Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Hlaðvarpsstjarnan & Hollywood sérfræðingurinn Birta Líf Ólafsdóttir kom ásamt sínum betri helmingi Gunnari Patrik Sigurðssyni í virkilega hresst og skemmtilegt spjall.Birta Líf er annar þáttastjórnenda hlaðvarpsþáttarins vinsæla, Teboðsins, þar sem farið er vel yfir allt það helsta sem gerist í heimi hollywood stjarnanna og allt þar á milli ásamt því að mæta vikulega í heimsókn í Brennsluna á FM957 með te-vikunnar. Þá er Birta markaðsfræðingur og starfar sem markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofunni Kiwi. Gunnar Patrik er menntaður atvinnuflugmaður en er hann þessa stundina aftur sestur á skólabekk og í þetta skiptið var það fasteignasalinn sem heillaði.Birta og Gunni kynntust í gegnum sameiginlega vini árið 2014 en var ákvörðun tekin um að fara á fyrsta deitið eftir að hafa hist ásamt vini sínum í bíói og mikið spjallað á snappchat í kjölfarið. Þau fóru að eigin sögn á einn óþæginlegasta og vandræðalegasta bíltúr sem sögur fara af og var Birta ekki viss um þetta ákvað þó að gefa þessu annan séns og sér svo sannarlega ekki eftir því í dag. Í dag eiga þau saman eina dóttur og er framtíðin björt.Í þættinum fórum við um víðann völl en ræddum við meðal annars tilviljunarkenndar ákvarðanir um nám, árin í London, fjarsambandið, flugmennskuna sem ekki enþá er komið að, rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal stirð fyrstu kynni Gunna af tengdaföður sínum.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/isBrynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#69 - Birta Líf & Gunnar PatrikHlustað

17. ágú 2022