, altósaxófón, klarínett og bassetthorn, Jóel Pálsson, tenórsaxófón, Tony Elgland bassa og Mika Kallio trommur. 29. september 2006 kl. 21:00.
Meira
NÝJASTA hljómplata Tómasar R. Einarssonar kontrabassaleikara kallast Romm tomm tomm og hún kemur ný inn á Tónlistann þessa vikuna. Platan var hljóðrituð í Reykjavík og Havana á Kúbu, fyrr á þessu ári.
Meira
Fréttablaðið birti í síðasta mánuði (20. september 2006) frétt þar sem fullyrt var að tónlistarmenn væri ósáttir við Morgunblaðið vegna notkunar þess á erlendu lagi í sjónvarpsauglýsingu.
Meira
ÁÐUR óútgefið ljóð eftir bandaríska ljóðskáldið Robert Lee Frost (1874-1963) hefur komið í leitirnar. Verður það birt í næstu viku í tímaritinu Virginia Quarterly Review .
Meira
SIGGI Hall verður gestakokkur á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News í hádeginu í dag og er búist við því að hann verði í beinni útsendingu um 12.50 að íslenskum tíma.
Meira
SKUGGALEIKUR, ný íslensk ópera, verður frumsýnd í Óperunni 18. nóvember. Tónlistin er eftir Karólínu Eiríksdóttur og textinn er eftir Sjón. Leikstjóri og leikmyndar- og búningahöfundur er Messíana Tómasdóttir. Óperan er byggð á sögunni Skugganum eftir...
Meira
Chris Cheek tenórsaxófón, Agnar Már Magnússon píanó og Fender Rohdes, Ásgeir Ásgeirsson gítar, Thomas Markusson bassa og Eric Qvick trommur. 29. september 2006 kl 22:00.
Meira
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Það var ákveðið að hafa eitt stórt kvöld á Norrænum músíkdögum þar sem nokkrum listformum yrði slegið saman; tónlist, dans, söng, vídeólist og leiklist.
Meira
Tobias Delius tenórsaxófón og klarinett, Davíð Þór Jónsson píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassa og Han Bennink trommur. 28. september kl. 22:00.
Meira
ER EKKI notalegt að eiga þess kost í hádeginu að hvíla sig á amstri dagsins, með því að bregða sér á mátulega stutta tónleika? Hafnfirðingar geta glaðst, því í dag hefjast Hádegistónleikar í Hafnarborg aftur eftir sumarhlé.
Meira
ÉG VIL ekki elta ólar við Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og læt þetta verða mín síðustu orð að sinni: 1. Hún þarf að gera sér ljóst að ég hvorki vil né get sagt frá því sem fram kom í tveggja manna tali eða í smáatriðum inni á fundum kjörnefndarinnar.
Meira
Berglind Nanna Ólínudóttir skrifar í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum: "Sýnum hvort öðru og þeim sem umgangast okkur, að það er líf eftir geðveiki!"
Meira
Kristín Helga Gunnarsdóttir fjallar um umhverfisspjöll og náttúruvernd: "Að játa mistök er mannkostur, að játa þau á síðustu stundu er stórmannlegt. Að afstýra stórslysi með því að sjá að sér og skipta um skoðun þykir í daglegu lífi þroskamerki - en ekki meðal ráðamanna."
Meira
Guðmundur Ingi Guðbrandsson svarar grein Böðvars Inga Guðbjartssonar um kynhneigð og lífsstíl: "Lífsstíll felur í sér val og kynhneigð er ekki val og því ekki lífsstíll."
Meira
Björgvin Guðmundsson skrifar um þjóðfélagsmál: "Það er orðin alger nauðsyn að koma ríkisstjórn ójafnaðar og misskiptingar frá völdum og koma í staðinn að ríkisstjórn jafnaðar og velferðar."
Meira
Önundur Ásgeirsson skrifar um málfar og réttritun: "Það er samvizkuspurning fyrir fv. skólameistara að verða valdur að slíkum fjölda vill(n)a hjá skólanemendum."
Meira
Frá Jóni Sigurðssyni: "ÞRÆLSÓTTINN, hræðslan, hafa verið grunnorð þeirra sem áttuðu sig á því að eitthvað væri að gerast í umhverfismálum utan höfuðborgarsvæðisins undanfarin misseri."
