Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

 Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við ofur-parið Línu Birgittu Sigurðardóttur og Guðmund Birki Pálmason, eða Gumma Kíró eins og hann er gjarnan kallaður.  Lína og Gummi hafa verið áberandi undanfarin ár bæði saman og í sitthvoru lagi en Lína er meðal annars athafnakona með meiru, áhrifavaldur og rekur sitt eigið fyrirtæki, Define the Line, þar sem hún selur íþróttafatnað og kósýföt sem hafa slegið rækilega í gegn. Gummi er afar vinsæll kírópraktor og er eigandi Kírópraktorstöðvar Reykjarvíkur sem hann stofnaði árið 2017 ásamt því að vera duglegur að deila ýmsu áhugaverðu og skemmtilegu á samfélagsmiðlum tengt kírópraktík, heilsu, tísku og allt þar á milli.   Lína og Gummi eru afar samrýnd og hafa verið saman nánast upp á dag síðan Gummi bauð Línu á fyrsta stefnumótið en þau segja einmitt skemmtilega sögu frá fyrsta stefnumótinu í þættinum. Þá fórum við um víðan völl og spjölluðum meðal annars um samfélagsmiðlana, slúðursögur, stjúpforeldra-hlutverkið og hvernig það var fyrir Línu að stíga inn í það hlutverk, ferðalög, heilsu og allt þar á milli.  Þá er þátturinn stútfullur af geggjuðum sögum úr þeirra sambandstíð.Aha.is -  https://aha.isBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

#46 - Lína Birgitta & GummiHlustað

02. mar 2022