Alltaf sama platan

Alltaf sama platan

Þegar hér er komið sögu í ferli AC/DC hefur gríðarlegt magn vatns runnið til sjávar. Hljómsveitin er gjörsamlega óstöðvandi og vinsældir Ástralanna stjarnfræðilegar. For Those About To Rock (We Salute You), sjöunda alþjólega hjóðversplata kvartettsins knáa kemur með hraði fram á sjónarsviðið og með hvelli. Það er engu líkara en AC/DC hafi notið við fjórum sinnum lengur en raun bar vitni svo gríðarleg hafði vegferð þeirra verið til þessa.Smári og Birkir eru ennþá lemstraðir eftir Back In Black og uppgjör sitt við Bon Scott  en anda síðan léttar í fangi þessarar plötu, svo mikið reyndar að það kurrar í þeim, með tilheyrandi öndunaræfingum og tilfinningatjáningu.Ofurrokkarinn, hjólabrettahundurinn og fjölskyldufaðirinn Nate Newton, úr Converge, Doomriders, Old Man Gloom,  Cave In, Jesuit o.fl. er gestur þáttarins og segir okkur frá áhrifum AC/DC á sitt líf og sitthvað fleira.Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og geta skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir og innblásnir te og seið frá Urta Islandica. Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.

07. Alltaf sama platan - For Those About To Rock (Nate Newton)Hlustað

28. jún 2021