Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Burlesque drottningin og fyrrum fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack mætti í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri Helmingi útvarpsmanninum Tómasi Steindórssyni.Margrét er sannkölluð fjöllistakona en er hún einna þekktust fyrir Burlesque sýningar sínar og kemur hún fram við hin ýmsu tilefni, veislustýrir, kennir á námskeiðum og er meðlimur í Sirkus Íslands en áður fyrr starfaði hún í fjölmiðlum bæði á RÚV og Stöð 2.Tómas stendur útvarpsvaktina á X-inu á hverjum degi ásamt því að sjá af og til um umjöllunarþætti um körfubolta en var lengi vel efnilegur körfuboltamaður sjálfur.Margrét og Tómas kynntust í gegnum samfélagsmiðla og var opnunarlína Tómasar það sem gerði útslagið en sagðist hann vera hennar helsti aðdáandi í Útsvarinu. Í kjölfarið skipulögðu þau hitting en var Tómas búinn að gleyma að hann átti að vinna í félagsmiðstöðinni það kvöld, Margrét var þó staðráðin í að hitta hann og bauðst hún til að mæta og vera með magadansnámskeið og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman eina stelpu.Í þættinum ræddum við meðal annars um hvar áhugi Margrétar kviknaði á Burlesque, magadansinn, fjölmiðlabransann, fjölskyldulífið, rómantýkina og margt flera og fengum að heyra fullt af sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Tómas ákvað að prufa að taka þátt í Burlesque sýningu.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#84 - Margrét Maack & Tommi SteindórsHlustað

30. nóv 2022