Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðar Halldórsson.Dísu og Júlí  er margt til listanna lagt en eru þau bæði útskrifaðir leikarar og hafa tekist á við hin ýmsu verkefni í leiklistarheiminum ásamt því að þau eru bæði mjög áberandi í tónlistarsenunni.Dísa hefur undanfarið verið með annan fótinn á Akureyri þar sem hún hefur tekið þátt í uppfærslum leikrita undanfarin 4 ár hjá leikfélagi Akureyrar ásamt því að slá í gegn með Reykjavíkurdætrum um allan heim og nú síðast í Söngvakeppni sjónvarpsins.Júlí Heiðar hefur einnig látið mikið til sín taka að undanförnu í tónlistarheiminum en lagið sem hann samdi til Dísu “Ástin heldur vöku” hefur svo sannarlega verið að slá í gegn og eru spennandi tímar framundan í mússíkinni hjá honum. Samhliða leiklistinni & músíkinni vinnur hann í Arion banka á daginn svo það má segja að það sé nóg að gera hjá þeim skötuhjúum.Júlí  og Dísa kynntust fyrst í inntökuprófum  í leiklistarskólann en voru þau pöruð saman til að vinna sennu fyrir prufurnar. Samband þeirra var þó aldrei meira en bara vinátta en rómantíkin bankaði ekki almennilega á dyrnar fyrr en 2020 þó svo Júlí  viðurkenni að hann hafi löngu verið orðinn skotinn í Dísu.Í dag eru þau trúlofuð, með tvo ketti og einn hund og sitthvorn strákinn úr fyrri samböndum.Í þættinum fórum við um víðann völl og ræddum meðal annars vináttuna sem þróaðist út í ástarsamband, roadtrippin þeirra til Akureyrar, skapsveiflur, trúlofun þeirra eftir lokasýningu á Skugga Sveini og sögðu þau mér margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Dísa ætlaði að gefa Júlí  gjöf lífs síns en það fór ekki alveg eins og hún sá fyrir sér.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#60 - Þórdís Björk & Júlí HeiðarHlustað

15. jún 2022