Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heidi Ola eins og margir kannast við hana og hennar betri helmingur garðyrkju og ævintýramaðurinn Erlendur Kristjánsson mættu til mín í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum.Heiða var á sínum tíma margfaldur model fitness meistari, hélt úti matarbloggi og þjálfaði í WorldClass en er hún þessa daganna í fæðingarorlofi á milli þess sem hún býr til húsgögn af ýmsu tagi úr drumbum, en þess fyrir utan sér hún um Hlöðuna sem er gæluverkefni hennar og er stefnan tekin á að þar muni innan tíðar rísa glæsilegur veislusalur sem mun henta í hin ýmsu tilefni, en héldu þau síðustu jól úti glæsilegum jólamarkaði og má vænta þess að af og til muni Hlaðan standa fyrir spennandi viðburðum af því tagi.Elli rekur fyrirtækið Allt fyrir garðin og er Hlaðan einmitt höfuðstöðvarnar og er nóg að gera hjá honum þessa stundina í að halda götum okkar íslendinga hreinum af snjó. Hann er mikill ævintýramaður og hefur hann náð Heiðu með sér í ótrúlegustu ferðalög.Heiða og Elli kyntust fyrst á ónefndu stefnumótaforriti en var Heiða ansi skeptísk á það í fyrstu. Hún lét þó til leiðast og hittust þau á stefnumóti en hafði Elli séð hana nokkru fyrr í Hagkaup og var hann þá alveg viss að þarna væri konan hans mætt. Hlutirnir gerðust hratt hjá þeim í kjölfarið og eiga þau í dag saman tvö börn og er aldrei dauð stund hjá þeim í Hlöðunni.Í þættinum ræddum við meðal annars um ævintýramennskuna og ferðalög þeirra með bátinn sinn útum allt land, fjölskyldulífið, Fitness tímabilið, matarbloggið, svínin þeirra tvö og margt fleira, ásamt því að heira fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal frumraun Ella við að tæma ferðaklósettið þeirra á Akureyri.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Augað - https://www.augad.is/

#95 - Heiða & ElliHlustað

15. feb 2023