Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Í tilefni af alþjóðadegi hugverkaverndar - World Intellectual Property day, þann 26. apríl 2021 fáum við Tatjönu Latinovic hugverkastjóra Össurar og Guðmund Þór Reynaldsson hugverkastjóra Marel í heimsókn.  Hugverkadagurinn er að þessu sinni helgaður áhrifum hugverka á rekstur, viðgang og vöxt lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þó hvorki Össur né Marel teljist lítil eða meðalstór fyrirtæki í dag þá voru þau það sannanlega í upphafi. Það er því fróðlegt að fá innsýn inn í hvernig þessi tvö fyrirtæki, sannkölluð krúnudjásn íslensks nýsköpunarumhverfis, líta á hugverkavernd. Við ræðum hugverkastefnu þessara fyrirtækja og hvernig hugverkavernd hefur verið lykilþáttur í að skapa þessum alþjóðlegu risum samkeppnisforskot.  Einnig förum við yfir hvað minni nýsköpunarfyrirtæki geta lært og hvaða áherslu íslenskt samfélag ætti að leggja til að ýta undir jákvæða þróun á þessu sviði. Hvernig nýtum við okkur hugverkavernd til að skapa okkur samkeppnisforskot?www.audna.is - www.edih.is

Nýsköpun, vísindin og við - Marel, Össur og hugverkaverndinHlustað

26. apr 2021