RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gærmorgun að veita 650 milljónir aukalega til Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Í þingræðu Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra kom fram að þetta gerði sjóðnum kleift að lána þrjú til fjögur þúsund námsmönnum.
Meira
KOLBRÚN Halldórsdóttir umhverfisráðherra hefur verið boðuð á fund umhverfisnefndar Alþingis í dag ásamt oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna staðfestingar á breytingu á skipulagi hreppsins sem nú er til umfjöllunar í ráðuneytinu.
Meira
ÞAÐ sem af er apríl hefur lögreglan í Árnessýslu stöðvað 892 ökumenn til að kanna hvort þeir væru undir áhrifum áfengis. Af þeim reyndust aðeins þrír vera ölvaðir. Lögreglan stöðvaði um páskahelgina tvo ökumenn á Suðurlandsvegi.
Meira
„ÉG ER sleginn,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens spurður út í yfirstandandi spillingarmál og efnahagsglundroða. „Ég er sleginn yfir því að stjórnvöld ætli að láta almenning blæða.
Meira
LJÓST þykir að ákvæði um stjórnlagaþing verður ekki samþykkt á þessu þingi. Seint í gærkvöldi var enn ekki ljóst hver afdrif stjórnarskrárfrumvarpsins yrðu. Skýrist það þó væntanlega í dag.
Meira
KOFASMIÐIR landsins verða líklega umfangsmestu „verktakar“ komandi mánaða. Og smíðin er þegar hafin í Innri-Njarðvík. Þar voru þeir félagar Sigurður Víðisson og Kristófer Rafn Hauksson að smíða af kappi.
Meira
SUMARVINNA ungmenna, hjólastígar í Reykjavík, ókeypis hafragrautur í skólum, fjármálafræðsla og sumaropnun félagsmiðstöðva eru meðal þeirra tillagna sem Reykjavíkurráð ungmenna kynnti á fundi sínum með borgarstjórn Reykjavíkur í gær.
Meira
Í DAG miðvikudag kl. 20, standa Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp fyrir fundi um velferðarmál á Grand Hótel. Þetta er sjötti og síðasti fundurinn í fundaröðinni Verjum velferðina!
Meira
Eftir Ómar Friðriksson og Silju Björk Huldudóttur SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN tapar ríflega 14 prósentustiga fylgi miðað við niðurstöður síðustu alþingiskosninga og mælist nú með 22% fylgi í Reykjavíkurkjördæmi norður samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent...
Meira
NJÖRÐUR P. Njarðvík, prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um Dalai Lama, andlegan og veraldlegan leiðtoga Tíbeta og friðarverðlaunahafa Nóbels, í tilefni heimsóknar hans til Íslands í byrjun júní.
Meira
BIRGIR Ármannsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, mun leita eftir útreikningum ríkisskattstjóra á því hvað hugmyndir Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um aukaskatt á hærri tekjur myndu skila ríkissjóði miklu.
Meira
„OKKUR langar að vekja athygli á því hver uppruni Laugavegarins er, hann er náttúrlega lagður fyrir þvottakonur og hét Þvottalaugavegur til að byrja með,“ segir Harpa Björnsdóttir, verkefnisstjóri „Lauga vegarins“, verkefnis sem...
Meira
„ÉG er með mjög góða samvisku gagnvart þessu máli og hef ekkert að fela, og ég vil því að þetta embætti fari yfir málið,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri.
Meira
HJÁLMAR Rögnvaldur Bárðarson, skipaverkfræðingur og fyrrverandi siglingamálastjóri, lést 7. apríl sl. á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hjálmar var 91 árs er hann lést, en hann fæddist á Ísafirði 1918.
Meira
AÐEINS vika er í sumardaginn fyrsta og sól því farin að hækka á lofti. Veðráttan á suðvesturhorninu að undanförnu hefur kallað fram hjólfáka af ýmsum stærðum og gerðum, jafnt vélhjól sem reiðhjól.
Meira
VATNSBÚSKAPUR Landsvirkjunar er í meðallagi. Vatnsyfirborð í Hálslóni við Kárahnjúkavirkjun er nú komið niður fyrir 590 metra yfir sjávarmáli en gert er ráð fyrir að vatnsstaðan fari lægst í 580 metra.
