Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Í þættinum í dag fékk ég til mín söngkonuna Regínu Ósk Óskarsdóttur og hennar betri helming Sigursvein Þór Árnason ,sem er þó alltaf kallaður Svenni og áttum við ótrúlega létt og skemmtilegt spjall.Þau eru bæði búin að láta mikið af sér kveða í tónlistarlífinu undanfarin ár, en er Regína söngkona af guðs náð ásamt því að vera skólastýra í Söngskóla Maríu Bjarkar, á meðan Svenni semur poppsmelli, syngur og smíðar.Regína og Svenni eru búin að vera saman í 15 ár og eiga saman 2 börn en átti Regína eina dóttur úr fyrra sambandi.Svenni sá Regínu fyrst á Egó balli í Sjallanun á Akureyri og var strax ákveðinn í að láta til skarar skríða. Regína heillaðist fljótt af því hversu öruggur hann var í eigin skinni og fóru þau að slá sér upp í kjölfarið. Það má segja að þetta hafi verið allt skrifað í skýjin en viku fyrr hafði pabbi Svenna séð grein í blaðinu um Regínu og hafði hann orð á því við mömmu hans að þetta væri hin fullkomna kona fyrir drenginn þeirra, en segir pabbi hans að þetta sé í fyrsta skipti sem Svenni hafi hlustað á sig.Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar og má þar meðal annars nefna Euorovision ævintýrið og reddarahæfileika Svenna, flutninga Svenna í bæinn og hvernig það var að fóta sig á nýjum stað, ansi óhefðbundna en skemmtilega Trúlofun, rómantíkina, ferðasögur ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal skemmtilega sögu af fæðingu fyrsta barns þeirra saman. Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#59 - Regína Ósk & Svenni ÞórHlustað

08. jún 2022