Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fótboltamaðurinn, íslandsmeistarinn og frumkvöðullinn Viktor Karl Einarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, lögfræðingnum og frumkvöðlunum Jónínu Þórdísi Karlsdóttur.Viktor fór ungur út í atvinnumennsku í fótbolta og spilaði með með Jong AZ í hollandi og IFK Värnamo í Svíþjóð áður en hann kom svo aftur heim í Kópavoginn og er í dag einn af lykilmönnum íslandsmeistara Breiðabliks.Jónína er körfuboltakona og lögfræðinemi en spilar hún með Ármanni og var meðal annars valin mikilvægasti leikmaður þeirra í fyrra. Hún hefur einnig látið ljós sitt skína sem leikkona en til að mynda fór hún með hlutverk í myndinni Hjartasteini. Saman reka þau svo fatamerkið BÖKK ásamt sem fer sífellt stækkandi.Viktor og Jónína kynntust í gegnum sameiginlega vini en fékk Viktor vini sína til að kynna sig fyrir einhverri stelpu þar sem hann var einn úti í Hollandi og erfitt fyrir hann að kynnast einhverjum þar. Jónína var kynnt til leiks og fór af stað skemmtilegur og ruglandi samfélagsmiðla leikur sem endaði þó með því að þau eru saman í dag og hafa verið í rúm fimm ár.Í þættinum ræddum við meðal annars um fatalínuna þeirra og tíman í þýskalandi, fótboltann og íslandsmeistaratitilinn, körfuboltann og hvar áhuginn kviknaði, rómantíkina, ferðalög og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Viktori mistókst að koma Jónínu á óvart.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#90 - Viktor Karl & Jónína ÞórdísHlustað

11. jan 2023