Meira
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ÍBÚÐUM sem Íbúðalánasjóður (ÍLS) hefur leyst til sín á uppboðum hefur fjölgað síðustu mánuði. Um síðustu mánaðamót átti sjóðurinn 239 íbúðir, en þær voru 196 talsins um áramótin og 103 í september.
Meira
ÍBÚÐUM sem Íbúðalánasjóður hefur leyst til sín hefur fjölgað umtalsvert síðustu mánuði. Í september átti sjóðurinn 103 íbúðir en um mánaðamótin var fjöldinn kominn í 239. Í ársbyrjun 2007 átti sjóðurinn 52 íbúðir.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að litháískur ríkisborgari, sem dæmdur var nýlega í 2 ára fangelsi í héraðsdómi fyrir líkamsárás og rán, sæti gæsluvarðhaldi til 19. júní eða þar til Hæstiréttur hefur fjallað um málið.
Meira
STÓR, alþjóðleg blómasýning var í bænum Lisse, skammt frá Amsterdam í Hollandi, um páskahelgina og að sjálfsögðu skipuðu túlípanarnir þar stóran sess. Búist hafði verið við, að um 800.000 manns myndu koma til Hollands bara vegna sýningarinnar.
Meira
ÚTFLUTNINGSSKRIFSTOFA íslenskrar tónlistar stendur fyrir miklu samkvæmi í Los Angeles um aðra helgi. Tilefnið er meðal annars útkoma nýrrar plötu. „Þetta er safndiskur sem kemur út sem iMix á iTunes í lok mánaðarins.
Meira
LÝÐRÆÐISHREYFINGIN hefur fengið frest þar til í dag hjá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að laga lista hreyfingarinnar í kjördæminu. Aðeins einn maður var settur í ákveðið sæti, þ.e. Jón Pétur Líndal í efsta sætið.
Meira
Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is ÞESS eru farin að sjást merki, að kreppan sé farin að lina tökin og þær aðgerðir, sem ríkisstjórnir víða um heim hafa gripið til, séu farnar að bera árangur.
Meira
ÞESSI hrafn gætir vandlega eggja sinna sem liggja vel varin í laup, eða bálk eins og hreiður hrafna eru gjarnan kölluð, á klettasyllu í borgarlandinu.
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is VBS fjárfestingabanki færði um 9,4 milljarða króna af 26,4 milljarða króna láni ríkissjóðs til bankans sem tekjur í ársreikningi sínum fyrir árið 2008. Skuldir bankans lækkuðu um sömu upphæð við tekjufærsluna.
Meira
TALIBANAR í Afganistan tóku af lífi ungt, ástfangið par, sem hafði hlaupist að heiman til að geta fengið að njótast. Var unga fólkið skotið fyrir framan mosku í Nimroz-héraði þar sem íslamistar ráða miklu.
Meira
HVAR á Norðurlöndum vildirðu helst búa að undanskildu þínu heimalandi? Þessi spurning var lögð fyrir nokkurn hóp manna í Danmörk, Noregi og Svíþjóð og óhætt er að segja, að Ísland og Finnland hafi ekki komið vel út.
Meira
BJARNI Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega á Alþingi í gær fyrir aðgerðaleysi við stjórn efnahagsmála sem hefði m.a. leitt til þess að krónan hefði veikst um 16% frá 1. febrúar þegar stjórnin tók við.
Meira
FÉLAG umhverfisfræðinga á Íslandi hefur gert athugasemd við auglýsingu þingflokks sjálfstæðismanna í Morgunblaðinu þann 8. apríl sl., þar sem vitnað er í harða gagnrýni fræðimanna og sérfræðinga á stjórnarskrárfrumvarpið.
Meira
NEYTENDASTOFA hefur hafið útgáfu á nýju rafrænu fréttabréfi. Tilgangur þess er að flytja nýjustu fréttirnar af vettvangi stofnunarinnar. Stefnt er að því að fréttabréfið komi út með reglubundnum hætti.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, sagði á Stöð 2 í gærkvöldi að styrkir til flokksins frá fjársterkum fyrirtækjum árið 2006 hefðu verið óeðlilegir eftir á að hyggja. Betra hefði verið að taka ekki við þeim.
Meira
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is BORGARARHREYFINGIN mun bjóða fram í öllum sex kjördæmum landsins í alþingiskosningunum nú í vor. Í gær kynnti hreyfingin framboðslista sína, sem bjóða fram undir listabókstafnum O.
