Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Í þætti dagsins fékk ég til mín hjón sem flestir Íslendingar ættu að kannast við enda Íslendingar Eurovision aðdáendur með meiru en þetta eru að sjálfsögðu Gagnamagnshjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir.Daði og Árný eru búsett í Berlín en hafa þau átt heima þar undanfarin 8 ár og er enginn heimferðarhugur í þeim en kunna þau einstaklega vel við sig í Berlín þar sem þau hafa komið sér vel fyrir ásamt börnunum sínum tveimur. Þar er Daði með sitt eigið stúdíó þar sem músík töfrarnir verða til á milli þess sem hann skýst í tónleikaferðir og ýmis verkefni tengd tónlistinni. Árný er þessa dagana heimavinnandi húsmóðir í fullu starfi með börnin þeirra tvö í stórborgarlífinu. Daði og Árný kynntust í Fjölbrautaskóla Suðurlands en voru þau bæði aktív í félagslífinu og voru þau að þeirra sögn miklir vinir.  Rómansinn kviknaði þó fyrst á Hróaskeldu hátíðinni í Danmörku árið 2010  þar sem þau tóku einn léttann spiderman sleik, en var það þó ekki fyrr en hálfu ári síðar að þau urðu opinbert kærustupar.Daði og Árný eru einstaklega samrýmt par og finnst þeim fátt betra en félagsskapur hvors annars. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars Eurovision-ævintýrin þrjú, lífið í Berlín, dvölina í Kambódíu, tónlistina, börnin og margt fleira ásamt því að þau sögðu mér skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal hrakförum þeirra á vespu í framandi landiBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#63 - Daði & ÁrnýHlustað

06. júl 2022