Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Elísabetu Erlendsdóttur, yfir rjúkandi heitri eðlu, eða skarfi eins og þau kalla þetta.Aðalsteinn byrjaði ungur í fjölmiðlabransanum eða aðeins 20 ára gamall hjá DV og hefur hann eins og hann sagði sjálfur ekki unnið aðra vinnu síðan. Hann hefur þó komið víða við í fjölmiðlamennskunni en hefur hann unnið hjá flestum stærstu miðlum landsins ásamt því að hafa verið einn stjórnenda Kveiks.Elísabet er ólétt af þeirra öðru barni saman og starfar hún sem vöruflokkastjóri hjá Ekrunni og sér þar bæði um markaðstengd mál og svo fær hún líka útrás fyrir Excel þörf sinni.Aðalsteinn og Elísabet kynntust fyrst í gegnum sameiginlegan vin en hafði hún dregið Aðalstein með sér í afmælispartý í þeirri von um að hann myndi kynnast Elísabetu. Það fór heldur betur eins og vinkonan sá fyrir og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga nú von á fjórða barninu í fjölskylduna.Í þættinum ræddum við meðal annars, fjölmiðlabransann, samherjamálið og hvernig það fór í fjölskyldulífið, stjúpforeldrahlutverkið, uppvaxtarárin á Egilsstöðum, rómantíkina og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal hversu bókstafleg Elísabet á það til að vera.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/

#98 - Aðalsteinn Kjartans og Elísabet ErlendsHlustað

08. mar 2023