Meira
FAGRÁÐ um kynferðisbrot innan þjóðkirkjunnar telur að kirkjan hafi sett sér strangari reglur en dómstólar eru tilbúnir að dæma eftir. Því eigi séra Gunnar Björnsson ekki að taka við Selfossprestakalli að nýju 1. júní nk.
Meira
RÖSKVA, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, fagnar þeim úrræðum sem ríkisstjórnin hefur kynnt til að fyrirbyggja atvinnuleysi meðal stúdenta í sumar.
Meira
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja @mbl.is RÍKISSTJÓRNIN hefur, að tillögu menntamálaráðherra, samþykkt að breyta ríflega 562 milljóna kr. skuld Ríkisútvarpsins ohf., í stofnefnahagsreikningi félagsins, við ríkissjóð í hlutafé.
Meira
Eftir Kristínu Ágústsdóttur Neskaupstað | Margir sóttu glæsilega páskahátíðardagskrá á skíðasvæðinu í Oddsskarði en henni lauk með kjötsúpukveðjuhátíð.
Meira
Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MIKIÐ hefur gengið á í stjórnmálum á umliðnum mánuðum og fylgissveiflur flokkanna frá því bankahrunið hófst verið meiri en dæmi eru um.
Meira
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÁKVÆÐI um stjórnlagaþing verður ekki samþykkt á þessu þingi. Þetta varð ljóst eftir fundarhöld formanna þingflokkanna á Alþingi seinnipartinn í gær.
Meira
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Norður-kóreska stjórnin tilkynnti í gær að hún hygðist slíta viðræðum sex ríkja um kjarnorkuafvopnun í N-Kóreu og kvaðst ætla að hrinda kjarnorkuáætlun sinni í framkvæmd að nýju.
Meira
ÞAU voru að æfa sig í að fljóta þessi sex og sjö ára börn, sem hér mynda skemmtilega stjörnu í litlu laug Sundhallarinnar í Reykjavík. Það verður enda enginn syndur án þess að geta fyrst látið sig fljóta.
Meira
FRAMKVÆMDASÝSLA ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta bygging hér á landi sem verður byggð samkvæmt vistvænum byggingarstöðlum.
Meira
AÐALFUNDUR Félags eldri borgara í Hafnarfirði beinir þeirri áskorun til stjórnvalda að vinna að því að lækka virðisaukaskatt á lyfjum. „Af matvörum og flestum nauðsynjum til daglegs lífs er greiddur 7% virðisaukaskattur.
Meira
HÚSTÖKUFÓLK í miðborginni hlóð virki í gær fyrir utan Vatnsstíg 4 í Reykjavík, en þar hefur hópurinn hafst við að undanförnu og vill koma upp félagsheimili.
Meira
AUKNU framlagi ríkissjóðs til Lánasjóðs íslenskra námsmanna er ætlað að tryggja að 3-4 þúsund atvinnulausir námsmenn geti fengið lán í sumar, ef þeir fara í nám og ljúka prófum.
Meira
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp fagna viljayfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um tilfærslu félagsþjónustu við fatlað fólk yfir til sveitarfélaganna sem ráðgerð er árið 2011, enda um að ræða þjónustu sem best er að sinnt sé í...
Meira
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is SKIPVERJAR á Bjarna Ólafssyni AK voru um að bil að fylla lestar skipsins af kolmunna á miðunum suðvestur af Færeyjum er haft var samband við skipið í gær.
Meira
ENN eru víða blikur á lofti í efnahagsmálum en samt álíta hagfræðingar að vísbendingar séu um að aðgerðir sem gripið hefur verið til séu að bera árangur. Barack Obama Bandaríkjaforseti segist eygja von um bata þótt enn eigi stjórnin mikið verk óunnið.
Meira
Talibönum vex fiskur um hrygg beggja vegna landamæra Afganistans og Pakistans. Á mánudag skrifaði forseti Pakistans undir lög þess efnis að hið íslamska lagakerfi, sharía, yrði tekið upp í héruðum í norðvesturhluta Pakistans.
Meira
Stöð 2 hafði í gærkvöldi eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar, að hún hefði haft milligöngu um að fyrirtæki styrktu flokkinn með milljónaframlögum.
