Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur.Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar hann með íslenska landsliðinu og skoraði meðal annars markið sem tryggði Íslandi leikinn á móti Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016.Andrea hefur verið áberandi hér á landi í mörg ár fyrir störf sín sem fyrirsæta og er hún einnig partur af vinsælu bloggsíðunni Trendnet þar sem hún skrifar mikið um tísku. Þá hefur hún einnig hannað og gefið út sína eigin skólínu, JoDis by Andrea með danska skóframleiðandanum JoDis, sem vægast sagt hafa slegið í gegn og hefur hún alls hannað sjö línur.Arnór og Andrea kynntust í gegnum sameiginlegann vin í desember 2016 á Fredreksen og kom Arnór heim eftir þennan hitting og sagði við mömmu sína að hann væri búinn að finna réttu stelpuna en var hún mætt í mat hjá tengdó 1. janúar svo hlutirnir gerðust ansi hratt og eru þau í dag gift með tvö börn.Í þættinum ræddum við meðal annars lífið í atvinnumennskunni og hvernig það er að flytja fjölskiduna reglulega milli landa, hönnunina á skónum og hvernig það kom til, landsliðið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Andrea var næstum búinn að senda Arnór í keppnisferð þegar hún var að eiga.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

#89 - Andrea Röfn & Arnór IngviHlustað

04. jan 2023