Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir og hennar betri helmingur Ebenezer Þórarinn Einarsson eru viðmælendur 66 þàttar af Betri helmingnum.Birna Rún er eins og fyrr segir leikkona en hefur hún meðal annars verið fastráðin í Borgargarleikhúsinu og lék þar í fjölda sýninga. Þá hefur hún einnig unnið til Edduverðlaunana en það var fyrir hlutverk sitt í Rétti sem sló í gegn árið 2016. Birna hefur einnig verið verið afar vinsæl á samfélagsmiðlinum tiktok undanfarið fyrir einstaklega fyndið og skemmtilegt efni.Ebenezer eða Ebbi eins og hann er gjarnan kallaður er sérfræðingur í gagnadrifinni markaðssetningu hjá fyrirtækinu Digido.Birna og Ebbi kynntust fyrst á skemmtistöðum bæjarins þar sem Birna var í raun komin til að hitta vin Ebba en enduðu þau tvö yfirleitt alltaf á trúnó og bonduðu í raun mikið betur, það var síðan á þjóðhátíð stuttu seinna sem hjólin fóru að snúast og hafa þau verið saman allar götur síðan, eiga tvö börn og eru trúlofuð.Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars hvernig það er að vera ungir foreldrar, hæðir og lægðir í lífinu, sprautu ofsahræðslu Ebba, leiklistina ásamt því að fá að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Ebbi naut sín full vel á rauða dreglinum.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#66 - Birna Rún & EbenezerHlustað

27. júl 2022