Meira
Hvernig á að taka á málum fólks, sem leitar hælis á Íslandi? Hvernig eiga Íslendingar að taka á móti þeim, sem eiga sér hvergi skjól og skolar á land á Íslandi? Hingað til hefur stefnan verið sú að beina ábyrgðinni annað.
Meira
„VIÐ sáum fram á frekar dræma sölu, og í stað þess að hafa hálftóman sal ákváðum við að stoppa þetta strax,“ segir Ísleifur Þórhallsson tónleikahaldari, en ákveðið hefur verið að aflýsa áður auglýstum aukatónleikum til minningar um Rúnar...
Meira
* Blúshátíðinni lauk á fimmtudaginn og tókst hún með eindæmum vel í ár. Pinetop Perkins var sæmdur heiðursfélagaorðu Blúsfélagsins og kom svo fram á Hótel Nordica við mikinn fögnuð gesta.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BUBBI Morthens hefur verið manna iðnastur við að leggja Ísland undir fót með kassagítar og söngrödd að vopni, en hann hefur farið í skipulegar ferðir um landið í hartnær þrjátíu ár.
Meira
NJÖRÐUR P. Njarðvík, prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um Dalai Lama í stofu 102 á Háskólatorgi HÍ í dag, 15. apríl, kl. 15.
Meira
Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is HVER hefur ekki lesið Hroka og hleypidóma og velt því fyrir sér hvort ekki mætti krydda aðeins með smá fjöri og spennu?
Meira
FYRIR páska sá ég heimildamynd um 13 ára trúaða breska stúlku. Hún var alin upp á stóru heimili og foreldrarnir sáu sjálf um menntun barna sinna. Stúlkan var ótrúlega þroskuð og skynsöm í öllum svörum. Hún var t.d.
Meira
TILKYNNT var um páskana að arkitektinn Peter Zumthor hefði hlotið hin virtu Pritzker-verðlaun, sem talin eru helsta viðurkenning sem arkitektar geta hlotið í dag.
Meira
ERFINGJAR þýska expressjónistans George Grosz hafa höfðað mál gegn Museum of Modern Art í New York, þar sem því er haldið fram að safnið hafi hafnað því að skila tveimur málverkum og vatnslitaverki sem Grosz skildi eftir þegar hann flúði nasista og...
Meira
HLJÓMSVEITIRNAR OC/DC og Sextett Ásgeirs J. Ásgeirssonar koma fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans annað kvöld, 16. apríl. OC/DC leikur tónlist eftir saxófónleikarann Ornette Colemanen. Sextett gítarleikarans Ásgeirs J.
Meira
Hvað er Laugavegurinn? Getur hann talist verslunargata þegar verslunarrými standa þar tóm í tugatali? Að ekki sé minnst á allar verslanirnar sem sárlega vantar í miðbæinn, t.d. raftækja- og íþróttavöruverslanir?
Meira
Í KJÖLFAR vinsælda beinu útsendinganna frá Metrópólitan-óperunni hafa Sambíóin ákveðið að bjóða leikhúsaðdáendum upp á beina bíóútsendingu frá Þjóðleikhúsinu í Bretlandi 25. júní næstkomandi.
Meira
New York Times
1.Long Lost - Harlan Coben 2.The Host - Stephenie Meyer 3.Handle with Care - Jodi Picoult 4.The Associate - John Grisham 5.True Detectives - Jonathan Kellerman 6.Corsair - Clive Cussler and Jack Du Brul
Meira
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Þetta stóra málverk Þórðar Ben Sveinssonar er sýnt þessa dagana í Listasafni Íslands, á sýningu með verkum eftir Dieter Roth og listamenn sem tengdust honum hér.
Meira
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is FYRSTU „smáskífunni“ af væntanlegri plötu spútniksveitarinnar Hjaltalín verður hleypt út á öldur ljósvakans og inn í iður alnetsins í dag.
Meira
Á mánudaginn sakfelldi kviðdómur í Los Angeles bandaríska upptökustjórann Phil Spector fyrir manndráp og taldi sannað að hann hefði skotið leikkonuna Lana Clarkson til bana í húsi sínu fyrir sex árum.
Meira
TÖLVUTEIKNIMYNDIN Monsters vs. Aliens var tekjuhæsta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um páskahelgina. Rúmlega 3.600 manns sáu myndina sem skilaði tæpum þremur milljónum í kassann. Frá upphafi hafa tæplega 13.