Meira
Eftir Önnu Sigríði Guðnadóttur: "ÞEGAR þetta er skrifað á mánudagskvöldi 25. september eru ríkisstjórnarflokkarnir enn að vandræðast með hvað þeir eiga að gera varðandi lækkun matarverðs."
Meira
Guðjón A. Kristjánsson fjallar um hvalastofninn: "Eina sem við getum gert er að taka upp skynsamlegar og sjálfsagðar veiðar í samræmi við töllögur um hvað sjávarspendýrastofnar þola..."
Meira
Ari Teitsson skrifar um verð og nýtingu á dilkaskrokkum: "Af því sem fram kemur í töflunni virðist Kristján Möller hafa ofmetið mjög mögulega nýtingu á 15 kg dilkaskrokki."
Meira
Kjartan Ólafsson skrifar svar við grein Þórs Whitehead: "Vopnabúr íslenskra kommúnista var því aldrei til nema sem ímyndun eða uppspuni í kollinum á Þór Whitehead og öðrum slíkum."
Meira
Kristinn H. Gunnarsson skrifar um gömul gögn um hlerun á símum nokkurra Íslendinga: "...að svo virðist sem ráðamenn séu að þæfa málið og hindra eðlilega umfjöllum um símhleranirnar."
Meira
Eftir Sigríði Andersen: "SKATTAR geta skipt sköpum. Ekki aðeins fyrir ríki og sveitarfélög heldur einnig einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Lengi sást mörgum yfir að hagsmunir ríkissjóðs og skattgreiðenda geta farið saman. Það er hvorugum í hag að skattar séu háir."
Meira
Eftir Benedikt Sigurðarson: "ÞAÐ er löngu kominn tími til að endurskoða skipan Sjórnarráðs Íslands og skiptingu málaflokka á ráðuneyti. Sérstaklega á það við með ráðuneyti atvinnuveganna."
Meira
Friðrik Erlings fjallar um hugmyndir Ómars Ragnarssonar varðandi Kárahnjúkavirkjun: "Enginn efast um heilindi Ómars, jafnvel hans verstu andstæðingar geta ekki annað en nagað sig í handarbökin yfir því að þeir hafi valið svo vondan málstað að verja..."
Meira
Gunnar Th. Gunnarsson fjallar um Kárahnjúkavirkjun og hugmyndir Ómars Þ. Ragnarssonar þar að lútandi: "Hvernig getið þið gert skoðanir ykkar að skoðunum ófæddra kynslóða?"
Meira
Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur: "UNDIRRITUÐ vann að rannsókn í samstarfi við sálfræðiskor HÍ á spilafíkn meðal 16-18 ára unglinga í framhaldsskólum fyrr á þessu ári. Um var að ræða framhald á rannsókn sem framkvæmd var árið 2005."
Meira
Eftir Eirík Hrein Helgason: "Í FYRRI greinum var rætt um umferðarlöggjöfina svo og markmiðasetningar yfirvalda í umferðarmálum og eftirfylgni við hana."
Meira
Eftir Bryndísi Haraldsdóttur: "Í NÝLEGRI úttekt Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar á samkeppnishæfni þjóða var Ísland í fjórtánda sæti af 125 hagkerfum heims. Sviss, Finnland og Svíþjóð skipa þrjú efstu sætin á þessum lista. Staða Íslands er sæmileg, en okkur ber að stefna hærra."
Meira
Hjördís Árnadóttir fjallar um umönnunargreiðslur til foreldra: "Í stefnumótunum sveitarfélagsins er lögð áhersla á fjölskylduna og stuðning við hana."
Meira
Bára Friðriksdóttir fjallar um náttúruvernd, virkjanaframkvæmdir og sorgarferli: "Við trúum ekki að þetta hafi eða sé að gerast. Við verðum að afneita, hlífa okkur við of sárum sannleika um stund svo að við lifum af."
Meira
Haraldur Sverrisson fjallar um umhverfisskipulag í Mosfellsbæ: "Allir flokkar hafa komið að þessari stefnumörkun í gegnum tíðina en ljóst er að hlutur Samfylkingarinnar er síst minni en annarra í því sambandi."
Meira
Már V. Magnússon fjallar um geðheilbrigðismál barna: "Grafarvogshverfið er barnflesta heilsugæslusvæði landsins, sem væntanlega er ein meginástæða þess að meðferðarteyminu var valinn staður þar og því eðlilegur vettvangur til að byrja á."
