Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Ég átti eitt áhugaverðasta og semmtilegasta spjall sem ég hef átt lengi við pararáðgjafann Theodór Francis Birgisson og hans Betri helming félagsráðgjafann Katrínu Katrínardóttur.Theodór eða Teddi eins og hann er oftast kallaður er einn eiganda fjölskyldu og áfallamiðstöðvarinnar Lausnarinnar og er hann einn allra vinsælasti pararáðgjafi landsins en hefur hann hjálpað fjöldanum öllum af pörum í gegnum tíðina og eru langir biðlistar eftir því að komast að hjá honum.Katrín er einnig einn eiganda Lausnarinnar og sér hún aðallega um einstaklingsráðgjöf á milli þess sem hún málar glæsileg málverk.Teddi og Kata sáust fyrst ung á samkomu í hvítasunnukirkjunni en spilar trúin stórann þátt í lífi þeirra. Teddi lýsti því að hann hefði gjörsamlega fallið fyrir henni þegar hún gekk inn og leið ekki á löngu þar til þau fóru að stinga saman nefjum. Katrín var þó ekki viss um að hún væri tilbúin að giftast honum og entist samband þeirra ekki lengur en í þrjá mánuði. Það var síðan tveimur árum síðar að Teddi sannfærðist endanlega um að Katrín væri konan sem hann ætlaði að eyða ævinni með svo hann gerði sér lítið fyrir og bauð henni í bíltúr og bað hennar á fyrsta eiginlega stefnumóti þeirra.Síðan þá hafa þau verið saman, eru gift og eiga í dag fjögur börn og fjölda barna barna.Í Þættinum ræddum við meðal annars um lífið á Ísafirði og prestamennskuna, fjárhagsvandamál sem ýtti þeim útí að elta drauminn um félagsráðgjöf, mikilvægi samskipta milli maka, kynlíf, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar þegar Teddi var ekki alveg með á nótunum um nætursvefn barna þeirra.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/

#100 - Theodór Francis & KatrínHlustað

22. mar 2023