Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Atvinnukylfingurinn & golfledgendið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mætti til mín í stórskemmtilegt spjall um lífið og tilveruna ásamt sínum betri helmingi Thomas Bojanowski.Ólafía er einn okkar allra besti kylfingur og hefur afrekað ótrúlega hluti inná golfvellinum en meðal annars hefur hún spilað á mörgum stærstu golfmótum heims og komst til að mynda tvisvar inná LPGA mótaröðina. Í dag hefur hún sagt skilið við atvinnumenskuna og er að koma sér upp eigin rekstri sem mun líta dagsins ljós á næstu mánuðum.Thomas kemur frá Þýskalandi og er hann í dag í eigin rekstri þar sem hann hjálpar íþróttafólki að finna réttu háskólana í Ameríku þar sem þau geta bæði stundað námið af kappi og sinnt íþróttinni sinni.Ólafía og Thomas kynntust fyrst í gegnum sameiginlega vini í Ameríku þar sem þau voru bæði að stunda háskólanám. Þau urðu strax góðir vinir og þróuðust hlutirnir hratt og náttúrulega í samband og eru þau í dag gift með einn strák.Í þættinum ræddum við meðal annars um háskólaárin úti, atvinnumennskuna í golfi, ákvörðunina örlagaríku um að leggja kylfuna á hilluna, menningarmun íslands og þýskalands, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar nærbuxurnar hennar Ólafíu björguðu Thomasi í tollinum í Ameríku.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#91 - Ólafía Þórunn & ThomasHlustað

18. jan 2023