Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Hlaðvarpsstjarnan, kynjafræðingurinn og aktívistinn Þorsteinn V. Einarsson, eða Steini í Karlmennskunni eins og margir þekkja hann, mætti til mín ásamt sínum Betri helmingi sálfræðingnum og aktívistanum Huldu Jónsdóttur Tölgyes.Steini er menntaður kynjafræðingur en heldur hann úti fræðslu instagram-reikningnum vinsæla “Karlmennskan” ásamt því að stjórna hlaðvarpi undir sama nafni með það að markmiði að breiða út femenískum boðskap með ábendingum um hluti sem betur mættu fara er snertir jafnrétti í samfélaginu. Hulda er klínískur sálfræðingur og starfar sem slíkur ásamt því að halda úti fjölda námskeiða en hefur einnig farið mikið fyrir í jafnréttisbaráttunni en standa þau einmitt saman að námskeiðinu “Þriðja vaktin”Steini og Hulda kynntust í gegnum sameiginlegan vin en höfðu þau bæði sama daginn haft orð á því við hann að hann þyrfti að kynna þau fyrir einhverjum álitlegu maka-efni. Vinurinn var fljótur að leggja tvo og tvo saman fór með þeim á kaffihús og skildi þau svo eftir og hafa þau verið saman allargötur síðan og eru í dag gift með þrjú börn og hund.Í þættinum ræddum við meðal annars um Karlmennskuna og hvar áhuginn kviknaði á jafnréttisbaráttunni, veganlífstílinn, fjölskyldulífið, rómantíkina, alvarleikann og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar þau villtust inná fínann veitingastað sem þau voru alls ekki undirbúinn undir.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/

#96 - Þorsteinn V. & Hulda TölgyesHlustað

22. feb 2023