Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Leikaraparið og listafólkið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson tóku sér frí frá góða veðrinu og mættu til mín í stórskemmtilegt og einlægt spjall yfir rjúkandi heitum bolla.Aldís hefur verið áberandi á skjám landsmanna undanfarin misseri en leikur hún meðal annars aðalhlutverk sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en skrifaði hún einnig handritið á þeirri þáttaröð. Fyrir utan það hefur hún sést á í þáttum og bíómyndum og sem dæmi má nefna Netflix þættina Kötlu.Kolbeinn er einnig leikari og hefur hann mikið unnið innan sjálfstæðu leikhússenunar en hefur líkt og Aldís sést meira á skjám landsmanna undanfarið.Aldís og Kolbeinn kynntust fyrst við gerð sjónvarpsþáttanna Svörtu sanda en léku þau einmitt bæði burðarhlutverk í þeim þáttum. Hjólin fóru þó ekki að snúast fyrr en í lokapartýinu en voru þau þó ekkert að flýta sér að hlutunum. Það flækti málin örlítið að þau bjuggu ekki í sama sveitarfélagi en búa þau í dag saman í Reykjavík með einn hund en átti Kolbeinn einnig tvær dætur úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um samskipti og áhuga þeirra beggja á sambandinu, leiklistina og hvernig áhugi þeirra kviknaði á henni,  rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð meðal annars ansi fallega sögu af fyrstu kynnum Aldísar við dætur Kolbeins.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#114 - Aldís Amah & KolbeinnHlustað

12. júl 2023