Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Í þætti dagsins fékk ég til mín hjónin Yesmine Olsson og Arngrím Fannar Haraldson, eða Adda Fannar eins og hann er betur þekktur, í létt og skemmtilegt spjall.Þeim hjónunum er ýmislegt til lista lagt en er Yesmine meðal annars afar vinsæll einkaþjálfari hjá World Class, dansdrottning með meiru og stjörnukokkur en er hún búin að koma víða við í eldamennskunni bæði sem sjónvarpskokkur og haldið fjölda námsskeiða. Það kemur því kanski fáum á óvart að hún er einmitt þessa stundina ásamt Adda Fannari að opna glænýjann veitingastað í Pósthús mathöll sem ég persónulega er virkilega spenntur að prufa!Addi er tónlistarmaður í grunninn en er hann þekktastur fyrir gítarleik sinn í hljómsveitinni Skítamóral en starfar hann nú sem Viðskiptastjóri Tónlistardeildar Hörpu, svo það má segja að mússíkin sé aldrei langt undan.Yesmine og Addi höfðu lengi þekkst áður en þau fóru að stinga saman nefjum og voru mjög góðir vinir en kynntust þau fyrst á líkamsræktinni Planet puls þar sem Yesmine var að vinna og Einar bróðir Adda kom með hann þangað og bað Yesmine að halda honum í standi. Þau tengdu fljótt enda bæði heldur betur með “show buisnessinn” í blóðinu.Rómantíkin kviknaði þó töluvert síðar en voru þau bæði búin að vera einhleyp í nokkurn tíma og fóru þau þá oft með hvert öðru í bíó, spólu og þess háttar sem þróaðist síðar útí ástarsamband, en eins og Addi segir sjálfur þá bara gerðist þetta einhvernveginn og eru þau gift í dag og þremur börnum ríkari.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars upprunann, kokkalífð, fjölskyldulífið í showbuisnessnum og poppbransanum ásamt því að heyra heilan helling af sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Yesmine fór í veiðiferð og veiddi nánast allt nema fisk.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/isBrynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#67 - Yesmine Olsson & Addi FannarHlustað

03. ágú 2022