Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Tónlistarmaðurinn og rapparinn Birnir Sigurðarson mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi Vöku Njálsdóttur.Birnir hefur verið virkilega áberandi undanfarin ár en skaust hann hratt uppá stjörnuhimininn árið 2016 og hefur síðan þá verið einn atkvæðamesti tónlistarmaðurinn innan síns sviðs með lögum á borð við Já ég veit og Spurningar svo dæmi séu tekin.Vaka hefur heldur betur í nógu að snúast þessa dagana en starfar hún í viðskiptaþróun hjá Nova ásamt því að sjá um fríðindaklúbbinn og Nova appið. Það eru einnig spennandi tímar framundan hjá henni en hefur hún verið að vinna að sjónvarpsþáttum sem sýndir verða snemma á næsta ári.Birnir og Vaka kynntust í gegnum sameiginlega vini en var Vaka að vinna podcastið sitt “Þegar ég verð stór” í samvinnu við 101 studios og rákust þau reglulega á hvert annað þar. Þeim kom virkilega vel saman en það var í raun ekki fyrr en Vaka bauð Birni í afmælið sitt að hjólin fóru að snúast. Í dag eru þau nýflutt í sína fyrstu íbúð saman, en tóku þau hana gjörsamlega í gegn.Í þættinum ræddum við meðal annars tónlistarbransann og hvernig það var að fá ungur mikla athygli, fjarbúðina í upphafi sambandsins, framkvæmdirnar, heimilislífið og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar lögreglan hafði afskipti af Vöku á Akureyri.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#86 - Birnir & Vaka NjálsHlustað

14. des 2022