Meira
ANGELINA Jolie hefur verið valin fallegasta kona í heimi af tímaritinu Vanity Fair . Leikkonan fékk 58% atkvæða og sigraði með yfirburðum en ofurfyrirsætan Gisele Bundchen varð önnur með aðeins 9% atkvæða.
Meira
* Tæpur mánuður er nú í að Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva hefjist með pompi og prakt í Moskvu en fyrra undanúrslitakvöldið fer fram þriðjudaginn 12. maí nk.
Meira
HLJÓMSVEITIN Leaves, sem gefur út langþráða þriðju breiðskífu sína þann 11. maí næstkomandi, heldur stórtónleika á Sódómu Reykjavík í kvöld. Verða þetta fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar í eitt og hálft ár en síðast lék hún á Airwaves 2007.
Meira
Við erum svo miklir þvergirðingar að okkur er ekki við bjargandi segir Signý Sigurðardóttir um stöðu þjóðarbúsins: "Þetta tal allt síðustu mánuði, alveg frá því að hrunið skall yfir, um að „slá skjaldborg um íslensk heimili“, skynja ég sem enn eina klisju íslenskra stjórnmálamanna"
Meira
Þórhallur Guðlaugsson fjallar um leiðir stjórnmálaflokka til að koma skilaboðum til kjósenda: "Stjórnmálaflokkar þurfa að átta sig á því að kjósendur eru ekki einn hópur, heldur margir með mismunandi kröfur og óskir."
Meira
Inga Jessen | 14. apríl 2009 Hvað gerir þú, frú atvinnulaus? Ég talaði við norskan blaðamann í gær sem spurði mig hvað ég gerði á daginn þegar ég væri án vinnu.
Meira
Eftir Steinunni Þóru Árnadóttur: "AÐ UNDANFÖRNU hefur verið kvartað yfir of háleitum aðgerðarlista ríkisstjórnarinnar, litlum efndum og ekki síst skorti á upplýsingum. Það er auðvitað alltaf hægt að kvarta undan öllu mögulegu, sérstaklega í kosningabaráttu."
Meira
Jón Finnbogason | 14. apríl 2009 Ónotuð hús Af hverju tekur hústökufólkið ekki yfir einhverja blokkina í Salahverfinu? Væri æði að fá smá fjölbreytni í mannlífið í úthverfin. jonfinnbogason.blog.
Meira
Eftir Ögmund Jónasson: "AÐ UNDANFÖRNU hafa Alþingismenn í stjórn og utan stjórnar fengið áskoranir um að upplýsa allt sem vitað er um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins jafnframt því sem hvatt er til þess að við stöndum vörð um auðlindir þjóðarinnar."
Meira
Þegar öll von er úti, lífið einn táradalur, birtist á síðustu stundu ljósgeislinn sem gefur okkur nýja von: Lóan er komin í Hádegismóann, ég heyri í henni, kliðmjúkan sönginn og þetta dirrindí sem Jónas kvað um.
Meira
Eftir Helgu Þórðardóttur: "VERÐUR þú gjaldþrota? var slagorð Frjálslynda flokksins í kosningunum 2007. Ástæða slagorðsins var að við vildum hætta að nota verðtryggingu í þeirri mynd sem hún er í dag. Gjaldþrot voru fátíð, en mjög vaxandi í dag."
Meira
Sölvi Karlsson fjallar um stöðu stúdenta í HÍ: "Hvort munu stúdentar Háskóla Íslands mæla göturnar tekjulaus í sumar eða gefst þeim kostur á að halda áfram með lánshæft nám sitt."
Meira
Börkur Jónsson, framkvæmdastjóri á Akranesi, fæddist á Akranesi 16. des. 1944 og lést á heimili sínu 4. apríl sl. Foreldrar: Jón Zophonías Sigríksson, stýrimaður og síðar verkamaður á Akranesi og k.h. Kristjana Vigdís Hafliðadóttir.
MeiraKaupa minningabók
15. apríl 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 3201 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Einar Kristmundsson fæddist í Rauðbarðaholti í Hvammsveit í Dalasýslu 4.12. 1920. Hann andaðist á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal 5.4. 2009. Faðir hans var Kristmundur Eggertsson, f. 20.10. 1891, d. 2.3. 1961.
