Athafnafólk

Athafnafólk

Viðmælandi þáttarins er Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical en félagið framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigðisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Pétur er fæddur árið 1966 og er alinn upp í Kópavoginum. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lauk prófi frá Kennaraháskólanum og nam síðar mastersnám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Pétur hefur komið víða við í atvinnulífinu. Hann var einn af stjórnendum Samskipa við stofunun félagsins 1991, stýrði innflutningsdeild og uppbyggingu á vöruhótel og drefingamiðstöð Samskipa. Hann var síðar framkvæmdastjóri yfir starfsemi í SÍF í Noregi (Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda) og síðar sölustjóri hjá íslenska lækningatækjaframleiðandanum Flögu. Frá Flögu fór Pétur til Fons eignarhaldsfélags og fór þar fyrir fjárfestingum Fons á breskum smásölumarkaði og í flugrekstri.  Pétur tók við sem framkvæmdastjóri Nox Medical árið 2011 fjórum árum eftir stofnun þess og hefur stýrt örum vexti félagsins síðan. Fyrir þremur árum sameinaði Nox Medical starfsemi sína við starfsemi Fusion Health í Atlanta í Bandaríkunum undir merkjum Nox Health. Hjá Nox starfa nú um 350 starfsmenn og þar af tæplega 100 á Íslandi við þróun, framleiðslu og markaðssetningu lækningavara undir merkjum Nox Medical. Vöxtur félagsins hefur verið hraður en árið 2022 velti Nox Health samstæðan rúmum 8 milljörðum króna. Þessi þáttur er í boði Arion, Krónunnar og Icelandair.

42. Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox MedicalHlustað

23. jún 2023