Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur.Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði húinu í hinu víðfræga atriði í áramótaskaupinu hér um árið.Matthildur er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá skattinum allar götur síðan hún útskrifaðist.Halli þakkar Matthildi fyrir að þau séu saman í dag, en allt hófst þetta á örlagaríku facebookaddi sem Halli var ekki lengi að samþykkja en hann kannaðist við Matthildi af störfum hennar sem þula og hafa þau verið saman nær allar götur síðan.Í dag eru þau gift eiga saman tvo stráka en átti Halli fyrir eina dóttur úr fyrra sambandi.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars lífið í sjávar-bæjunum, fyrstu og síðustu fjölskyldu útileguna, leiklistina & fjölskyldulífið, athyglisbresti og margt fleira ásamt því að við heyrðum margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Halli fékk það staðfest að Matthildur væri framtíðarkonan í pulsusjoppu á Laugarvatni.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#65 - Halli Melló & MatthildurHlustað

20. júl 2022