Meira
Draumalandið UM leið og ég færi Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi, alúðarþakkir fyrir afreksverk hans með bókinni Draumalandið skora ég á alla Íslendinga sem ekki nú þegar hafa lesið bókina að lesa hana.
Meira
Eftir Magnús M. Norðdahl: "SIÐFERÐI hverrar þjóðar verður best metið með því að kanna hvernig búið er að öldruðum, börnum og þeim sem lotið hafa í lægra haldi fyrir sjúkdómum og áföllum. Líklega skorum við Íslendingar hátt á þeim skala en betur má gera, miklu betur."
Meira
Friðrik Jörgensen fæddist í Vestmannaeyjum 24. janúar 1922. Hann lést á Sjúkrahóteli LSH í Reykjavík 21. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ottó Jörgensen símstjóri á Siglufirði og Pálína Kr. Vigfúsdóttir Scheving úr Vestmannaeyjum.
MeiraKaupa minningabók
Guðbjörg Malmquist (Gullý) fæddist á Siglufirði 4. maí 1930. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Jörgen Malmquist Einarsson, f. 1897, d. 1997, og María Ágústa Einarsdóttir, f. 1909, d.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Símonardóttir fæddist í Reykjavík 14. júlí 1926. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Gissurardóttir, f. 1888, húsfreyja frá Gljúfurholti í Ölfusi, d. 1977, og Símon Símonarson, f.
MeiraKaupa minningabók
Það er töluverð vinna í því að leggja línu, sem er jafnlöng og leiðin milli Reykjavíkur og Akureyrar. Kristinn Benediktsson brá sér í línuróður með Sturlu GK í kalda og straumi.
Meira
Rúnar Kristjánsson hugleiddi Íslendingseðlið og hvernig nýir tímar hafi farið með það: Íslendings er eðlið nú orðið breytt til muna. Í því hefur tryggð og trú tapað öllum funa. Þar er eins og andinn sé ekki lengur vökull.
Meira
Götunöfn geta verið skemmtileg. Nú eru til sölu nýjar íbúðir í Naustahverfi, annars vegar við Sporatún og hins vegar Sokkatún. Nafngiftirnar tengjast e.t.v.
Meira
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur veitt samþykki sitt fyrir nýja bóluefninu Cardasil til varnar leghálskrabbameini og er búist við því að það geti komist í almenna notkun innan fárra mánaða.
Meira
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Ég er orðin svo þreytt á því að fólk horfi á mig og segi hvað við annað: "Aumingja hún, en hvað þetta er sorglegt." Fatlað fólk vill ekki láta líta á sig sem minnimáttar.
Meira
Bónus Gildir 4. okt-8. okt verð nú verð áður mælie. verð Ferskir kjúklingabitar 299 477 299 kr. kg KF lambasaltkjöt blandað 299 449 299 kr. kg KB frosið kjötfars 299 399 299 kr. kg KS lambafillet m. fitu 2398 2998 2398 kr.
Meira
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist hefur ákveðið gjaldskrá í skálum félagsins fyrir árið 2007 og tekur gildi 1. janúar. Almennt gistiverð í skálunum í Básum, Strút og á Fimmvörðuhálsi verður 2.000 kr. en 1.700 kr. í skálum við Sveinstind, Álftavötn og í Skælingum.
Meira
Apakaffi Nú fæst hér á landi svokallað Apakaffi sem er náttúruræktað úrvalskaffi frá eldfjallahlíðum Panama. Hettuapar halda til á kaffiekrum og borða kaffibaunir á haustin.
Meira
Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Höfuðborg Íraks, Bagdad, er ekki á lista yfir helstu áfangastaði útsækinna Íslendinga enda hefur verið þar róstugt hin síðari misseri. Þeir eru þó til sem dvalist hafa í borginni, m.a.
Meira
Óleyfileg og órannsökuð erfðabreytt hrísgrjón, LL601, hafa á undanförnum vikum fundist í bandarískum hrísgrjónasendingum víða um heim. Í kjölfarið hafa þær verið sérstaklega kannaðar og jafnvel stöðvaðar.
Meira
Sextán manna gönguhópur, sem til varð í Víkinni fyrir tíu árum, fór í sína fyrstu utanlandsreisu í sumar. Gengið var í viku um Katalóníu og Aragóníu. Jóhanna Ingvarsdóttir heyrði ferðasöguna.