MeiraKaupa minningabók
Einar Kristmundsson fæddist í Rauðbarðaholti, Hvammsveit Dalasýslu 4.12. 1920. Hann andaðist á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal 5.4. 2009. Faðir hans var Kristmundur Eggertsson, f. 20.10. 1891, d. 2.3. 1961.
MeiraKaupa minningabók
Guðmunda Bjarný Ólafsdóttir fæddist í Vesturholtum í Þykkvabæ 20. febrúar 1938. Hún lést á heimili sínu 10. mars 2009. Sigurður Ágúst Magnússon fæddist í Hafnarfirði 22. febrúar 1934. Hann lést á heimili sínu 12. janúar 2009. Útför þeirra hjóna fór fram frá Grafarvogskirkju 8. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Ólafur Finnbjörnsson fæddist á Ísafirði 7. nóvember 1923. Hann lést á öldrunardeild Landspítalans í Fossvogi 28. mars sl. Guðmundur var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 7. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
Guðmundur Matthíasson fæddist í Eyrarhúsum á Sveinseyri við Tálknafjörð 27. október 1926. Hann lést á Landspítala, Landakoti fimmtudaginn 2. apríl sl. Móðir hans var Ragnheiður Kristín Kristjánsdóttir saumakona, f. 8.12. 1899, d. 31.7.
MeiraKaupa minningabók
Hörður Eiríksson fæddist á Vitastíg 14 í Reykjavík 24. október 1928. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut 31. mars 2009. Útför Harðar fór fram frá Fossvogskirkju 14. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
Kjartan Sveinsson fæddist í Vík í Mýrdal 22. júlí 1912 og lést á hjúkrunarheimilinu Eir 6. apríl 2009. Hann var sonur hjónanna Sveins Þorlákssonar, f. 9.8. 1872, d. 22.12. 1963, skósmiðs og símstöðvarstjóra í Vík í Mýrdal, og Eyrúnar Guðmundsdóttur, f.
MeiraKaupa minningabók
Ólafur Jens Pétursson, tækniskólakennari í Kópavogi, fæddist í Ártúni á Hellissandi 28. desember 1933. Hann lést á Landspítalanum 4. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Maríus Guðlaugur Guðmundsson, útvegsbóndi á Hellissandi, f.
MeiraKaupa minningabók
15. apríl 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 2681 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Ólafur Jens Pétursson, tækniskólakennari í Kópavogi, fæddist í Ártúni á Hellissandi 28. desember 1933. Hann lést á Landspítalanum 4. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Maríus Guðlaugur Guðmundsson, útvegsbóndi á Hellissandi, f. á Helliss
MeiraKaupa minningabók
Ragnar Skjóldal fæddist á Ytra-Gili í Hrafnagilshreppi 8. mars 1914. Hann lést á Kristnesspítala 1. apríl síðastliðinn. Ragnar var jarðsunginn frá Akureyrakirkju 14. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
15. apríl 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 559 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Salvör Sumarliðadóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, fæddist í Stykkishólmi 6.nóv. 1923. Hún andaðist á Hjúkrunaheimilinnu Ási í Hveragerði þann 31 mars s.l. Foreldrar hennar voru hjónin Sumarliði Einarsson, f.25.júlí 1889 - d.18.sept.
MeiraKaupa minningabók
Salvör Sumarliðadóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, fæddist í Stykkishólmi 6. nóv. 1923. Hún andaðist á Hjúkrunaheimilinnu Ási í Hveragerði hinn 31. mars sl. Foreldrar hennar voru hjónin Sumarliði Einarsson, f. 25.7. 1889, d. 18.9.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Ríkharð Stefánsson fæddist á Siglufirði 14. desember 1956. Hann lést á Landspítalanum 5. apríl 2009. Foreldrar hans voru Fríða Sigurðardóttir, f. 1937, og Stefán Þór Haraldsson, f. 1933. Sigurður var elstur sex systkina, en þau eru Rúnar Þór,...
MeiraKaupa minningabók
Sigurlína Sjöfn Kristjánsdóttir fæddist í Reykjavík 1. maí 1947. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. apríl 2009. Útför Sigurlínu fór fram frá Fossvogskirkju 14. apríl sl.
MeiraKaupa minningabók
Valgerður Einarsdóttir Vestmann fæddist í Gimli í Kanada 4. nóvember 1916. Hún lést á dvalarheimilinu Höfða 1. apríl 2009 og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 8. apríl.
