Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fjöllistamaðurinn, skemmtikrafturinn og töframaðurinn Lárus Blöndal Guðjónsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi viðskiptafræðingum Heiðrúnu Örnu Friðriksdóttur.Lárus eða Lalli eins og hann er alltaf kallaður þekkja flestir undir listamannsnafninu Lalli töframaður en hann er einstaklega fjölhæfur skemmtikraftur og einmitt best þekktur fyrir töframennskuna, fyrir utan hana hefur hann meðal annars gefið út plötu, skrifað bók og komið fram við ýmis tækifæri.Heiðrún er viðskiptafræðingur að mennt og starfar í dag sem aðstoðarmaður fjármálastjóra hjá fyrirtækinu Controlant en hefur hún einnig fengist við viðburðarstýringu og verkefnastjóri hjá Siðmennt.Lalli og Heiðrún kynntust á nútímalegann hátt í gegnum Tinder, en fóru hlutirnir rólega af stað en má segja að hjólin hafi farið að snúast fyrir einhverri alvöru þegar Heiðrún plataði hann með sem fararstjóra í verkefni sem hún var að viðburðastýra. Lalli átti þó í einhverjum smá vandræðum með að festa ráð sitt og þurfti að kæla hlutina aðeins til þess að átta sig, en hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman tvo stráka en átti Heiðrún tvö börn fyrir.Í þættinum ræddum við meðal annars um töframennskuna og hvar áhuginn fyrir henni kviknaði, skemmtanabransann, bæði brúðkaupin þeirra, rómantíkina, húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar þau urðu vitni af ansi klaufalegum atburði á nektarströnd í Sitges.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#113 - Lalli Töframaður & HeiðrúnHlustað

05. júl 2023