Meira
Fótboltaleikur Express Ferðir hafa ákveðið að bjóða upp á ferð á leik Arsenal og Breiðabliks en þetta er seinni leikur liðanna í 8 liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða kvenna.
Meira
Flestir þurfa oft á lífsleiðinni á iðnaðarmönnum að halda vegna stórra sem smárra verka. Jóhanna Ingvarsdóttir komst að nokkrum mikilvægum atriðum, sem vert er að hafa í huga í samskiptum við iðnaðarmenn.
Meira
50 ára afmæli. Rúnar Þór Bjarnason, bóndi á Reykjum á Skeiðum, verður 50 ára laugardaginn 7. okt nk. Af því tilefni verða hann og fjölskylda hans með opið hús í Brautarholti frá kl.
Meira
60 ára afmæli. Hrafn B. Hauksson, Lönguhlíð 9, Reykjavík verður sextugur 9. október nk. Af því tilefni tekur hann á móti ættingjum og vinum í húsi hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ, laugardaginn 7. október kl....
Meira
75 ára afmæli. Hafsteinn Sigurbjörnsson, pípulagningameistari, Akranesi er 75 ára í dag 5. október. Hann mun fagna tímamótunum með fjölskyldu sinni á heimili sínu, Höfðagrund 14,...
Meira
Dr. Kjartan Jónsson og sr. Gunnþór Þ. Ingason munu fjalla um Fjallræðu Jesú Krists á kvöldsamverum á fimmtudagskvöldum í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, 6., 13., 20. og 27. október og einnig 2. og 9. nóvember.
Meira
Ari Páll Kristinsson fæddist í Stóru-Sandvík í Árnessýslu 1960. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1979, B.A. gráðu í íslensku og málvísindum frá Háskóla Íslands 1982, kennsluréttindum og Cand.Mag.
Meira
Staðan kom upp í B-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur sem er nýlokið í Skákhöllinni í Faxafeni 12. Ingvar Ásbjörnsson (1810) hafði svart gegn Sigurði H. Jónssyni (1840). 60... Hh1+! og hvítur gafst upp enda drottning hans að falla í...
Meira
1 Íslenskur landsliðsmaður í handknattleik, Jaliesky Garcia, verður frá keppni í sex mánuði vegna meiðsla. Með hvaða liði leikur hann í Þýskalandi? 2 Hvaða banki var nýlega útnefndur besti banki á Íslandi af tímaritinu Global Finance?
Meira
Í Saltfisksetri Íslands í Grindavík er sýningin "Saltfiskur í sögu þjóðar" þar sem gesturinn fær á tilfinninguna að hann sé að rölta eftir bryggjunum í gegnum sjávarþorp frá fyrri hluta síðustu aldar.
Meira
ÁSTHILDUR Helgadóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem mætir Bandaríkjunum í æfingaleik í Virginiu á sunnudaginn þar sem hún á leik með Malmö um helgina.
Meira
DÓMSTÓLL KSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að Berglind Magnúsdóttir markvörður ÍR hafi verið ólögleg með liðinu þegar hún lék með því í leikjunum á móti Þór/KA í umspili um sæti í Landsbankadeild kvenna í síðasta mánuði.
Meira
CHRIS Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, hrósar Heiðari Helgusyni í hástert og segir að hann geti spilað stórt hlutverk í því markmiði félagsins að verða í hópi tíu efstu liða í ensku úrvalsdeildinni.
Meira
DARREN Clarke, atvinnukylfingur frá N-Írlandi, fær að halda keppnisrétti sínum á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum á næsta ári þrátt fyrir að hafa ekki tekið þátt í 15 mótum á þessu ári.
Meira
Íslandsmeistarinn í badminton, Ragna Ingólfsdóttir , er komin í fjórðungsúrslit á Yonex alþjóðamótinu í Slóvakíu . Í gær sigraði hún í báðum leikjum sínum og tryggði sér þar með rétt í átta manna úrslitum. Hún vann einnig báða leiki sína í forkeppninni.
Meira
HALLDÓR Ingólfsson, handknattleiksmaður, lék við hvern sinn fingur og skoraði 11 mörk þegar lið hans Stavanger vann stórsigur, 28:38, á útivelli á Nit-Hak í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.
