Árið er

Árið er

Moses Hightower tekur stutt skref og fer upp á háa C, Memfísmafían sötrar síðasta móhítóinn um blánótt á Kúbu og Formaður Dagsbrúnar ummyndast í Tilbury. Sigur Rós breytist úr kvartett í tríó, Múgsefjun fær ekki nóg, Magni er á heimaslóðum, Egill Ólafsson kynnir Finnsk íslenska vetrarbandalagið og Dimma fremur myrkraverk. Of Monsters & Men slær í gegn í útlöndum, Magnús og Jónas gæta hugsana sinna og Ghostigital svífur inn í draumalandið með David Byrne. Ásgeir Trausti og Blaz Roca heilla dömurnar með derhúfu og hvítum skóm, Borko er frjálsborinn maður, og Elíza Newman er með heimþrá. Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Meðal viðmælenda í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2012 eru Steingrímur Teague, Andri Ólafsson, Bragi Valdimar Skúlason, Tómas R. Einarsson, Þormóður Dagsson, Egill Ólafsson, Kjartan Sveinsson, Georg Holm, Orri Páll Dýrason, Kári Sturluson, Erpur Eyvindarson, Daði Birgisson, Björn Heiðar Jónsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Haraldur Leví Gunnarsson, Magni Ásgeirsson, Björn Kristjánsson, Einar Örn Benediktsson, Árni Rúnar Hlöðversson, Árni Vilhjálmsson og Elíza Newman. Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson. Lagalisti: Moses Hightower - Stutt skref Moses Hightower - Sjáum hvað setur Moses Hightower - Tíu dropar Moses Hightower - Háa C Moses Hightower - Góður í Sigurður Guðmundsson & Memfísmafían - Blánótt Sigurður Guðmundsson & Memfísmafían - Síðasti móhítóinn Tilbury - Riot Tilbury - Drama Tilbury - Tenderloin Egill Ólafsson - Vetur Egill Ólafsson - Ókeypis Egill Ólafsson - Eitt stundarbil Egill Ólafsson - Orð falla í stafi Sigur Rós - Ekki múkk Sigur Rós - Rembihnútur Sigur Rós - Varúð Magnús Þór & Jónas Sigurðsson - Ef ég gæti hugsana minna SSSól & John Grant - Finish On Top Ásgeir Trausti & Blaz Roca - Hvítir skór Hljómar - Þú og ég (Remix - Svartur á leik) Grasasnarnir - Til í tuskið Múgsefjun - Þórðargleði Múgsefjun - Sendlingur og sandlóa Múgsefjun - Fékkst ekki nóg Of Monsters & Men - Slow & Steady Of Monsters & Men - Lakehouse Of Monsters & Men - Love Love Love [Live í Garðinum] Of Monsters & Men - Little Talks [Live Jimmy Fallon] Of Monsters & Men - Dirty Paws Dimma - Þungur kross Dimma - Sólmyrkvi Dimma - Skuggakvæði Magni Ásgeirsson - Augnablik Magni Ásgeirsson - Hugarró Magni Ásgeirsson - Heim Magni Ásgeirsson - Ásberg Júpíters - Þokkagyðja Valgeir Guðjónsson og Jón Jónsson - Spáný djúsí vinátta 200.000 naglbítar - Í Matarskauti mjúku Ómar Guðjónsson - Bankað Borko - Born To Be Free Borko - Hold Me Now Ghostigital feat. David Byrne - Dreamland Grasasnarnir - Til í tuskið FM Belfast - Öll í Kór (Unicef lagið) Elíza Newman - Stjörnuryk Elíza Newman - Hver vill ást Elíza Newman - Þú veizt

Árið er 2012 - þriðji hlutiHlustað

01. jún 2024