Þjóðin var alltaf vinur minn

Vigdís Finnbogadóttir, forseti lýðveldisins frá 1980 til 1996.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti lýðveldisins frá 1980 til 1996. mbl.is/Árni Sæberg

Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti lýðveldisins frá 1980 til 1996, fagnar nú á miðvikudaginn 90 ára afmæli sínu. Ýmislegt hefur drifið á daga Vigdísar á þeim tíma og saga hennar spannar mikilvæga tíma í sögu Íslands þegar landið breyttist frá konungsríki til lýðveldis og að sjálfsögðu aukið jafnrétti kvenna en Vigdís var, líkt og alkunna er, fyrsti kvenkyns þjóðhöfðinginn sem var þjóðkjörinn. Morgunblaðið fékk að ræða við hana í tilefni af þessum tímamótum.

Ég er Vesturbæingur í húð og hár,“ segir Vigdís mér þegar ég spyr hana út í æsku og uppvaxtarár. „Ég fæddist á Tjarnargötu 14,“ segir Vigdís en foreldrar hennar voru Finnbogi Rútur Þorvaldsson, verkfræðiprófessor við Háskóla Íslands, og Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur sem lengi var formaður Hjúkrunarfélags Íslands.

Vigdís rifjar upp að hún hafi sem barn á Tjarnargötunni oft leikið sér á neðri hæðinni hjá Ólafi Lárussyni, lögfræðiprófessor og síðar rektor Háskóla Íslands,...