Guðbjörg Hjartardóttir fæddist í Fáskrúðsfirði 29. mars 1937. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 18. júlí 2009. Foreldrar Guðbjargar voru Hjörtur Guðmundsson og Guðrún Bjarnadóttir frá Lækjamóti í Fáskrúðsfirði. Guðbjörg átti 6 systur auk fóstursystkyna. Eiginmaður Guðbjargar var Sigurjón Jónsson. Þau eignuðust fjögur börn: Jón Gunnar giftur Huldu Gísladóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn, Gíslína Ingibjörg gift Karli Jóhanni Karlssyni og eiga þau þrjá syni, Páll Lárus giftur Berglindi Einarsdóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn, Hjörvar Moritz giftur Sigrúnu Júlíu Geirsdóttur og eiga þau tvö börn. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu fimmtudaginn 23. júlí 2009.

Elsku amma mín. Þrátt fyrir langvarandi veikindi þín þá fær maður svo mikið sjokk núna þegar þú ert farin og ég hugsa um að þú ert ekki lengur hjá okkur. Ég er búin að vera að hugsa um allar þær góðu minningar sem ég á af þér. Það kemur mikið upp í hugann tíminn þegar ég var lítil og var alltaf að brasa með þér heima í Víðimýrinni ásamt mínum frændsystkinum. Þú hafðir mikið gaman af að að láta okkur hafa verkefni og var efst á lista að tína fíflana sem voru í garðinum og fengum við 50 kall á stykkið. Það gerði það að verkum að við vorum alveg ótrúlega dugleg að tína alla fíflana og var stundum prakkarast aðeins og náð sér í nokkur stykki upp í fjalli til að fá meiri pening. Mig grunar nú að þú hafir nú alveg vitað af þessu uppátæki en leyfðir okkur að eiga það í friði.
Það var alltaf rosalega gaman að fara í fýlu hjá þér, því þér fannst svo leiðinlegt ef við frændsystkinin vorum eitthvað ósátt og var manni alltaf mútað" til að hætta í fýlu og beið maður alltaf eftir besta tilboðinu sem var þá ís og nammi.

Þegar ég fór að búa sýndir þú því mikinn áhuga.  Þú spurðir mig oft hvort að ég myndi ekki elda heitan mat handa manninum mínum í hádeginu og í kvöldin. Þegar ég sagði svo að ég væri nú ekkert alltof dugleg við það þá gafstu mér bókina Maturinn hennar ömmu" svo ég gæti nú farið að reyna við mig í eldhúsinu, þú varst nefnilega svo dugleg í eldhúsinu og voru alltaf þvílíkar kræsingar hjá þér, það er sko hægt að segja að fólk fór ekki svangt út úr þínu húsi.
Ég man svo vel þegar ég sagði þér frá því að ég væri ólétt af mínu fyrsta barni. Þú grínaðist þá við mig og spurðir hvort að ég ætlaði að gera þig gamla þar sem þú yrðir þá langamma því að ég gekk með fyrsta barnabarnabarnið.
Það er svo skrítið að hugsa til þess að þú sért ekki enn þá hjá okkur, enda varstu ekki nema 72 ára, en ég vil trúa að þér líði betur núna og þjáist ekki lengur. Ég vil líka trúa að afi hafi tekið vel á móti þér og að þið sitjið núna saman og vakið yfir okkur. Mér líður vel að vita af svona yndislegum englum sem ég á himnum sem vaka yfir mér og fjölskyldunni minni. Elsku amma mína ég sakna þín rosa mikið og vil bara segja að þú munt alltaf eiga stórann sess í mínu hjarta ásamt elsku afa mínum.

Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)


Ástar og saknaðarkveðjur
Eva Dögg Pálsdóttir

Eva Dögg Pálsdóttir