Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fjölmiðlakonan Þórhildur Þorkelsdóttir og hennar betri helmingur Hjalti Harðarson mættu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum.Þórhildur hefur starfað í fjölmiðlum undanfarin 10 ár en skipti nýlega um starfsvetfang og tók við stöðu kynningarstjóra BHM.  Hún talar þó um það í þættinum að erfitt sé að slíta sig alfarið frá fjölmiðlunum og til að sinna áfram þessum gríðarlega fjölmiðlaáhuga ákváð hún ásamt vinkonu sinni og fjölmiðlakonu Nadine Guðrúnu Yaghi að fara af stað með podcastið Eftirmál þar sem þær kafa ofan í gömul og afar áhugaverð fréttamál en má með sanni segja að það hafi slegið rækilega í gegn og tróna þær á toppnum á lista yfir vinsælustu hlaðvörp landsins.Hjalti hefur starfað lengi í markaðsmálum og hefur komið víða við en er þessa dagana nýtiekinn við markaðsmálum hjá Landsbankanum.Þórhildur tók fyrst eftir Hjalta þegar hann var einn af stofnendum fjölmiðilsins Kjarnans og stakk sig úr hópnum, þar sem Þórhildur kannaðist ekki við hann og fannst það óvenjulegt þar sem fjölmiðlabransinn á Íslandi er lítill og varð hún strax áhugasöm. Allt hófst þetta svo með addi á facebook og the rest is history eins og sagt er.Í dag eru þau trúlofuð, eiga saman einn strák og gætu ekki verið mikið ánægðari með lífið.Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars fyrsta deitið og vinkonu Þórhildar sem þurfti að sýna mikla þolinmæði, trúlofunina sem var ansi skemmtileg, ferðasögur, rómantíkina ásamt því að við fengum margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Hjalti ákvað að bóka hótel blint í sparnaðarskini.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#58 - Þórhildur Þorkels & HjaltiHlustað

01. jún 2022