Eitt stærsta græna svæði Vesturbæjar undir möl
„Veðurfar hefur verið mikið vandamál á þessu svæði. Það er mikið grjót sem gengur þarna á land á hverju ári og svo hefur gras verið að fjúka. Það voru til að mynda settar niður þarna nýjar grasþökur sem fuku nokkrum dögum seinna. Vegna þessa þurfum við að hafa umhverfið þannig að það taki mið af aðstæðum, verði meira tengt sjónum og fjörunni,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til stórra grjóthrúgna sem búið er að sturta á grasblett við Eiðsgranda í Reykjavík, mörgum íbúum þar til ama. Greint hefur verið frá þeirri athygli sem hrúgurnar hafa fengið undanfarið, óánægju íbúa og furðu borgarfulltrúa á framkvæmdinni.
Boðar útsýnispall og þveranir
Aðspurð segir Sigurborg Ósk borgina vera að búa til eins konar „strandgarð“ við Eiðsgranda og muni grjóthrúgurnar gegna lykilhlutverki þegar komi að því að rækta...