Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Leikarinn, leikstjórinn, söngvarinn og skemmtikrafturinn Bjartmar Þórðarson og hans betri helmingur Snorri Sigurðarson komu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum.Bjartmar er menntaður leikari frá leiklistarskólanum Weber Douglas í London og útskrifaðist þaðan árið 2004. Bjartmar er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur þegar kemur að listaheiminum en hann ákvað að sækja sér nám í leikstjórn fljótlega eftir leikaranámið en í millitíðinni tók hann þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og kláraði nýlega nám í söng og söngþjálfun í Danmörku.Snorri er að eigin sögn töluvert meiri introvert en Bjartmar og hefur hann orð á því að honum leiðist aldrei einum með sjálfum sér en skýrt dæmi um það er íþróttin sem Snorri valdi sér að stunda sem barn en hann var efnilegur golfari og varð til að mynda tvöfaldur íslandsmeistari unglinga og var bæði valinn í unglinga- og fullorðinslandslið Íslands í golfi á sínum tíma. Bjartmar og Snorri hafa undanfarin ár rekið saman hótelið Rey Apartments en þeir seldu starfsemina nýlega og eru nú á fullu að endurgera hús sem er mikið áhugamál þeirra beggja.Bjartmar sá Snorra fyrst á bar og hafði orð á því við vin sinn að honum fyndist hann sætur, vinurinn lét ekki segja sér það tvisvar heldur dró Bjartmar með sér að Snorra, spurði “What is your name?” og skildi svo Bjartmar einan eftir og hafa þeir verið saman síðan þá.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars um listina og lífið, stjúpföðurs hlutverkið, rómantíkina, hvernig það er að vinna með makanum sínum ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal kynni þeirra við sérsveit New York lögreglu.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#72 - Bjartmar & SnorriHlustað

07. sep 2022