Meira
HAUKAR kræktu í sín fyrstu stig í DHL-deild karla í handknattleik í gærkvöldi og réðust ekki á garðinn þar sem hann var lægstur því sjálfir Íslandsmeistarar Framara voru lagðir að velli á eigin heimavelli.
Meira
DAVID Healey, framherji norður-írska landsliðsins í knattspyrnu, segir að þó Danir séu sigurstranglegri aðilinn fyrir leik þjóðanna á laugardaginn geti N-Írar staðið uppi í hárinu á þeim en N-Írar sækja Dani heim í undankeppni EM á Parken í...
Meira
UNDANÚRSLITALEIKIR í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ í körfuknattleik karla fara fram í kvöld en leikirnir fara báðir fram í Laugardalshöllinni. Fyrri leikur kvöldsins í Powerade-bikarkeppninni er viðureign Skallagríms úr Borgarnesi og Keflavíkur.
Meira
SÆNSKA knattspyrnuliðið Hammarby hefur boðið Pétri Hafliða Marteinssyni nýjan tveggja ára samning en núgildandi samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.
Meira
ÞAÐ vakti mikla athygli þegar Lius Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja í knattspyrnu, setti Raúl, gulldrenginn í liði Real Madrid, út í kuldann þegar hann tilkynnti landsliðshópinn sem mætir Svíum í Stokkhólmi á laugardaginn í undankeppni EM en...
Meira
Á Luzhniki-leikvanginum í Moskvu verður leikinn úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu samkvæmt ákvörðun Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, í gær. Árið eftir verður úrslitaleikurinn háður á Ólympíuleikvanginum í Róm.
Meira
JOAN Laporta, forseti Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona í knattspyrnu, hefur gefið það út að félagið ætli að ráðast í stækkun á leikvangi félagsins, Nou Camp. Leikvangurinn tekur í dag 98.
Meira
ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um 0,11% í Kauphöll Íslands í gær og var lokagildi hennar 6.208,75 stig við lok markaða. Velta í Kauphöllinni nam rúmum tíu milljörðum króna, mest með hlutabréf, eða fyrir um 6,5 milljarða.
Meira
ÞEIR sem drekka reglulega áfengi eru að jafnaði með 10-14% hærra kaup en þeir sem ekki drekka. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem hagfræðideild George Mason-háskólans í Bandaríkjunum framkvæmdi og birt var í blaðinu Journal of Labor Research .
Meira
ÚTGÁFA jöklabréfa heldur áfram en síðastliðna tvo daga hefur verið tilkynnt um tvær nýjar útgáfur. Frá þessu er greint í Morgunkorni Glitnis en um er að ræða European Investment Bank (EIB og Toyota Motor Credit Corp.
Meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var settur á stofn til að tryggja stöðugleika í milliríkjaviðskiptum. Bjarni Ólafsson fjallar um sjóðinn og kerfið sem hann átti að gæta.
Meira
GATETRADE-netverslunarkerfið hefur verið einfaldað verulega og birgjum gert auðveldara fyrir að ganga inn í það, að sögn Claus Johansen, forstjóra Gatetrade, sem var hér nýlega til að ræða við íslensk fyrirtæki og stofnanir um kerfið.
Meira
VANDAMÁL í framleiðsluferli Toyota og Sony hafa valdið talsverðum usla í Japan. En á undanförnum vikum hafa þessi óskabörn japanskrar framleiðsluhefðar þurft að kalla inn vörur vegna galla í framleiðslunni.
Meira
Óháð því hver afstaða fólks er til stórframkvæmda í líkingu við þær sem staðið hafa yfir hér á landi á umliðnum árum, er næsta víst að hægt er að fullyrða að ekki verði aftur staðið að málum með þeim hætti sem gert hefur verið.
Meira
ÚT er komin bókin Handbók athafnamannsins eftir Pál Kr. Pálsson. Undirtitill bókarinnar er Stefna, stjórnun og starfsmenn - lyklar að árangri í rekstri.
Meira
HERSHEY Systems í Bretlandi, sem starfar á sviði hugbúnaðar fyrir skjalastjórnun, hefur skrifað undir samstarfsamning við Tölvuþjónustuna SecurStore, sem felur í sér að Hershey markaðssetur og selur Securstore afritunarþjónustuna í Bretlandi.
