Athafnafólk

Athafnafólk

Viðmælandi þáttarins er Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdarstýra Carbfix. Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli og starfa nú yfir 30 manns hjá fyrirtækinu.   Edda er fædd árið 1981 og er alin upp í Fossvogi, Kópavogi og Danmörku. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði B.S. og Master í efnafræði við Háskóla Íslands og Doktor í forða- og efnafræði frá sama skóla. Edda starfaði sem yfirmaður nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur samhliða því að vera verkefnastjóri Carbfix sem byrjaði sem nýsköpunarverkefni innan Orkuveitunnar, Háskóla Íslands og erlendra samstarfsaðila. Carbfix var formlega stofnað sem dótturfyrirtæki OR árið 2019 og tók hún þá við sem framkvæmdastýra fyrirtækisins. Edda hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, GEORG, Íslenskri NýOrku og danska orkufyrirtækinu Innargi. Þessi þáttur er í boði Icelandair og Krónunnar.

39. Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri CarbfixHlustað

24. apr 2023