Hjarnar Bech fæddist á Tvöroyri á Suðurey í Færeyjum 10. febrúar 1931. Hann andaðist 5. mars 2009. Hann var sonur hjónanna Thominu og Magnúsar Bech sjómanns. Hjarnar var næstyngstur tíu systkina, sem öll eru nú látin. Hinn 3. júlí 1966 kvæntist Hjarnar í Tvöroyra kirkju Huldu Þorsteinsdóttur, f. 16. nóvember 1939, dóttur hjónanna Eiríku Sigurjónu Jónsdóttur og Þorsteins Nikulássonar er bjuggu þá á Kálfárvöllum í Staðarsveit en fluttu síðar í Garð á Suðurnesjum. Þau hjónin, Hulda og Hjarnar, störfuðu um margra ára skeið saman við vistheimilið í Arnarholti, þar sem þau bjuggu fyrstu búskaparár sín. Síðar um tíma á Vallá á Kjalarnesi uns þau reistu sér hús á Esjugrund 53. Hjarnar var lærður garðyrkjumaður, en þrítugur að aldri fluttist hann til Íslands til starfa á búinu sem Thor Jensen hafði látið reisa á sínum tíma í Saltvík á Kjalarnesi. Þar vann hann öll algeng bústörf en síðar réði hann sig til starfa við vistheimilið í Arnarholti. Þegar hann hætti störfum þar, gerðist hann póstur og starfaði sem slíkur til loka starfsferils síns. Árið 1976 varð hann fyrir alvarlegu slysi og var vart hugað líf. Hann náði þó bata en afleiðingar slyssins háðu honum eftir það og drógu úr starfsgetu hans. Útför Hjarnars fór fram 13. mars, í kyrrþey.

Oft getur kunningsskapur, þrátt fyrir ekki of mikil en ánægjuleg samskipti, þróast á þann veg að um vinskap verður að ræða. Þannig var því varið með okkur Hjarnar. Við hittumst ekki oft en í hvert sinn er slíkt gerðist, bar hann með sér einstaka glaðværð og hlýju. Hann bar þess augljós merki að hafa lent í slysi á ævinni. Það hafði gerst fyrir okkar kynni. En Hjarnar sýndi enga minnimáttarkend vegna þess í framkomu sinni og fasi. Hann var ætíð léttur í skapi og gamansamur. Líkamlega vel á sig kominn þrátt fyrir allt. Mátti það eflaust þakka það íþróttaáhuga hans og iðkun á yngri árum. Hann hafði sem ungur maður í heimabyggð sinni í Færeyjum stundað bæði knattspyrnu og handknattleik, auk þess að leika badminton. Áhugi hans á þessu sviði var mikill og var þessi áhugi hans vel metinn af félögum hans sem gerðu hann að heiðursfélaga í Tvöroyras Boltfélagi. Þó hann dveldi og starfaði lungann af sinni ævi hér á landi voru Færeyjar honum einkar hjartfólgnar, svo og landar hans allir.

En nú hefur þessi síkáti vinur kvatt þennan heim. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi eftir stutta legu.

Á uppstigningardag í maí árið 1941 flutti sr. Sigurbjörn heitinn Einarsson, fyrrverandi biskup, ræðu þegar hann kvaddi söfnuð sinn, sem hann hafði þjónað um nokkurra ára skeið. Honum fórust þar m.a. orð á þessa leið:

Skilnaðarstundir og kveðjuaugnablik eiga alltaf sína alvöru, þau tákna þáttaskil í lífinu og það er alltaf svo þegar þáttum skiptir í lífi vor mannanna, að við horfum með spurulli íhygli gegn örlögum vorum, sem hin líðandi stund afhjúpar smátt og smátt um leið og hið ókomna hverfur inn í nútíðina og skilar sér yfir í fortíðina. Alvara slíkra augnablika á mótum tveggja þátta er stundum trega blandin og angurværð, stundum dapurleik og harmi, allt eftir þvi hversu djúpt þau virðast rista í farvegi lífsrásar vorrar, en hún er alltaf mótuð af minningunum um hið liðna oghorfna, sem er kvatt og kemur aldrei aftur og af ugg hinnar óráðnu gátu hins ókomna og óþekkta.

Ég mun sakna Hjarnars Bech og þeirra samverustunda er við áttum saman. Ég held að þeirra hafi verið notið í gleði af beggja hálfu. Og ég kveð hann með því að vitna í orð Kahlil Gibran þegar hann segir:

Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það,
sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans,
eins og fjallgöngumaður sér fjallið bezt af sléttunni.
(Úr Spámanninum.)

Þorsteinn Guðlaugsson