Veiran mun hverfa óháð aðgerðum ríkja

Ríki hafa gripið til ólíkra aðgerða vegna kórónuveirunnar, sum skella …
Ríki hafa gripið til ólíkra aðgerða vegna kórónuveirunnar, sum skella í lás á meðan önnur haldast opnari. AFP

Á meðan flest ríki heims ræða nú til hvaða aðgerða sé best að grípa í von um að sporna gegn faraldri kórónuveiru er einn fræðimaður, Isaac Ben-Israel, prófessor og forstöðumaður öryggisfræða við háskólann í Tel Aviv, sem segir aðgerðir þjóða ekki skipta máli. Kórónuveiran muni svo gott sem hverfa á um 70 dögum. Það er The Telegraph sem greinir frá þessu.

Ben-Israel heldur því fram að rannsóknir hans sýni að Covid-19, sjúkdómurinn sem kórónuveiran veldur, nái toppi sínum á 40 dögum en eftir það fjari fljótt undan honum. Það að ríki grípi til umfangsmikilla lokana skilar, að hans sögn, litlum sem engum árangri öðrum en þeim að stórskaða efnahag viðkomandi ríkis. Rannsóknir Ben-Israel sýni að hlutfall daglegra nýsmita af heildarsmitum séu í upphafi um 30% en minnki niður í 10% eftir sex vikur. Viku síðar verður hlutfallið komið niður fyrir 5%. „Rannsóknir okkar sýna að þetta er stöðugt mynstur þvert á ríki,“ segir meðal annars í rannsókn hans, sem enn...