Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Leikarinn Jóhann G Jóhannsson mætti til mín ásamt sínum betri helmingi framkvæmdastjóranum Guðrúnu Kaldal í einlægt og skemmtilegt spjall nú á dögunum.Jóhann eða Jói eins og hann er alltaf kallaður hefur á sínum ferli sem leikari komið víða við en hófst leiklistarferill hans í sjónvarpsþáttunum vinsælu um Nonna og Manna eftir samnefndum bókum, þá aðeins 14 ára gamall. Hann hefur bæði unnið mikið á sviði og í kvikmyndum en er fókus hans þessa stundina nær eingöngu í kvikmyndaheiminum og hefur hann getið sér gott orð víða erlendis og er nóg að gera hjá honum.Guðrún er framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar en hefur hún verið í frístundabransanum um langt skeið ásamt því að hafa verið atvinnudansari til þrítugs.Jói og Guðrún kynntust árið 1995 á Dansverkstæðinu þar sem Guðrún var að kenna aerobic og Jói var með leiklistarnámskeið. Það var þó ekki fyrr en um hálfu ári seinna að þú fóru að deita en var það einmitt þá sem Jói bauð Guðrúnu heim í afar rómantískan kvöldmat þar sem hann eldaði handa henni 1944 og hafa þau ekki verið í sundur síðan þá. Þau eru í dag búin að vera gift í 22 ár og eiga saman tvo uppkomna stráka.Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvernig það er að leika í stórum erlendum verkefnum, eurovision dansævintýri Guðrúnar með Páli Óskari, samheldni fjölskyldunnar, rómantíkina og fengum við að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Jói var ekki alveg með “touchið” á skíðatískunni.Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#77 - Jói G & Guðrún KaldalHlustað

12. okt 2022