MeiraKaupa minningabók
Vilborg Ingvarsdóttir fæddist að Skipum við Stokkseyri 18.6. 1918. Hún lést á Landspítala, Landakoti, 6.4. 2009. Foreldrar Vilborgar voru Ingvar Hannesson, f. 10.2. 1878, d. 16.5. 1962, og Guðfinna Guðmundsdóttir, f. 22.8. 1887, d. 16.5.
MeiraKaupa minningabók
15. apríl 2009
| Minningargrein á mbl.is
| 1516 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Þórður Pálmi Jónsson fæddist í Keflavík 13. apríl 1972. Hann lést í Danmörku 4. apríl 2009. Foreldrar hans eru Hrafnhildur Jóhannsdóttir frá Hólmavík og Jón Pálmi Þórðarson frá Sandgerði.
MeiraKaupa minningabók
EIGINFJÁRHLUTFALL Askar Capital er undir lögbundnu 8% lágmarki. Fjármálaeftirlitið hefur veitt félaginu frest til að koma eiginfjárhlutfallinu í lögbundið horf.
Meira
BBR ehf., einkahlutafélag í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona gerði í gær formlegt tilboð í allt hlutafé Exista og fengu hluthafar tilboðsyfirlit í hendur í gær. Samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hljóðar tilboðið upp á 0,02 krónur á hlut.
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is VBS Fjárfestingabanki færði um 9,4 milljarða króna af láni ríkissjóðs til bankans sem tekjur í ársreikningi sínum fyrir árið 2008.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SPARISJÓÐUR Mýrasýslu (SPM) getur hvorki greitt afborganir né vexti af þeim skuldabréfaflokkum sjóðsins, sem skráðir eru í Kauphöll Íslands.
Meira
GENGI bréfa Marels hækkaði um 12,91% í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,69% vegna þessa og var lokagildi hennar 659,28 stig. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 1,01% og Færeyjabanka um 0,4%, en Bakkavör lækkaði um 0,83%.
Meira
MAREL hefur selt erlendar eignir fyrir 37,5 milljónir evra, andvirði um 6,4 milljarða króna. Um er að ræða annars vegar Scanvægt Nordic, dótturfélag Marels, og hins vegar fasteignir og lóðaréttindi í Amsterdam, sem áður tilheyrðu Stork Food Systems.
Meira
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Fjármálafyrirtækið Oliver Wyman mun skila skýrslu um samhæft endurmat á Nýja Landsbankanum (NBI), Nýja Kaupþingi og Íslandsbanka eigi síðar en á miðnætti í dag, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu (FME).
Meira
GREININGARDEILD bandaríska orkumálaráðuneytisins (EIA) hefur endurskoðað fyrri spá sína um þróun heimsmarkaðsverðs á hráolíu . Gerir deildin nú ráð fyrir að verðið verði um fjórðungi hærra á næstunni en hún spáði fyrir um í síðasta mánuði.
Meira
GENGI krónunnar veiktist um 1,4% í gær og er gengisvísitalan nú í ríflega 223 stigum. Í ársbyrjun var gengisvísitalan rúm 216 stig og hefur krónan því veikst um 3,2% frá áramótum.
Meira
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Hátíðardagskráin yfir jól og páska er almennt ekki sniðin að börnum, en því höfum við breytt hér í Keflavíkurkirkju.
Meira
Nýir skæruliðar hafa tekið við skíðaskálanum í Ólafsskarði í Jósepsdal. Skálann byggðu skíðamenn sem kallaðir voru skæruliðar Títós, fyrir rúmlega sextíu árum.
Meira
Hefð hefur myndast fyrir því að Safnahús Skagfirðinga standi fyrir vísnakeppni í Sæluviku, en sú fyrsta var haldin árið 1976 að frumkvæði Magnúsar Bjarnasonar kennara.
Meira
Sex duglegar vinkonur söfnuðu 11.058 kr. fyrir Rauða kross Íslands. Þær heita Amanda Líf Pétursdóttir, Signý Sif Sigurðardóttir, Silja Gunnarsdóttir, Kolfinna Dofradóttir, Vala Birna Árnadóttir og Eva María...
