Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi Adam Karli Helgasyni í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum.Ástrós hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum og talar hún um að það hafi í raun allt byrjað eftir að hún tók þátt í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað þar sem hún var fengin til að dansa og þjálfa einn keppandann. Ástrós var um tíma atvinnu dansari og kennir nú dans samhliða hinum fjölbreyttu verkefnum sem berast á borð hennar sem áhrifavaldur.Adam er stofnandi fyrirtækisins ZOLO sem er hlaupahjólaleiga og hefur  slegið rækilega í gegn og er alltaf nóg um að vera hjá þeim og reksturinn fer ört stækkandi.Ástrós og Adam kynntust fyrst við módelstörf löngu áður en þau fóru að slá sér upp enda bæði í sambandi þá, Adam varð þó strax heillaður af henni, en var það þó ekki fyrr en töluvert síðar að að Adam lét til skarar skríða og var þá búinn að frétta af því að Ástrós væri á lausu. Hann ákvað þá að bjóða henni  á stefnumót sem Ástrós afþakkaði þó pent en þrautseigja Adams skilaði sér svo sannarlega og eiga þau nú von á sínu fyrsta barni saman.Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars um áhrifavaldamennskuna og dansinn, ZOLO ævintýrið, rómantíkina, ferðalög og fengum að heyra margar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Adam reyndi allt til þess að gera sjóferð óléttrar og sjóveikrar Ástrósar bærilega.Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/Brynjuís - https://brynjuis.is/Augað - https://www.augad.is/

#75 - Ástrós Trausta & Adam KarlHlustað

28. sep 2022