X-Nýsköpun Ólafur Þór GunnarssonÓlafur Þór Gunnarsson kemur hjólandi í þennan þátt. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun, þekkingu, hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira. Eins og við er að búast er lækninum Ólafi tíðrætt um nýsköpun í heilbrigðisgeiranum.Ellefti þáttur Auðvarpsins er jafnframt fimmti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun. Hvernig nýtum við okkur þekkingu og hugmyndir fólksins í landinu til að byggja upp betra samfélag? Gerist þetta að sjálfu sér og hvernig geta stjórnvöld hjálpað?Í þessum þætti er áherslan á heilbrigðistæknina, hvernig ýtum við undir og hjálpum okkar fólki að skapa og gera samfélagið betra. Eru t.d. viðbrögð okkar og stjórnun í heilbrigðiskerfinu á tímum heimsfaraldurs til útflutnings? Ólafur fer yfir málið ásamt því t.d. að ræða hvernig samfélagið getur ýtt undir ábyrga hegðun frumkvöðla með því að vera til staðar í upphafi og styðja vel við bakið á nýsköpun.X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is
X-Nýsköpun, vísindin og við - Ólafur Þór Gunnarsson