Meira
„ÉG ÆTLA að fara út með fjölskylduna og borða með henni kvöldverð í Perlunni. Ég er í veikindaleyfi sem ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og ekki með fulla heilsu.
Meira
Peningarnir komu í heiminn langt á undan Víkverja og hann hefur ekki náð að vinna upp þetta forskot og mun sennilega aldrei takast það. Þegar peningar eru annars vegar reynir Víkverji að halda sig til hlés og forðast allar kúnstir og gjörninga.
Meira
15. apríl 1785 Skálholtsskóli var lagður niður, samkvæmt konungsúrskurði, og ákveðið að flytja biskupssetur frá Skálholti til Reykjavíkur. 15. apríl 1803 Reykjavík var gerð að sérstöku lögsagnarumdæmi og Rasmus Frydensberg skipaður bæjarfógeti.
Meira
TIGER Woods heldur áfram að vera í efsta sæti heimslistans í golfi en hann er með 10,02 stig eftir Mastersmótið á Augusta þar sem hann endaði í 6.-9. sæti. Phil Mickelson er annar á listanum með 8,56 stig en hann endaði í 5.
Meira
ÓLAFUR Þór Guðbjörnsson þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu hefur valið leikmannahópinn sem leikur í milliriðli Evrópumótsins sem fram fer í Póllandi síðar í þessum mánuði. Auk Íslendinga leika í riðlinum Pólverjar, Danir og Svíar.
Meira
EYFIRSKA knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir, sem verið hefur á láni frá Þór/KA hjá Bröndby í Danmörku síðan í janúar, er komin heim á ný, fyrr en ætlað var. Kennir hún sér meins í hné og vildi hún láta athuga meiðslin betur áður en hún hæfi tímabilið með Þór/KA í sumar.
Meira
FORRÁÐAMENN körfuknattleiksdeildar KR ætla ekki að gleyma sér við það að fagna Íslandsmeistaratitli karlaliðsins langt fram á sumar. Á allra næstu dögum fer af stað vinna við að finna þjálfara fyrir karla- og kvennalið félagsins.
Meira
Rúrik Gíslason hefur misst af síðustu þremur leikjum Viborg í dönsku 1. deildinni í knattspyrnu. Hann meiddist í upphitun fyrir leik gegn Nyköbing FA fyrir páskana en þá braut samherji harkalega á honum í „reitabolta“.
Meira
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen í gærkvöld þegar lið hans sigraði Hamburg , 34:33, í mikilvægum leik í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar í handknattleik.
Meira
HANDKNATTLEIKSMENNIRNIR Guðlaugur Arnarsson og Heimir Örn Árnason leika að öllu óbreyttu með liði Akureyrar í N1-deild karla í handknattleik á næstu leiktíð.
Meira
EFTIR mjög spennandi og vel heppnaða úrslitakeppni körfuknattleiksfólks, þar sem rimmur beggja kynja um Íslandsmeistaratitilinn lauk með svokölluðum oddaleikjum, blæs handknattleiksfólk til úrslitakeppni í N1-deild karla og kvenna og í 1. deild karla.
Meira
INGÓLFUR Snorrason, karatemaður frá Selfossi, sigraði í flokki 35-44 ára á opna bandaríska meistaramótinu sem haldið var í Las Vegas um páskana. Keppendur í flokknum voru m.a. frá Danmörku, Indlandi, Ítalíu og Bandaríkjunum.
Meira
KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu 8 liða úrslit, síðari leikir: Bayern München – Barcelona 1:1 Franck Ribéry 47. – Seydou Keita 73. *Eiður Smári Guðjohnsen var varamaður hjá Barcelona en kom ekki við sögu. *Barcelona áfram, 5:1 samanlagt.
Meira
ÁTTA liða úrslitum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu lýkur í kvöld en þá mætast Arsenal og Villarreal á Emirates Stadium og Porto og Evrópumeistarar Manchester United á Estádio do Dragao-vellinum í Porto.
Meira
LIÐ Chelsea og Liverpool buðu knattspyrnuáhugamönnum upp á veislu í gær á Stamford Bridge í Lundúnum, þegar þau áttust við í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Meira
KARLALIÐ KR sigraði á Íslandsmótinu í körfuknattleik karla á mánudagskvöld með því að leggja Grindavík 84:83 í fimmta úrslitaleiknum sem var jafnframt oddaleikur. Þetta er í 11.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.