Meira
Spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey er stundum nefnd áhrifamesta kona Bandaríkjanna og er þá vísað til þess hversu ótrúleg áhrif fólk í hennar stöðu getur haft á skoðanir og smekk almennings.
Meira
FYRIRTÆKI frá Indlandi og Kína eru líklegust til að borga mútur til að greiða götu viðskipta sinna erlendis, ef marka má mútulista samtakanna Transparency International, sem berjast gegn spillingu í heiminum.
Meira
Íslandsmót er fyrirtæki sem hefur talsverða reynslu hvað varðar skipulagningu ráðstefna og viðburða. Sigurhanna Kristinsdóttir leit við hjá framkvæmdastjóranum en hann telur ráðstefnuhald eina tegund ferðaþjónustu.
Meira
JARÐBORANIR hf. hafa fest kaup á öllu hlutafé í verktakafyrirtækinu Sæþóri ehf., ásamt tækjakosti og búnaði. Rekstur Sæþórs mun heyra undir starfsemi Björgunar, dótturfélags Jarðborana, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Meira
KRÓNAN styrktist nú þriðja daginn í röð og endaði í 120,1 stigi. Alls hækkaði gengi hennar um tæplega 1% í dag og hefur krónan því styrkst um 2% frá því fyrir síðustu helgi.
Meira
Hjá Capacent Gallup eru rýnihópar (Focus groups) framkvæmdir í sífellt meira mæli þar sem notkun þeirra hefur reynst árangursrík. Rýnihópar eru ein aðferð eigindlegrar aðferðafræði sem hefur verið notuð um áratuga skeið.
Meira
MEST hefur tekið við umboði fyrir Dynajet háþrýstidælur sem framleiddar eru af þýska framleiðandanum Putzmeister. Í tilkynningu segir að háþrýstidælur frá Dynajet séu hannaðar fyrir fagmenn í háþrýstiþvotti.
Meira
EFTIR óvenjumikinn bílainnflutning á undanförnum misserum segir í Vegvísi Landsbankans að óyggjandi samdráttarmerki séu komin fram. Tæplega 1.150 fólksbílar voru nýskráðir í september sem er 17% samdráttur frá sama tíma í fyrra.
Meira
Sif Sigmarsdóttir | sif.sigmarsdottir@gmail.com SVO virðist sem í stórborginni tíðkist það ekki að nágrannar heilsist. Þegar menn mætast á stigagöngum hér í London horfa þeir niður fyrir sig og þykjast ekki taka hver eftir öðrum.
Meira
EIGENDASKIPTI hafa orðið í Creditinfo Group hf., móðurfélagi Lánstrausts, en félagið Scorescoft Holdings, fjárfestingafélag í eigu fyrrverandi stjórnenda Experian-Scorex, hefur fest kaup á 18,6% hlut í félaginu.
Meira
AÐALSTEINN Leifsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann í Reykjavík, segir enga ástæðu til annars en að ætla að samkomulag muni nást við Evrópusambandið vegna stækkunar Evrópska efnahagssvæðisins í kjölfar aðildar Rúmeníu og Búlgaríu að ESB.
Meira
Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is PROPERTY Group hefur ákveðið að fjárfesta fyrir um 4,8 milljarða íslenskra króna í nýrri verslunarmiðstöð í Hjørring á Norður-Jótlandi.
Meira
Hans-Josef Fell er þingmaður fyrir Græningja á þýska sambandsþinginu. Í samtali við Baldur Arnarson færir Fell margvísleg rök fyrir því að efnahagskreppa á heimsvísu sé yfirvofandi.
Meira
LÁGGJALDAFÉLAGIÐ Ryanair hefur ekki verið að skoða þann möguleika að hefja áætlunarflug til Íslands næsta sumar. Þessar upplýsingar fengust hjá almannatengslaskrifstofu félagsins í Dublin á Írlandi.
Meira
NÝR fjárfestingabanki, Saga fjárfestingar ehf., verður stofnaður á Akureyri næsta vor. Stofnhlutafé er 2 milljarðar króna en verður aukið í 4 milljarða 18 mánuðum eftir stofnun.
Meira
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is GLITNIR reið á vaðið og birti hagspá sína fyrir komandi ár í lok ágústmánaðar. Landsbankinn kom með sína spá í byrjun síðustu viku og fjármálaráðuneytið og KB banki í þessari viku.
