Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Gylfi Einarsson fyrrum atvinnumaður í fótbolta og spark-spekingur með meiru kom til mín í stórskemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, ofurþjálfaranum vinsæla Karitas Maríu Lárusdóttur.Gylfi er eins og fyrr segir fyrrum atvinnumaður í fótbolta en spilaði hann á sínum ferli fyrir klúbba á borð við Lilleström, Brann og Leeds. Í dag rekur Gylfi fyrirtækið Iceland Tax free og bregður reglulega fyrir á skjám landsmanna um helgar yfir enska boltanum.Karitas er þjálfari hjá World Class til fjölda ára og hefur kennt þar við góðan orðstír ásamt því að vera með fjarþjálfun sem fer sístækkandi.Gylfi og Karitas kynntust í byrjun árs 2016 í gegnum sameiginlega vinkonu en var Gylfi ekki lengi að stökkva til og bjóða henni á deit. Karitas segist þó hafa fallið algjörlega fyrir honum þegar hann bauð henni heim í súkkulaðirúsínur og smoothie og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið og hafa þau ekki verið í sundur síðan. Í dag eiga þau saman tvö börn en átti Gylfi tvö börn fyrir úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um fjölskyldulífið og hvernig það var að fóta sig í stjúpforeldra hlutverkinu, fótboltann, heilsu, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Gylfi fór einn út í mjaðmaskipti.Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#78 - Gylfi Einars & Karitas MaríaHlustað

19. okt 2022