Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Naglbíturinn, leikarinn, rithöfundurinn og dagskrárgerðarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi ljósmyndaranum, leikstjóranum og listakonunni Sögu Sigurðardóttur.Vilhelm eða Villi Naglbítur eins og margir þekkja hann, hefur komið víða við á sínum ferli en er hann alveg einstaklega fjölhæfur maður. Þetta hófst allt hjá honum með hljómsveit sinni 200 þúsund Naglbítum en hefur hann síðan þá meðal annars stýrt sjónvarpsþáttum, skrifað fjölda barnabóka, leikið í barnaefni, komið á svið leikriti og gæti ég haldið lengi áfram.Saga er einn okkar allra vinsælasti ljósmyndari en hefur hún í gegnum tíðina unnið fyrir margar risastórar alþjóðlegar keðjur og má sem dæmi nefna Apple, Nike, Victoria secret og Topshop. Ásamt ljósmynduninni hefur hún undanfarin ár leikstýrt fjölda auglýsinga á milli þess sem hún málar frábær listaverk.Villi og Saga kynntust fyrst í gegnum instagram en sendi Villi henni emoji gátu að hún hélt og út frá því myndaðist samtal. Þau ákváðu í kjölfarið að hittast en mætti Saga á spilakvöld til vina Villa og var þá ekki aftur snúið. Hlutirnir mölluðu hjá þeim í rólegheitunum í einhvern tíma en eru þau í dag nýbakaðir foreldrar, en fyrir átti Villi tvo drengi. Ég vil nýta tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með nýja barnið en var Saga einmitt á seinustu metrum óléttunar þegar þau mættu til mín í spjall.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistina, sjónvarpið, ljósmyndunina og árin í London rómantíkina í Borgartúninu og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Villi lenti í útistöðum við Rússnesku mafíuna.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/

#99 - Villi Naglbítur og Saga SigHlustað

16. mar 2023