Bannað að dæma

Bannað að dæma

10 þáttur af B.A.D. Sindri og Stefanía kíktu í spjall til okkar og töluðum um allt mögulegt!  Þau eru bæði prestar í Glerárkirkju og ræddum við sorg, gleði, tilfinningar og hvernig fólk tekst á við dauðann, þau eru bæði gífurlega hress og skemmtileg og var ótrúlega gaman að fræðast um líf þeirra, Sindri er tvíkynhneigður og Stefanía samkynhneigð, það hefur ekki truflað neinn innan kirkjunnar, enda á það ekki að gera það.  Hróshornið og uppkeyrslan voru á sínum stað! Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar: www.psa.is  og er það kaffið.is sem dreifir þættinum.  Dressman - Lemon - X-mist- Brá og Befit eru þau sem standa þétt við bakið á okkur og erum við þeim ævinlega þakklát! Bannað að dæma

Bannað að dæma - PrestarHlustað

18. mar 2021