Meira
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is ELKEM, móðurfélag Íslenska járnblendifélagsins, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi verksmiðju sinnar í Bremanger í Noregi til Íslands, að því er segir í frétt á vef norska ríkisútvarpsins, NRK .
Meira
SAMTÖKIN World Travel and Tourism Concil (WTTC), stærstu hagsmunasamtök ferðaþjónustuaðila í heiminum, gagnrýna harðlega öryggisráðstafanir sem komið hefur verið upp á flugstöðvum í Bandaríkjunum, að því er Financial Times greinir frá í gær.
Meira
Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is AIRBUS tilkynnti á þriðjudaginn sl. um enn frekari seinkun á afhendingu risaþotunnar A380 en þetta er í þriðja sinn á 16 mánuðum sem félagið hefur þurft að tilkynna um tafir við framleiðslu þotunnar.
Meira
SIGRÚN Ragna Ólafsdóttir hefur verið kjörin stjórnarformaður hjá Deloitte en með kjörinu er brotið blað í sögu fyrirtækisins hérlendis þar sem kona hefur ekki gegnt þessari stöðu áður.
Meira
Fyrrum borgarstjóri Nýju Jórvíkur var hér á landi nýlega í tilefni aldarafmælis þjóðaríþróttar Íslendinga, símablaðurs. Rudolph Giuliani heitir kappinn og er hann af mörgum talinn líklegur arftaki George W. Bush á forsetastóli vestanhafs.
Meira
GLITNIR hefur stofnað fjárfestingarfélag í Noregi á sviði fasteigna, ásamt hópi fjárfesta frá Íslandi. Samkvæmt fréttatilkynningu er tilgangur félagsins að fjárfesta í fasteignum í Noregi og á Norðurlöndunum.
Meira
STRAUMUR-Burðarás hefur að undanförnu aukið við hlut sinn í Tanganyika Oil og á nú ríflega 12,5% hlut í félaginu en átti um 10,2% hlut um mitt ár. Samkvæmt frétt Dagens Industri hefur Straumur Burðarás keypt liðlega 2,5% í félaginu frá 19. júlí.
Meira
Líkur eru til þess að samningaviðræður rússneska álrisans Rusal við annað rússneskt álfyrirtæki Sual leiði til þess að til verði stærsti álframleiðandi heims, sem yrði þess megnugur að veita stærstu álfyrirtækjunum sem fyrir eru á bekk í heiminum, Alcoa...
Meira
Mjólka hefur náð fótfestu á afar óaðgengilegum markaði - svo ekki sé fastar að orði kveðið. Arnór Gísli Ólafsson hitti Ólaf Magnússon, framkvæmdastjóra fyrirtækisins að máli.
Meira
ÍSLENSK-Ameríska hf. og Umbúðir & ráðgjöf ehf. hafa gert með sér langtíma samkomulag um kaup á umbúðum fyrir dótturfélög Íslensk-Ameríska, sem eru Myllan, Frón og Kexsmiðjan. Um er að ræða kaup á plastpokum og plastfilmum auk annarra umbúðatengdra vara.
Meira
Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is KAUPÞING banki hefur keypt hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand fyrir rúma fimm milljarða íslenskra króna.
Meira
VOGUNARSJÓÐIR, sem á ensku nefnast "hedge funds", hafa á síðustu árum og áratugum orðið vinsælt umræðuefni á meðal þeirra sem fjalla um viðskipti. Skal engan undra því sjóðir af þessari tegund eru að verða mjög áhrifamiklir í fjármálaheiminum.
Meira
HALLI var á vöruskiptum í september sem nemur 7,7 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar og hefur hann ekki verið minni síðan í febrúar á þessu ári.
Meira
Eftir sameiningu Pickenpack og Hussmann og Hahn við Icelandic er félagið orðið geysiöflugt. Hjörtur Gíslason heimsótti Finnboga Baldvinsson, forstjóra Icelandic Europe í Þýzkalandi, og rakti úr honum garnirnar.
Meira
ÖFLUN, sem rekur um 20 Apple-verslanir á Norðurlöndum, hefur undirritað samning við TM Software-Maritech um innleiðingu á Microsoft Dynamics NAV viðskiptalausn fyrir verslanir, heildsölur og dreifingarfyrirtæki á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi...
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.