Sætu strákarnir sem enginn fær stöðvað
Hörðustu aðdáendur ganga svo langt að fullyrða að strákarnir í bandinu BTS séu Bítlar 21. aldarinnar. Flestir tónlistarspekúlantar myndu líklega seint samþykkja að smellir á borð við „Dynamite“ og „Boy In Luv“ skáki „Imagine“ eða „A Day In The Life“, en streymistölurnar tala sínu máli: á Bítlarásinni á YouTube hefur „Strawberry Fields“ verið streymt um 40 milljón sinnum en teljarinn undir myndbandinu við „Boy With Luv“ er löngu kominn yfir einn milljarð.
Á tímum internetsins komast þeir Ringo, John, Paul og George því ekki með tærnar þar sem sjö krúttlegir strákar frá Suður-Kóreu eru með hælana.
Skráðu þig inn til að lesa áfram
Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn.
Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar.